Læknablaðið - 01.12.1969, Blaðsíða 68
234
LÆKNABLAÐIÐ
Borg eins og venja er til. Um svipað leyti herjaði hér inflúenzufaraldur,
og hafði borgarlæknir lýst yfir því, að óráðlegt væri að stofna til mann-
fagnaðar, sérstaklega þar sem saman væru komnir margir úr sömu
fjölskyldu, svo sem á sér stað á barnaskemmtunum. Með titlliti til
þessa þótti stjórn félagsins ekki tilhlýðilegt annað en aflýsa skemmtun-
inni. Nokkrar birgðir af leikföngum höfðu þegar verið keyptar, og
munu þær verða geymdar til næsta árs.
Lyfjanefnd í nefndinni eru Ólafur Jónsson formaður, Þorkell Jóhann-
esson og Ófeigur J. Ófeigsson.
Nefndin hélt þrjá fundi á árinu og tók til umræðu ófremdarástand
það, er ríkir í lyfsölumálum borgarinnar varðandi næturþjónustu. Til-
mæli um umsögn um þessi mál bárust frá borgarráði. Nefndarmenn
voru eins og áður á einu máli um að mótmæla núverandi skipan þess-
ara mála og óskuðu úrbóta, og var erindi um það sent til borgarráðs,
borgarlæknis, landlæknis og Apótekarafélagsins, en árangur er enginn
enn sem komið er. Hér virðist því hafa verið vakinn upp draugur ill-
vígari en svo, að venjulegar baráttuaðferðir dugi til að kveða hann
niður.
Bókasafnsnefnd Nefndina skipa Ásmundur Brekkan, Tómas Á. Jón-
L.í. og L.R. asson og Gunnlaugur Snædal.
Nefndin hefur haldið nokkra fundi á árinu innan
samstarfsnefndar um læknisfræðibókasafn, sbr. ársskýrslu L.Í., sem
birtist í Lbl. í desember 1968.
Síðan sú skýrsla var gefin út, hafa verið haldnir fleiri fundir og
undirbúin drög að samvinnu um samskráningu allra læknatímarita í
landinu.
Hóptrygging Frá 1966 hefur Læknafélag Reykjavíkur keypt hóptrygg-
lækna ingu fyrir þá félaga sína, sem þurftu á slíkri tryggingu
að halda. Kjarninn í þeim hópi voru upphaflega þeir
sérfræðingar og aðrir læknar, sem sögðu upp störfum sínum við rikis-
spítalana árið 1966. Hóparnir eru nú orðnir tveir, og er tryggingin
keypt af Hagtryggingu h.f. Hefur Læknafélagið verið ábyrgt fyrir
greiðslum til tryggingafélagsins.
Skrifstofa læknafélaganna hefur séð að öllu leyti um innheimtu
iðgjalda. Um helmingur iðgjaldanna kom inn tiltölulega fyrirhafnar-
lítið, þar sem þeim var haldið eftir af föstum launum. Hinn helming-
inn þurfti að innheimta hjá einstökum læknum með töluverðri fyrir-
höfn. Fyrir þessi störf, innheimtu og bókfærslu, hefur skrifstofan aldrei
fengið neinar greiðslur. Augljóst er, að við svo búið má ekki standa.
Var því gerð fyrirspurn til Hagtryggingar h.f., hve mikils þeir mundu
krefjast, ef þeir tækju að sér innheimtu iðgjaldanna. Buðust þeir að
gera það fyrir 10% af iðgjöldum. Á sameiginlegum fundi stjórna
Læknafélags íslands og Læknafélags Reykjavíkur 24. janúar 1968 var
ákveðið að sameina hópana. Með því fengist jöfnuður í iðgjaldagreiðsl-
um, en vegna mismunandi aldursdreifingar í hópum höfðu þær verið