Læknablaðið - 01.08.1973, Blaðsíða 11
LÆKNABLAÐIÐ
137
1/1
0)
U)
ro
u
0)
-O
E
n
Conc in blood . pg/mt
Fig. 4.
The concentration of barbituric acid deri-
vatives in blood (ng/ml) of 35 individuaís
where post niortem analysis revealed the
presence of one of the following deriva-
tives: Mebumal (Pentobarbital; 24 cases),
Allypropymal (Aprobarbital; 7 cases) and
Pentymal (Amobarbital; 4 cases). Roman
numbers above each column refer to the
text.
Fentíazínsambönd í þvagi voru ákvörð-
uð með aðferð Forrest & Forrest.13 Ákvarð-
anir á klórali, amítriptýlíni og nortriptýlíni
voru vinsamlegast gerðar á lífefnafræði-
deild Réttarlæknisfræðistofnunar Kaup-
mannahafnarháskóla.
NIÐURSTÖÐUTÖLUR OG
ATHUGANIR
í safninu eru alls 39 einstaklingar (19
karlar og 20 konur), er létust á 5 ára tíma-
bili frá hausti 1966 og til hausts 1971 og
komu til rannsóknar á Rannsóknastofum
Háskóla fslands í lyfjafræði og meinafræði
á greindu tímabili með tilliti til barbítúr-
sýrueitrunar. Var meðalaldur þeirra tæp-
lega 49 ár (27-76 ár). Af þeim höfðu sam-
tals 35 tekið mebúmal (eða mebúmal-
natríum), allýprópýmal eða pentýmal, en
að auki 4 fenemal eða díemal. Dreifing
eftir árum var þessi (fjöldi einstaklinga í
svigum): 1966 (4), 1967 (4), 1968 (6),
1969 (10), 1970 (6), 1971 (9).
Pentýmal verður ekki með vissu greint
frá mebúmali við blettagreiningu á þynnu,
sbr. að framan. Gæti þannig hugsanlega
verið um pentýmal að ræða í einhverju
þeirra tilvika, þar sem um mebúmal var
talið vera að ræða, enda þótt engar við-
hlítandi upplýsingar séu því til stuðnings.
Mebúmal kom við sögu í 24 tilvikum,
allýprópýmal í 7 tilvikum og pentýmal í
4. Eiturhrif' þessara þriggja barbítúrsýru-
sambanda eru í reynd svo svipuð, að fjalla
má um þau sameiginlega. Eru því þeir ein-
staklingar, sem tóku þessi lyf, felldir undir
einn hatt og rætt um þá sameiginlega.
Mynd 4 sýnir, hversu einstaklingar í safn-
inu dreifðust eftir því, hve magn þessara
þriggja barbítúrsýrusambanda í blóði var
mikið. Hver hópur er merktur rómverskri
tölu til hægðarauka hér á eftir.
Hópur I:
5 míkróg/ml eða minna (allýprópýmal 1;
mebúmal 2). Einn hafði lokað sig inni síð-
ustu dagana fyrir andlátið. Við krufningu
fannst stækkun á hjarta (hypertensio
arterialis) og bráð bólga í berkjum og
barka. Aikóhól var í óverulegu magni í
blóði. Annar var með verulegt magn alkó-
hóls í blóði og þvagi (1,43%c og 2,33%0) og
í blóði og þvagi hins þriðja var magn
alkóhóls mjög mikið (4,82%0 og 6,08%o).
Hópur II:
Meira en 5 míkróg/ml til og með 10
míkróg/ml (mebúmal 7). Þrír voru tald-
ir hafa verið drykkfelldir og var mjög veru-
legt magn alkóhóls í blóði (1,69%0, 2,04%o)
og þvagi (2,65%0, 2,80%o) tveggja þeirra.
í blóði og þvagi hins fjórða var einnig
nokkurt magn alkóhóls (0,81%o, 1,37%cc).
Fimmti virtist hafa látizt úr lungnabjúg
og hjartabilun. í blóði þess sjötta var einn-
ig verulegt magn klórals (560 mg/1) og
nokkurt magn amítriptýlíns og nortriptýl-
íns var í þvagi (ca. 6 mg/1). í þvagi þess
sjöunda var verulegt magn fentíazínsam-
banda, er svara myndi til þess, að hann
hefði tekið að minnsta kosti 0,3 g af klór-
prómazíni á dag.
Hópur III:
Meira en 10 míkróg/ml til og með 15
míkróg/ml (allýprópýmal 2; mebúmal 5;
pentýmal 1). Fjórir voru taldir hafa mis-
notað lyf í lengri eða skemmri tíma. Einn