Læknablaðið - 01.12.1969, Page 13
LÆKNABLAÐIÐ
LÆKNAFÉLAG ÍSLANDS OG
L/ÍKNAFÉLAG REYKJAVÍKUR
Aðalritstjóri: Ólafur Jensson- Meðritstjórar: Karl Strand og
Þorkell Jóhannesson (L.Í.), Ásmundur Brekkan og Hrafn Tulinius (L.R.)
55. ÁRG. DESEMBER 1969 6. HEFTI
EiNAR ASTRADSSON
héraðslæknir
f. 6. febrúar 1902 — d. 7. ágúst 1967
Einar var fæddur í Reykjavík. Foreldrar hans voru Ástráður Hann-
esson, verzlunarmaður í Reykjavík, og Ingibjörg Sigríður Einarsdóttir,
sniiðs í Arnarholti í Reykjavík, Þorsteinssonar.
Éinar varð stúdent 21. júní 1921 frá Menntaskólanum í Reykjavík.
Hann lauk embættisprófi í læknisfræði 23. febrúar 1928. Hann starfaði
á Eppendorf handlæknisdeild frá júlí 1928 — jan. 1929, fæðingardeild
febrúar — marz 1929 og lyfjadeild marz — apríl 1929; stundaði læknis-
störf í Reykjavík frá júní 1929 til marz 1931. Hann var skipaður héraðs-
læknir í Reyðarfjarðarhéraði 11. apríl 1931; frá 2. febrúar 1940 skipað-
ur til að þjóna jafnframt sínu héraði nokkrum hluta Fáskrúðsfjarðar-
héraðs og enn fremur Hróarstunguhéraði frá 5. júní 1942, aftur 30.
janúar 1943 og enn frá 18. sept. 1944; skipaður héraðslæknir í Kefla-
vík 21. sept. 1956 frá 1. okt., veitt lausn vegna veikinda 16. nóv. 1957
frá 1. jan. 1958, og fluttist hann þá til Reykjavíkur. Hann var ráðinn
aðstoðarlæknir í Helluhéraði frá 1. okt, 1961. Hann var kennari við