Læknablaðið - 01.01.1929, Blaðsíða 31
LÆKNABLAÐIÐ
-o
Geitnalækningar 1928.
Nú er aðsóknin farin mjög að minka. Uppskera ársins eru aðeins fimm
geitnakollar. Vonandi er þetta órækur vottur þess, að nú sé fyrir alvöru
farið að grynnast á geitunum.
Sjúklingarnir voru úr þessum héruðum:
Hólmavíkur ........ 3
Eskifjarðar ....... 2
Aíls .. 5
Sjúklingarnir úr Hólmavikurhéraði voru ])rjú systkini, á harnsaldri. Ann-
ar sjúkl. úr Eskifjarðarhér. er fullórðinn maður. Fólkið úr Hólmavíkur-
heraði er siðasta geitnafjölskyldan, sem mér er kunnugt um. Má véra,
að einhversstaðar, sé enn ,,hreiður“, sem mér eða þeim læknum, er eg hefi
haft samband við, cr ókunnugt um. En vafalaust er eitthvað af geitna-
kollum á stangli. Því miður náðist ekki i geitnafjölskyldu í Hofsóshéraði,
sem Magm'ts heit. Jóhannsson taldi fram, við geitnatalið 1922. Það fólk
hefir tvístrast. Væri gott, ef collegar í næstu héruðum vildu veita tnálimt
eftirtekt.
Mikið verk er unnið til útrýmingar geitúnum, og hafa héraðslæknar
margir hverjir látið sér ant um að koma sjúklingunum á framfæri. En
áhuginn niá ekki dofna, og verður að ganga rikt eftir, að lækna þann strjál-
ing af geitnaveikum, sem eftir er. Hafið hugfast, að geitnaveikur ungling-
ur stofnar sennilega „geitna-fjölskyldu“ síðar, ef hann gengur í hjóna-
band með sjúkdóminn. Það mun víst fátitt, að foreldrar með geitur ekki
sýki börn sin.
Styrkur er veittur sem fyr: y ferða- og dvalarkostnaðar greiðist úr
ríkissjóði, og borgast af landlækni, eftir á. A Röntgenstofunni eru sjúk.l.
læknaðir endurgjaldslaust. G. Cl.
Fundur heilbrigðisnefndar Þjóðabandal. í Généve. 25.—31.—10.—'28.
I nýútkominni skýrslu um fundinn sést, að á dagskrá heíir meðal ann-
ars verið:
1) Alkoliol: Finnland, Pólland og Svíþjóð höfðu óskað þess, að nefnd-
in aflaði sér fullkominna, statistiskra upplýsinga um alkoholismus fram
kominn af notkun lélegra alkoholtegunda. Nefndin áleit skýrslur uin slíkt
vera til nægilega fullkomnar, og mæltist því til þess, að heilbrigðisstjórnir
])ær, sem komið hefðu fram með þessa ósk, létu í ljós hvaða atriði þær
aðallega æsktu að alþjóða rannsókn færi fram á.
2) Opium: Samþykt var að ditaudid, hcnzyl-morjin, og morfin-æterar
skyldu falla inn undir opiumssamþyktina frá 19. febr. 1925, ýms öniiur
meðul skyldu feld undan.
3) Kynnisfarir Þjóffabandalagsins 1929 eiga aðallega að bafa sveita-,
mjólkur- og iðnaöar-heilbrigðismál að markmiði.
4) Kcnsla í heilsufrœði: Alþjóðakvdkmyndastofnun i Róm var íalið að
safna alþjóðafræðsluefni, og rætt var um mentun embættislækna í ýmsum
löndum.
5) Sóttvarnir: Miðstöðin í Singapore hefir fært út kvíarnar til Ásfralíu
og Kyrmha fseyj anna.