Læknablaðið - 01.12.1969, Qupperneq 58
230
LÆKNABLAÐIÐ
ingar á reksturskostnaði lækna, sem reiknaðar eru árlega út af fulltrúa
Hagstofu íslands.
2) Veikindaforföll verði færð til samræmis við reglur, sem gilda
um opinbera starfsmenn, þ.e.a.s. full laun séu greidd í 90 daga og hálf
laun í aðra 90.
3) Staðfestur verði sá skilningur milli aðila, að læknum sé heimilt
að hafa lækningastofu sína opna aðeins fimm daga í viku mánuðina
júní til september og þá mánuði þurfi þeir engum störfum að sinna
fyrir S.R. á laugardögum.
4) Helgidagavarzla verði frá kl. 8 á laugardögum, samkvæmt 5.
málsgrein 7. greinar. Breyta þurfi auk þess ákvæðum 5. málsgreinar 7.
greinar þannig, að einn læknir verði til viðtals á stofu í stað tveggja,
ef sama húsnæðið verði fyrir þessa þjónustu allt sumarið.
5) í 11. grein verði takmörk þau, sem gilda um. greiðslu fyrir
vitjun, miðuð við Elliðaár og Fossvogslæk (þ.e.a.s. skemmsta lína frá
mörkum Kópavogs við Elliðaár).
6) Staðfest verði bráðabirgðaákvæði milli S.R. og L.R. um praxís
tveggja lækna eða fleiri, sem hafa með sér samstarf um lækningar.
7) Breyting verði gerð á 12. grein samningsins vegna afnáms laga
um verðlagsuppbót á laun. Eins og kunnugt er, er fallin niður sú
skylda vinnuveitanda að greiða vísitöluuppbót á laun frá desember
1967.
Niðurstöður af samningaviðræðum urðu þær, að gengið var inn á
eftirfarandi atriði:
1) Hækkun á reksturskostnaði lækna verði reiknuð inn í taxta
samningsins samkvæmt ákvæðum þar að lútandi.
2) Varðandi 7. grein samningsins varð samkomulag um eftirfar-
andi: Varðlæknir á laugardögum mánuðina júní til september ár hvert
kemur inn á bæjarvakt eins og kvöld- og helgidagalæknir.
3) Einn læknir a.m.k. skal vera á þessu tímabili á laugardögum til
viðtals tvær klukkustundir á stað, sem skal ákveðinn fyrir hvert sum-
ar.
Um aðrar breytingar á samningnum var því ekki að ræða, sem
máli skiptu.
Athygli skal vakin á því, að fyrst á árinu 1968 varð sú breyting
gerð með reglugerð frá félagsmálaráðuneytinu, að heimilislæknar fengu
greiddar 25 kr. fyrir viðtal á stofu og fyrir símalyfseðil í stað 10 kr.
áður, og 50 kr. fyrir vitjun í stað 25 kr. áður. Fastagjald lækkaði frá
sama tíma um 3 kr. pr. númer á mánuði.
Nokkrir erfiðleikar urðu á framkvæmd samningaviðræðna fyrir
lækna í Keflavík og Njarðvíkum, en þeir fóru fram á breytingar á
greiðslum fyrir ferðir til Grindavíkur, en greiðslur fyrir þau störf höfðu
verið miðuð við ákveðinn fólksfjölda, sem síðan hefur aukizt. Enn
fremur vildu þeir fá lagfæringar á fjarlægðargjöldum fyrir lengri ferð-
ir. Nefndin hefur enn ekki getað lokið samningum, sem eru enn óundir-
ritaðir.