Fréttatíminn - 28.09.2012, Síða 56
56 bíó Helgin 28.-30. september 2012
Þetta
þykir
allt mjög
sérstakt.
Frumsýndar rIFF BíóveIsla í reykjavík
r IFF hefur vakið mikla athygli í útlönd-um og fjöldi erlendra gesta, fjölmiðla – og fagfólks sækir hátíðina ár hvert.
Hrönn Marínósdóttir, stjórnandi RIFF, segir
erlenda fjölmiðla hafa sýnt hátíðinni mikinn
áhuga og RIFF hafi til dæmis fengið góða
umfjöllun í fyrra hjá New York Times, The
Guardian, La Republica, El Pais og Politiken.
„Fjölmiðlar virðast hafa mikinn áhuga
á þessari hátíð og það eru líklega ýmsar
skýringar á því. Ísland þykir spennandi en
kannski vegur sá fókus sem við höfum, kar-
akter hátíðarinnar, líka þungt. Þessi áhersla
okkar á unga og nýja leikstjóra en því fylgir
auðvitað að við sýnum mikið af nýjum mynd-
um. Meðal annars myndir sem eru nýkomnar
frá hátíðunum í Toronto og Feneyjum.“
Þá hafa sérviðburðir RIFF vakið athygli
og Hrönn nefnir sérstaklega sundbíóið sem
hefur mælst ákaflega vel fyrir. „Þetta þykir
allt mjög sérstakt.“
Hrönn segir dagskrá RIFF ekki síst setta
saman úr brotum af því besta sem verið
hefur í gangi á öðrum hátíðum undanfarna
mánuði í bland við glænýjar myndir, nýfrum-
sýndar á tveimur stærstu hátíðum heims í
Feneyjum og Toronto.
„Og svo er náttúrlega fullt af heimildar-
myndum um alls konar spennandi málefni.“
Þýskaland verður i brennidepli hátíðarinnar
þetta árið og þýskar myndir verða heims-
frumsýndar. „Við verðum líka með 50
Norðurlandafrumsýningar og níu Evrópu-
frumsýningar,“ segir Hrönn og bætir við að
þeir sem vilji fylgjast vel með því sem er að
gerast í kvikmyndaheiminum í dag verði að
mæta á RIFF.
Úrvalið er slíkt og tíminn það knappur að
óhjákvæmilegt er fyrir þá áhugasömustu að
velja og hafna og Hrönn segir dagskránni
skipt niður í flokka til þess að auðvelda fólki
að ná utan um dagskrána og finna það sem
helst höfðar til þess. Þannig megi ganga að
ungu og upprennandi kvikmyndagerðarfólki
vísu í keppnisflokknum Vitranir og í flokkn-
um Fyrir opnu hafi megi finna bestu myndir
síðustu mánaða sem hafi verið að gera það
gott á öðrum hátíðum.
Heiðursgestir RIFF eru heldur ekki af
verri endanum þetta árið en hingað mæta
ítalski hrollvekjumeistarinn Dario Argento,
danski óskarsverðlaunaleikstjórinn Susanne
Bier, sem tekur við heiðursverðlaunum RIFF
úr hendi forseta Íslands, og íranski leikstjór-
inn Marjane Satrapi. Sartapi er þekktust
fyrir Persepolis en nýjasta mynd hennar er
Chicken with Plums. Hún fær verðlaun RIFF
sem upprennandi meistari. „Þessi mynd er
að mínu mati gersamlega frábær og óhætt
að mæla með henni,“ segir Hrönn. „Og við
gerum okkur vonir um að Satrapi eigi eftir að
gera mikið í framtíðinni.“
Þrjár myndir Argentos verða sýndar á
RIFF að honum viðstöddum og Jón Gnarr
borgarstjóri mun afhenda honum viðurkenn-
ingu RIFF fyrir æviframlag í þágu kvik-
myndalistarinnar.
Allar frekari upplýsingar um dagskrá RIFF
er að finna á vef hátíðarinnar, www.riff.is
Alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Reykjavík er nú haldin í níunda sinn. Hátíðin hófst formlega á
fimmtudagskvöld með sýningu nýjustu myndar Sólveigar Anspach, Queen of Montreuil. Sem
fyrr er áherslan ekki síst lögð á verk ungs og upprennandi kvikmyndagerðarfólks en sú viðleitni
hátíðarinnar á sinn þátt í miklum áhuga erlendra fjölmiðla á hátíðinni en hróður hennar hefur á
liðnum árum borist víða. Úrval heimildarmynda er sérlega spennandi þetta árið og ljóst að þeir
sem ætla sér að fleyta rjómann mega hafa sig alla við næstu tvær vikurnar eða svo
Þórarinn
Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Í framtíðar-
tryllinum Looper
leikur Joseph
Gordon-Levitt
mafíuleigumorð-
ingja sem fær
það leiðinlega
verkefni að
drepa eldri út-
gáfu af sjálfum
sér sem Bruce
Willis leikur.
Árið 2042 eru
tímaferðalög
orðin að raunveruleika. Slíkt flakk er þó ólöglegt og mafían
stjórnar þeim og notar til þess að senda fólk sem hún vill drepa
aftur í tímann. Þar bíða hinir svokölluðu „looperar“ eftir þeim,
drepa og fela líkin. Kosturinn við þetta er að enginn saknar fólks
sem drepið er í fortíðinni. Levitt leikur Joe sem hefur hagnast vel á
starfi sínu sem „looper“ en hikar þegar kemur að því að honum er
falið að drepa eldri útgáfu af sjálfum sér. Þar með er hann kominn
á dauðalista mafíunnar ásamt eldri útgáfunni af sjálfum sér og þeir
gamli Joe og ungi Joe þurfa að snúa bökum saman í baráttu upp á
líf og dauða fyrir fortíð sinni og framtíð.
aðrir miðlar: Imdb: 8.5, Rotten Tomatoes: 93%, Metacritic: 88%
Drög að framtíðarsjálfsmorði
Fjölbreyttir bíódagar fram undanLeikstjórinn ofsóknar-brjálaði Oliver Stone
hefur löngum sérhæft sig
í umdeildum kvikmyndum
en er á nokkuð sígildum
slóðum í Savages. Hann
mætir hér til leiks með
úrvalsliði leikara á borð við
Benicio Del Toro, John
Travolta, Salma Hayek,
Aaron Johnson, Emile
Hirsch, Blake Lively og
Taylor Kitsch.
Savages segir frá
félögunum Ben og Chon
sem rækta besta mari-
júana sem sögur fara af.
Þeir hafa hagnast vel á
viðskiptum með grasið en
eins og gengur og gerist
þegar vel gengur vilja
margir komast í gróðann.
Eiturlyfjadrottningin
Elena er ein þeirra en
Ben og Chon hafna
öllu samstarfi við hana
þannig að hún ákveður
að bretta upp ermar
og grípa til róttækra
þvingunaraðgerða.
aðrir miðlar. Imdb: 6.8,
Rotten Tomatoes: 49%,
Metacritic: 59%
Hrönn Marínósdóttir segir engan sem vilji fylgjast með því sem er að gerast í kvikmyndum geta sleppt því að mæta á RIFF.
Nemo í 3D
Pixar-tölvuteikni-
myndin Finding
Nemo sló í gegn
árið 2003 og er
meðal ástsælustu
teiknimynda fyrir-
tækisins sem fyrst
heillaði unga sem
aldna með hinni byltingar-
kenndu Toy Story árið 1995.
Finding Nemo er nú komin
aftur í bíó og að þessu sinni
í þrívídd og ætti endur-
koman að gleðja bæði eldri
áhorfendur sem og nýja
fulltrúa yngstu kynslóðar
bíógesta.
Finding Nemo fjallar um
örvæntingarfulla leit fisksins
Marlin að syni sínum Nemo
sem týnist í sjónum og endar
sem skrautfiskur í búri á
tannlæknastofu.
Aðrir miðlar: Imdb: 8.1,
Rotten Tomatoes: 99%,
Metacritic: 89%
Joseph Gor-
don-Levitt og
Bruce Willis
leika einn og
sama manninn
í Looper.
John Travolta hefur lítið látið fyrir sér fara undanfarið en
Oliver Stone teflir honum fram nú.
Barist um gott gras
Söngkona vinsæla Adele mun syngja Bond-lagið í Skyfall og
bætist þá í vaskan flokk tónlistarfólks sem hefur sungið Bond-lög
en þar á meðal eru Louis Armstrong, Paul McCartney, Madonna,
A-ha, Duran Duran, Shirley Bassey og Tom Jones.
Fregnir af því að framleiðendur Skyfall ætli sér að tefla Adele
fram í næsta Bond-lagi gáfu Entertainmentwise tilefni til þess
að gera könnun á meðal lesenda sinna um hvaða Bond-lag þeim
þætti best þeirra allra. Sjálfsagt kemur það einhverjum á óvart
að titillag síðustu Bond-myndar Rogers Moore, A View To A Kill
með eitísbandinu Duran Duran, þykir besta Bond-lag allra tíma.
Rúm 80% völdu Duran Duran-lagið en meistari Paul McCartney
og The Wings enduðu í öðru sæti með lag fyrstu Moore-mynd-
arinnar, Live And Let Die. Nancy Sinatra hafnaði í þriðja sæti
með You Only Live Twice en Carly Simon fékk aðeins 1.33% með
ballöðunni Nobody Does it Better úr The Spy Who Loved Me.
a vIew To a kIll BesTa Bond-lagIð
Duran Duran rúlla yfir samkeppnina
Roger Moore kvaddi James Bond við undirleik Duran Duran.
MEÐ STUÐNINGI REYKJAVÍKURBORGAR OG KVIKMYNDAMIÐSTÖÐVAR ÍSLANDS MIÐASALA: 412 7711
KOMDU Í KLÚBBINN!
bioparadis.is/klubburinn
Farðu núna á www.bioparadis.is/klubburinn!
SKÓLANEMAR: 25% afsláttur
gegn framvísun skírteinis!
RIFF Í BÍÓ PARADÍS TIL OG MEÐ 7. OKT.!
KOMDU Í KLÚBBINN!