Læknablaðið - 01.12.1969, Blaðsíða 70
236
LÆKNABLAP/IÐ
menntun sinni. Kostnaður vegna umræddra námsferða hefur fram að
þessu verið leyfður til frádráttar að fullu án tillits til, hvort læknar
fari árlega eða sjaldnar.
Um ákvörðun kostnaðarins er það að segja, að talinn er til frá-
dráttar beinn kostnaður vegna námsferðar, þ. e. fargjald, ferðatrygg-
ing og dvalarkostnaður, sem svarar £ 10 á dag, en það mun vera sú
upphæð, sem opinberir starfsmenn fá í dagpeninga vegna ferða til út-
landa á vegum hins opinbera.
Læknar munu að jafnaði ekki hafa haldið til haga reikningum
vegna þessara ferða, en munu að sjálfsögðu gera það framvegis, ef
óskað verður.
Samkv. framansögðu er þess farið á leit, að kostnaður vegna
námsferða verði að fullu leyfður til frádráttar án tillits til, hversu
oft er farið.
C. Hóptrygging lœkna
Allmargir læknar hafa keypt svokallaða hóptryggingu, en hún
felur í sér líf-, slysa- og sjúkratryggingu. Skattstofan hefur yfirleitt
fært þennan kostnaðarlið í kr. 6000.00, sem er hámarksfrádráttur vegna
líftryggingar hjá þeim, sem greiða í lífeyrissjóð. Þar sem tryggingin er
víðtækari en venjuleg líftrygging, virðist koma til álita að leyfa þenn-
an lið til frádráttar að fullu.
D. Námssjóður lœkna
Hjá nokkrum læknum hefur ekki verið leyft til frádráttar tillag
til Námssjóðs, en hann er þannig til kominn, að sjúkrahúslæknar
leggja til hliðar hluta af launum sínum í Námssjóð sjúkrahúslækna og
fá endurgreitt úr honum, er þeir fara í námsferðir eða á læknaþing er-
lendis. Kemur þá sú upphæð til tekna á skattframtali á sama ári og
hún er notuð. Er þetta í samræmi við það, sem tíðkazt hefur um Náms-
sjóð samlagslækna, en þar er tillag til Námssjóðs ekki innifalið í upp-
gefnum launum, heldur gefið upp, þegar úthlutun úr sjóðnum fer
fram.
Við væntum þess, að Skattstofan taki þessar athugasemdir til
greina og hafi þær til hliðsjónar við úrskurðun á framtölum lækna nú
í ár.“
Bréfi þessu var aldrei svarað formlega, en ítrekað var við fram-
kvæmdastjóra félagsins, að þessi mál yrðu tekin til endurskoðunar að
hausti.
Formaður L.R. og læknarnir Árni Björnsson og Víkingur H. Arn-
órsson gengu tvívegis á frmd ríkisskattstjóra vegna fyrrnefnds misræm-
is á skattálagningu. Strax í upphafi lýsti skattstjóri yfir þeirri skoðun
sinni, að kostnaður vegna námsferða ætti að vera frádráttarbær og
skipti ekki máli, hve margar ferðir væru farnar, en gera yrði grein
fyrir ferðinni.
Skattstjóri bað um ýmis gögn um lifeyrissjóð, námssjóð og hóp-
tryggingu. Enn fremur bað hann um greinargerð um það, hvaða lækn-
ar þyrftu á bíl að halda í starfi og að síðustu bað hann um tillögur
um uppihaldskostnað lækna í námsferðum. Aflaði framkvæmdastjóri