Læknablaðið - 01.12.1969, Blaðsíða 51
LÆKNABLAÐIÐ
225
Einar Helgason sagði: Lífeyrissjóður lækna nær ekki til hinna
mörgu ekkna, sem nú lifa við þröngan kost. Þeirra vandamál eru óleyst
þrátt fyrir hinn nýja lífeyrissjóð.
Gunnlaugur Snædal taldi miður, að fundargerðir væru ekki lesnar,
en það hefði farið svo mikill tími í það, að samþykkt hefði verið að
lesa aðeins útdrátt og síðan hefði það einnig fallið niður.
Snorri P. Snorrason taldi, að lestur fundargerða setti sinn svip á
fundarstarfið, en þær hefðu reynzt of langar; taldi rétt, að lesinn yrði
útdráttur hverrar fundargerðar í byrjun hvers fundar.
Þá fór fram kosning í meðstjórn.
Tillaga stjórnar L.R. um meðstjórnendur var borin upp á síðasta
almenna fundi. Fleiri tillögur komu ekki fram. Voru því sjálfkjörnir
þeir Halldór Steinsen, Einar Baldvinsson, Guðmundur Björnsson, Grím-
ur Jónsson, Guðjón Klemenzson og ísak Hallgrímsson.
Stjórn Ekknasjóðs var endurkjörin, þeir Ólafur Einarsson, Halldór
Hansen og Bergsveinn Ólafsson.
Stjórn Heilsufræðisafnssjóðs var endurkjörin: Ólafur Helgason,
Bjarni Jónsson og Björn Önundarson.
Endurskoðendur voru kosnir Tómas Árni Jónasson og Guðmundur
Eyjólfsson; til vara Hannes Þórarinsson og Björgvin Finnsson.
Tilnefndir fulltrúar á aðalfund L.í. 1969: Arinbjörn Kolbeinsson,
Stefán Bogason, Sigmundur Magnússon, Friðrik Sveinsson, Árni Björns-
son, Víkingur H. Arnórsson og Gunnlaugur Snædal. Til vara: Jón Þor-
steinsson, Páll Sigurðsson, Guðjón Lárusson, Þorgeir Gestsson, Guð-
mundur B. Guðmundsson, Jón Þ. Hallgrímsson og Þorbjörg Magnús-
dóttir.
Árgjald: Stefán Bogason lagði til, að árgjald væri óbreytt; var það
samþykkt með öllum greiddum atkvæðum.
Centromet: Formaður greindi frá fyrirhugaðri stofnun þessa inn-
kaupafélags og að heimild fundar þyrfti til þess, að L.R. gæti gerzt að-
ili að þessu ásamt L.í.
Gunnlaugur Snædal skýrði nánar hugmyndina að þessu innkaupa-
sambandi.
Sigmundur Magnússon sagði, að erindi um þetta yrði auglýst í
fundarboði reglulegs fundar og þá rætt, þ. e. þessi fundur væri ekki
ályktunarfær.
Þá var lesin upp tillaga stjórnarinnar um heimild til þess að inn-
heimta félagsgjöld allra félagsmanna, hvar sem þeir fengju laun. Var
hún samþykkt einróma.
Sigmundur Magnússon ræddi um byggingarrétt ofan á háhýsi
Domus Medica, sbr. samþykkt á aðalfundi L.í. 1968. Kvað hann þetta
allmikla fjárhagslega skuldbindingu, en þetta mál væri á umræðustigi
og því rétt að kynna málið. Umræður um þetta efni urðu ekki meiri.
Formaður bar síðan fram þakkir til framkvæmdastjórans, Sigfúsar
Gunnlaugssonar, og Birnu Loftsdóttur, en þau hætta nú bæði störfum
hjá félaginu, en bauð hina nýju stúlku, Maríu Kristleifsdóttur, vel-
komna.
Fundi slitið kl. 23.20.
Fundinn sátu 31.