Fréttatíminn - 28.09.2012, Page 43
heilsa 43Helgin 28.-30. september 2012
KAUPTU FJÓRAR
& FÁÐU SEX FERNUR
NÝTT! NÚ FÆST HLEÐSLA LÍKA
MEÐ SÚKKULAÐIBRAGÐI.
HOLL OG UPPBYGGILEG NÆRING EFTIR GÓÐA ÆFINGU.
HENTAR VEL FÓLKI MEÐ MJÓLKURÓÞOL.
Opið kl. 9 -18 • laugardaga kl. 11 - 16 • Stórhöfða 25 • 569 3100 • eirberg.isVerslaðu á vefnum Frí sending að 20 kg 1 árs skilaréttur
Sólarljósið í skammdeginu
Lumie dagljósið
• Bætir líðan og eykur afköst • 10.000 lux í 25 cm fjarlægð
5 góð hlaupaöpp
Einu sinni fór fólk út að hlaupa
og hugsaði sinn gang. Svo varð
nauðsynlegt að vera með tónlist
í eyrunum. Nú er enginn maður
með mönnum nema vera með
rétta hlaupaappið í snjallsímanum
sínum. Allt frá GPS-skráðum
hlaupaleiðum til kaloríuteljara og
tillagna að upphitunaræfingum.
Hér eru fimm góð hlaupaöpp til að
velja úr.
1. Runkeeper
Það er erfitt að finna fjölbreytt-
ari öpp en Runkeeper, alla vega
ekki frí. Þarna er allt það helsta;
GPS-skráning, tæki til að mæla
vegalengdir og fjarlægðir, hraða
og kaloríubrennslu auk þess sem
það safnar öllum gögnum um
æfingar þínar. Fæst fyrir Android,
iPhone og Windows-síma.
2. Zombies, Run!
Þeir sem horfa á hryllingsmyndir
vita að fólk hleypur hraðar þegar
einhver eltir það og enn hraðar
þegar svo vill til að það eru upp-
vakningar á eftir því. Skemmtilegt
app sem skráir hlaup þín meðan
þú hleypur undan ímyndaðri
hættu. Fæst fyrir Android og
iPhone.
3. Lose It!
Hlaup eru góð til að minnka
mittismálið en þú verður að passa
hvað fer ofan í þig. Með þessu
ókeypis appi skráir þú mataræði
þitt og hefur aðgang að stórum
gagnabanka um næringu. Fæst
fyrir Android og iPhone.
4. iRaceMe
Ertu ekki í hlaupahóp sem hvetur
þig áfram? Með þessu appi keppir
þú við sjálfa(n) þig. Þú skráir fyrsta
hlaupatúrinn og reynir svo að
bæta þig næst. Fæst fyrir iPhone.
5. Endomondo
Þú skráir ýmsar upplýsingar
um æfingar þínar og getur á
auðveldan hátt deilt þeim með
vinum þínum og æfingafélögum.
Sannkallað líkamsræktarsam-
félag. Fæst ókeypis fyrir iPhone og
Android.