Læknablaðið - 01.01.1929, Side 33
læícnabLaðiö
-/
um. AÖrir eru á hinn bóginn þeirra álita, að lyfiÖ verki beinlínis drepandi
á þessar sóttkrveikjur sérstaklega, og ýmsar fleiri, án þess aÖ skaÖa það
heilbrigöa.
í lyfjaverslunum er lyfið í tölum á io ctgr., og í dufti. Tíðast er það
notað í I /cc upplausn. DuftiÖ er ódýrara í notkun, sé lyfiö mikiÖ um hönd
haft, á sjúkrahúsum. en tölurnar hentugri og fljótlegra að grípa til þeirra,
ef lítið er búið til í hvert sinn.
Fyrstu árin levsti eg meðalið upp í heitu, soðnu vatni. Siðan eg dvaldi
á Ullevaal sjúkrahúsi, á deild IVidcröc’s yfirlæknis, um mánaðartíma, haustið
1926, hefir verið fvlgt sömu reglum um tilbúning upplausnarinnar hér á
sjúkrahúsinu og þar, soðið í vatnsbaði 1 tíma (Literflaska eða stærri látin
standa í potti, sem sýður í, steril baðmull látin standa í á meðan).
Við alskvns handlækningar, smærri tegundar, sem brátt ber að með í
viðtalstíma lækna, svo sem tilfallandi sár og meiðsli, eða á sjúkrahúsum,
reynist lyfið ágætlega, til að koma í veg fyrir ígerðir og hrinda fram fljótri
græðslu. Tilfallandi sár, sem eldri eru og farið hefir verið að grafa i,
hefi eg nokkrum sinnum fengið ti! að gróa því nær pr. primam, með því
að skola þau fyrst út með Rivanol-upplausn í 1—2 skifti, og loka þeim
síðan með saumum eða sáraklemmum, með smáopi, eftir þvi sem til hag-
ar, og rivanolkveik i. Aður en eg þekti lyfið, tókst það trauðla. Við bráða
igerðarbólgu í eitlum, sinaskeiðum, slímpokum og liðum, svo og alskyns
kýli, er lyfið notað til að skola út með, eftir að búið er aö skera og hleypa
út greftinum. Suinir dæla því inn í bráðaígerðar, og er þá novocain haft
saman við það (í lyfjasölu fást slikar rivanol-tölur á 4 ctgrm., og fylgja
novocain-suprarenin-tölur með), eftir að búið er að stinga á. Lyfið er oft
notað við djúpar ígerðir, og eins nota tannlæknar það mikiö með novo-
caini, nú orðið, sem antisepticum við deyfingar. Eins og eg drap á, dvaldi
eg um mánaðartima (septemlier 1926) á skurðlækningadeild Wideröe’s yfir-
læknis á Ullevaal. Gladdist eg af að sjá, að rivanol var þar i hávegum
haft, því að min litla reynsla benti til þess, að það væri að verðleikum.
Auk þess, sem hér hefir verið getiö um, var lyfið notað þar við allar
laparotomiur og skurði annarar tegundar. Æfinlega var grisjustykki bleytt
í i/cc upplausn lögð á húðbarma, þegar búið var að opna lífhimnu, og eins
haft til að þerra með. Einnig var það ávalt notað við graftarigerðir i
kviðarholi perfor. appendix. o. s. frv.
Wideröe yfirlæknir hafði tröllatrú á rivanol, og lét svo um mælt, að það
hefði reynst sér best allra þeirra antiseptika, sem hann hefði notað fram
til þessa.
Eg hefi notað lyfið við stærri og smærri aðgerðir, og hefi mikið dálæti
á því, meira en á öðrum sáralyfjum, sem eg hefi komist í kynni við. Það
er ómissandi í viðtalstima lækna, á lækningastofur, á sjúkrahús, og í tösk-
una má það alls ekki vanta. Mér Jiætti fróðlegt að heyra um reynslu þeirra
lækna hérlendis, sem notað hafa rivanol og nota kunna, hvort þeim hefir
reynst ]>að eöa reynist Jiað annað eins gæðalyf og mér hefir reynst það, og
fjölda útlendra lækna, einkum í Þýskalandi og á Norðurlöndum.
Ól. Ó. Lárusson.
Nordisk medicinsk tidsskrift heitir nýtt timarit, sem byrjaði að koma
út 5 Stokkhólmi nú um áramótin.’ þaö er vikurit. Forgöngumaöur þessa