Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.12.1969, Page 80

Læknablaðið - 01.12.1969, Page 80
244 LÆKNABLAÐIÐ bréf, þar sem farið var fram á það við hann, að hann tæki ekki við stöðunni nema með þeim fyrirvara, að laun færu eftir kjarasamning- um, er L.R. gerði. Samrit af bréfi þessu var sent heilbrigðismálaráð- herra, og stjómarnefnd ríkisspítalanna. Hefur Haukur sýnt lofsverðan félagsþroska með því að fara í einu og öllu eftir tilmælum félagsins í máli þessu. Þótt nú séu liðnir margir mánuðir frá því, að veita átti stöðuna, hefur enn ekkert gerzt í því máli, þar sem heilbrigðisstjóm virðist vera algjörlega mótfallin því að greiða yfirlæknum laun skv. kjarasamning- um, er Læknafélagið gerir. Er hörmulegt til þess að vita, að heilbrigðis- málaráðherra skuli telja formið á launagreiðslum meira virði en þá þjónustu, sem til stendur að veita. Þeim mun athyglisverðari er þessi afstaða ráðherrans og stjórnarnefndar ríkisspítalanna, þegar tillit er tekið til þess, að Haukur hefur tilkynnt ráðherra og stjórnamefndinni, að hann muni ekki hætta störfum á Reykjalundi að öllu leyti, og sé því ekki falur til fulls starfs á Landspítalanum. Hefði mátt ætla, að þeir hefðu séð sér leik á borði að gera samning, sem grundvallaðist á eykta- samningnum, en hann er einkanlega vel fallinn til ráðningar manna, sem starfa hluta úr degi. Bæjarvakt Á þessu ári, svo og sem á síðasta ári, hefur kvöld- og nætur- vaktirnar mjög borið á góma. Sú óheillavænlega þróun varð, að læknavaktinni var útskúfað frá samstarfi við Slysavarðstofu Reykjavíkur, er hún fluttist úr Heilsuverndarstöðinni í Borgarspítal- ann nýja. Stjórn og meðstjóm ræddi álit fyrri stjórnar á tengslum vaktarinnar við aðra þjónustu í bráðum sjúkdómum og slysum. Leiddi þetta til þess, að hinn 6.6. 1968 var stjórnarnefnd ríkisspítalanna sent bréf til þess að kanna möguleika á, að komið verði upp slysa- og mót- tökudeild í Landspítalanum, þar sem læknavakt félagsins hefði einnig aðsetur. Þeirri málaleitan hefur enn ekki verið svarað af hálfu stjórnar- nefndarinnar. Læknavaktin hefur síðan verið til húsa í sömu húsakynnum og áður. En kostur hennar hefur sífellt farið versnandi, þar sem ýmsar byggingaframkvæmdir hafa farið fram á staðnum. Þar mun nú ætlunin að setja upp tannlæknaþjónustu fyrir skólabörn borgarinnar, svo og leiðbeiningarstöð kirkjunnar um hjúskaparmál. Fýrirsjáanlegt er, að einnig þarna verður læknavaktinni úthýst, ef ekki tekst að semja um, að hún megi vera þar áfram. Starfsemi þeirri, sem fyrirhuguð er þarna, mun allri lokið kl. 5, þegar kvöldvaktin tekur til starfa. Gunnar Möller, framkvæmdastjóri Sjúkrasamlagsins, hefur staðið í nánum tengslum við stjórn félagsins út af vakt þessari, og hefur hann látið í ljós mikinn áhuga á að leysa þennan vanda með sem minnstum tilkostnaði. Hann hefur meðal annars reynt að koma vaktinni inn á Slökkvistöð Reykjavíkur, en því v,ar synjað. Stjórn og meðstjórn ræddu mál þetta á fundi 4.11., og voru allir sammála um, að aðstaða vaktarinnar mætti ekki versna frá því, sem verið hefði. Var Gunnari Möller, framkvæmdastjóra Sjúkrasamlagsins, sent bréf þar að lútandi, og lýkur því með eftirfarandi grein:
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.