Læknablaðið - 01.12.1969, Blaðsíða 53
LÆKNABLAÐIÐ
227
Fyrsti fundurinn fjallaði um reglugerð fyrir veitingu lækninga-
leyfa og sérfræðileyfa. Á þeim fundi kom fram allmikil gagnrýni
á núverandi reglugerð fyrir veitingu sérfræðileyfa. Upplýstist á þeim
fundi, að endurskoðun þessarar reglugerðar stæði þegar fyrir dyrum
og læknadeild Háskóla íslands hefði tilnefnt mann í nefndina. Fundur-
inn gerði þá tillögu, að fulltrúi yngri læknanna, sem enn hefðu ekki
fengið sérfræðiviðurkenningu, fengi sæti í nefndinni, og var Jón G.
Stefánsson tilnefndur af læknadeild; þá hafði menntamálaráðuneytið
tilnefnt mann af sinni hálfu. Fulltrúi Læknafélags íslands var tilnefnd-
ur skömmu fyrir umræddan fund. Nefnd þessi hefur nú samið drög að
nýrri reglugerð, og munu þær tillögur vera í athugun hjá hinum ýmsu
sérfræðifélögum og öðrum aðilum.
Einn aukafundur var haldinn um tillögu læknisþjónustunefndar
Reykjavíkurborgar. Höfðu tillögur þeirrar nefndar verið samþykktar
í borgarráði í aprílmánuði 1968. Helztu atriði tillagna þeirrar nefndar
voru eftirfarandi:
1) Heimilislækningar verði teknar upp sem kennslugrein við Há-
skóla íslands.
2) Heimilislækningar verði gerðar að sérgrein innan læknisfræð-
innar.
3) Stuðlað verði að hópsamvinnu lækna.
4) Komið verði á fót læknamiðstöðvum.
5) Komið verði á hverfaskiptingu í borginni.
Fyrir þennan umræðufund hafði verið rætt um tillögur þessar í
stórráði, og lagði stjóm félagsins svofellda tillögu fram á fundinum:
„Almennur aukafundur, haldinn þriðjudaginn 1. október 1968,
lýsir sig samþykkan eftirfarandi meginatriðum í tillögum læknisþjón-
ustunefndar Reykjavíkurborgar frá 18.4. 1968:
1) að tekin verði upp kennsla í heimilislækningum,
2) settar verði reglur um fræðilega og starfslega viðurkenningu
í heimilislækningum,
3) stuðlað verði að hópsamvinnu lækna,
4) stuðlað verði að skiptingu borgarinnar í læknasvæði“.
Tillaga þessi var samþykkt, og var af hálfu Læknafélags Reykja-
víkur kosinn ísak G. Hallgrímsson í nýja nefnd, sem einnig ber nafnið
læknisþjónustunefnd Reykjavíkurborgar og á að vinna að framkvæmd
ofangreindra titllagna.
Vegna tilkomu hinna nýju laga um bókhaldsskyldu lækna var
haldinn einn fundur um það mál. Ólafur Nílsson skattrannsóknastjóri
gerði félaginu þann greiða að skýra helztu atriði þessara laga fyrir fé-
lagsmönnum.
Stjórnarfundir voru á starfsárinu alls 40, auk þess nokkrir sam-
eiginlegir fundir með stjórn Læknafélags íslands.
Félagsgjöld Á síðasta aðalfundi var samþykkt, að árgjald L.R. héldist
óbreytt, kr. 7.500.00, þó með þeim fyrirvara, að ef aðal-
fundur L.í. 1968 samþykkti reglugerð fyrir Styrktarsjóð lækna með
kr. 600.00 árstillagi, þá yrði að sjálfsögðu að bæta þeirri upphæð við
árgjaldið. Til innheimtu kæmu því kr. 8.100.00.