Læknablaðið - 01.12.1969, Blaðsíða 83
LÆKNABLAÐIÐ
247
Athugasemdir Menn kann að furða á því, að skýrsian skuli ekki nú
við félagatal sem alltaf áður byrja á fjölda félaga. Er ekki dæmið
fremur auðleyst? kann einhver að spyrja; þarf annað
en taka tölu síðustu stjórnar og bæta við hana þeim, sem gengu í félag-
ið á árinu, og draga frá þá, sem létust, og þá, sem fluttu af svæðinu,
ef þeir síðastnefndu teljast ekki áfram félagar, aðeins ógjaldskyldir.
Vissulega, ef allt hefði áður verið rétt tíundað.
Stjórnin fékk fljótlega grun um, að grundvöllurinn undir félaga-
tölum í síðustu ársskýrslum stæði ef til vill fremur völtum fótum. Var
þá farið að huga að spjaldskránni, og kom í ljós, að hún var raunar
lítið annað en skrá yfir þá, sem höfðu greitt til félagsins, eins konar
viðskiptamannabók. Samkvæmt félagslögum verður nýr félagi að sam-
þykkjast á félagsfundi, en á skránni voru margir, sem vitað var, að
höfðu aldrei sótt um inntöku í félagið, þótt þeir greiddu árgjöid, en
það eitt gerir engan að félagsmanni með kosningarétti og kjörgengi.
Stjórnin hefur nú flett í gegnum allar fundargerðir frá 1936 til
okkar tíma og skráð þá, sem þar kom fram, að hefðu verið samþykktir
i félagið, því að þeir einir eru samkvæmt félagslögum félagar, svo
fremi sem ekki hefur láðst að geta samþykktar á inntöku í fundargerð.
Þá kom og fram, að allmargar beiðnir um inntöku í félagið voru
í hirzlum þess, án þess sæjust merki í fundargerðum, að þær hefðu
verið lagðar fyrir fund. Hitt kom hins vegar einnig fyrir, að menn voru
samþykktir í félagið allt að þrisvar sinnum.
Stjórnin hefur ekki haft tíma til að kanna félagatalið það ýtarlega,
að hún geti gefið upp félagatal, sem hún sjálf telur rétt, og kýs því
fremur að sleppa því með öllu í þetta sinn. Hún mun hins vegar vinna
ötullega að því að koma málum þessum á hreint, svo að enginn burfi að
efast um réttindi lækna í félagi okkar.
Án rétts félagatals verður engin kjörskrá, sem mark er á takandi.
Stjórninni er ekki kunnugt um, að kjörskrá hafi verið gerð á síðustu
árum eða á nokkurn hátt reynt að fylgjast með því, hvort þeir, sem
þátt tóku í atkvæðagreiðslum, voru félagsmenn með fullum réttindum.
Þetta var ekki eins mikill vandi áður, meðan félagið var tiltölu-
lega mannfátt, því að stjórnin þekkti hvern mann og stöðu hans gagn-
vart félaginu. Nú er þessu ekki lengur til að dreifa, og því verður að
haga starfsháttum í samræmi við breyttar aðstæður.
Við athugun þessa kom einnig í ljós, að mikil þörf er nánari reglu-
gerðar um framkvæmd alla í sambandi við félagaskrá, innköllun ár-
gjalda o. fl. Hyggst stjórnin m. a. vinna að gerð hennar á næsta ári eða,
ef það þykir heppilegra, að fella reglurnar inn í lögin.
Lokaorð Ekki getur stiórnin státað af miklum stórvirkjum í samning-
um félagsins, því að þeir hafa í öllum meginatriðum verið
óbreyttir sem flest-allir aðrir kjarasamningar á þessu ári. Kaupgeta
launa lækna hefur því stórum minnkað, einkum vegna mikillar hækk-
unar á siglingakostnaði.
Á árinu 1967 var samþykkt að vinna að því að koma á lágmarks-
staðli á sjúkrahúsum í anda tillagna „krónisku“ nefndarinnar. Fyrsta
skrefið í því máli var stofnun læknaráðs við spítalana, Því er nú lokið