Læknablaðið - 01.08.1973, Side 3
BURONIE
Metýlperonklorið
Buronil er
upphafleg framleiðsla
frá Ferrosan.
Buronil‘25
mg
100 Lbl.tte,
Buronil' 25 mg
Buronil er sefandi lyf (psychososedativum) með breitt
verkunarsvið. Pað er bútýrfenónafbrigði.
Buronil hefur ekki andadrenerga verkun. Hætta á blóð-
þrýstingslækkun í uppréttri stöðu er þess vegna lítil.
Er þetta atriði mikilvægt, þegar um er að ræða með-
ferð á gömlum sjúklingum með aðakölkun og fólki,
sem þjáist af of háum blóðþrýstingi.
Andkólínerg verkun er lítil og aukaverkanir eins og
t.d. þurrkur í munni, hágðatregða og örðugleikar við
þvaglát koma þess vegna sjaldan fyrir.
Aukaverkanir frá miðtaugakerfi koma sjaldan fyrir og
eru ekki örðugar viðfangs.
Ábendingar:
Dementia senilis með óró.
Kvíði og órói við t.d. oligophrenia og psychoneuroses.
Fráhvarfseinkenni eftir áfengisdrykkju.
Geðklofi og ásamt öðrum lyfjum við meðferð á
geðdeyfð.
Skammtar:
Ef sjúkdómsástandið er ekki mjög alvarlegs eðlis, er
oftast nægjanlegt að gefa 25-150 mg á dag. Ef sjúk-
dómsástandið er alvarlegs eðlis, þarf oftast að gefa
mun stærri skammta, venjulega 200-600 mg á dag.
Pakkningar:
^e"»osa,n _— Töflur á 5 mg og 25 mg, 50 eða 100 töflur í glasi.
Töflur á 0.1 g, 50 töflur i glasi.
Stungulyf, 25 mg/ml, amp. 2 ml X 10.
E FERROSAN
N—^ Umboð á Islandi
G. Ólafsson h.f.
Aðalstræti 4 - Reykjavík