Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.12.1956, Side 34

Læknablaðið - 01.12.1956, Side 34
144 LÆKNABLAÐIÐ þessa unglinga er að þeim sé leiðbeint um vinnuval, og hjálpað til að velja sér ævi- starf, sem ekki verður þeirra veika baki ofviða. Hjá fullorðnum eru það bol- irnir, sem bezt reynast, flestum nægja línbolir, en oft þarf að grípa til leðurbola. Oft nægir sjúklingum að nota bolinn við vinnu, en ganga lausir þess í milli. Hin viðurkennda skurðað- gerð við hryggjarliðsskriði hef- ur verið spengingin, þ. e. að festa saman 2 eða fleiri hryggj- arliði og þá við spjaldbein. Þessi aðgerð var allmikið not- uð áður, en er nú víðast ein- skorðuð við þá sjúklinga, sem ekki tekst að halda vinnufær- um með bolum, og hafa auk skriðsins þófabreytingar víðar í hryggnum. Mörgum aðferðum hefur ver- ið lýst til þess að gera festingu, en ég hygg, að víðast sé nú not- uð aðferð, sem er samsuða af hinum upphaflegu uðferðum þeirra Hibbs og Albees. Skorið er inn á hryggtindana og b,ein- himnan losuð frá. Brjósk smá- liðanna er numið burtu og greyptar beinflísar í liðina. Síðan er beinspöng, venjulega úr leggbeini, fest við hrygg- tindana og þakið milli liðbog- anna m.eð frauðbeini. Þetta grær síðan í beinhellu, ef vel tekst. Síðan lýst var aðgerðinni, sem fyrr er nefnd um brottnám bogans, er nokkuð deilt um, livort það skuli gera áður en spenging er gerð, og sýnist sitt hverjum en sjálfsagt virðist að gera það, ef minnsti grunur er um þrýstingseinkenni frá bog- anum. Eng nn hefur enn viljað ráð- leggja festingu á börnum til þess að fyrirbyggja hugsanlega skriðaukningu, en vera má, að það sé framtíðarlækningin, og kemur þá til kasta barna og skólalækna að vinsa þessi börn úr nógu snemma. Heimildir : 1. Friberg S.: Studies on Spondylo- listhesis. Act. chir. scand. Suppl. LV. 2. Mercer W.: Orthopaedic Surgery. Arnold. London 1950. 3. Taillard W.: Le spondylolisthesis ches l’anfant et l’adolcscent. Act. ort. scand. 115—144. 1954. 4. Broman—Hjortsjö: Manniskans rörelseapparat. Gleerup. Lund. 1952. 5. Year-Book of Orthopaedics and Traumatic Surgery 1952. 192— 194. 6. Adkins E. W. 0.: Spondylolisth- esis. J. Bone and Joint Surg. 37. B. 48—62. 7. J. Bone and Joint Surg. 38. A. 933—934. 8. Gill G.: Surgical Treatment of Spondylolisthesis without Spine Fusion. Excision of the Loos La- mina with Decompression of the Nerve Roots. J. Bone and Joint Surg. 37. A. 493—520. 9. Bosworth, D.: Spondylolisthesis. J. Bone and Joint Surg. 37. A. 767—785. ,

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.