Læknablaðið - 01.12.1969, Blaðsíða 69
LÆKNABLAÐIÐ
235
misjafnar. Hefur nú verið ákveðið, að skrifstofan annist innheimtu og
bókfærslu fyrir 5% af iðgjöldum frá og með 1. apríl 1969.
Skattamál í skattamálanefnd eru Hannes Þórarinsson, Ólafur Jónsson
og Ófeigur J. Ófeigsson. Aðalskattamál lækna snerust um
lífeyrissjóðinn, bifreiðakostnað, kostnað vegna námsferða til útlanda,
hóptryggingu lækna og tillag til hins nýstofnaða Námssjóðs spítala-
lækna. Það kom í ljós, þegar skattskráin var birt sumarið 1968, að
mjög mikið misræmi var á meðferð Skattstofunnar á ýmsum kostnaðar-
liðum.
Framkvæmdastjóri Læknafélagsins átti tal við skattstjórann í
Reykjavík og fulltrúa hans um þessi mál, skömmu eftir að skattskrá
haíði verið lögð fram. Var honum þá tjáð, að framtöl lækna mundu
öll verða endurskoðuð að hausti. Hinn 10. júlí 1968. ritaði framkvæmda-
stjóri Læknafélagsins skattstjóranum í Reykjavík eftirfarandi bréf:
„Nokkrir félagsmenn í L.R. hafa snúið sér til stjórnar félagsins
vegna breytinga, er gerðar hafa verið á skattframtölum þeirra árið
1968, með beiðni um, að Læknafélagið léti þessi mál til sín taka með
greinargerð eða viðræðum við skattayfirvöld.
Læknafélagið lét gera athugun á því, í hverju þessar þreytingar
væru aðallega fólgnar, og kom þá í Ijós annars vegar, að nokkurt mis-
ræmi er í meðferð framtala lækna, er gegna svipuðum eða sams konar
störfum, og hins vegar, að vikið hefur verið frá reglum, er gilt hafa um
frádrátt rekstrarkostnaðar hjá læknum undanfarin ár. Er þar einkum
um að ræða bifreiðakostnað og kostnað vegna námsferða til útlanda.
A. Bijreiöakostnaður
Undanfarin ár hefur Skattstofan haft þann hátt á að draga frá
tilfærðum bifreiðakostnaði 15% vegna einkaafnota bifreiðar, og hafa
læknar talið þá reglu eftir atvikum sanngjarna. Nú hefur hins vegar
verið tekin upp sú regla, einkum að því er varðar spítalalækna, að
leyfa einungis til frádráttar af bifreiðakostnaði visst hlutfall af praxís-
tekjum (í flestum tilfellum 10%).
Þessu vill félagið mótmæla og bendir á í því sambandi, að sjúkra-
húslæknar þurfa eigi síður á bifreið að halda en t. d. þeir læknar, sem
stunda heimilislækningar. Sjúkrahúslæknar hafa hvað mesta vakt-
skyldu allra lækna, þar sem þeir að meðaltali þurfa að standa vaktir
þriðja hvern sólarhring árið um kring og þurfa iðulega að komast á
spítalann hvað eftir annað á sömu vaktinni með sem allra minnstum
fyrirvara. Þá hafa margir spítalalæknar opna lækningastofu og þurfa
að sinna nokkuð vitjunum á heimilum sjúklinga.
B. Kostnaður vegna námsferða
Hjá nokkrum læknum hefur ekki verið leyfður til frádráttar
kostnaður vegna námsferða til útlanda, einkum að því er virðist á
þeirri forsendu, að læknar fari stundum slíkar ferðir árlega og ekki
sé gerð nægileg grein fyrir ferðakostnaðinum.
Vegna starfs síns er læknum nauðsyn á að fylgjast vel með nýj-
ungum í grein sinni, enda er þeim samkv. lögum skylt að viðhalda