Læknablaðið - 01.08.1973, Blaðsíða 10
136
LÆKNABLAÐIÐ
rannsókn. Ef um pentýmal eða um allý-
própýmal er að ræða, er skekkjan óveru-
leg. Ef um díemal eða fenemal er að ræða,
er skekkjan að jafnaði meiri en svo, að not-
ast megi við kúrfuna.
Ef barbítúrsýrusambönd eru ekki til
staðar, á ekki að sjást munur á ljósfalii
við 260 nm við mismunandi pH. Við rann-
sóknir á blóði, er ekki inniheldur barbítúr-
sýrusambönd, hefur þó stundum komið
fram nokkur munur á ljósfalli við þessa
bylgjulengd, þegar pH er breytt frá 13 og
í 10. Telst svo til, að skekkja þessi geti
svarað allt að því 1,6 míkróg af barbítúr-
sýrusamböndum í ml blóðs.
Ef salicýlsýra, súlfónamíð eða glútarímíð
eru til staðar, má greina mun á ljósfalli
við 260 nm við pH 10 og pH 13. Geta þessi
efni því hugsanlega truflað ákvörðun á
barbítúrsýrusamböndum. Ljósfallsferlar
þessara efna eru á hinn bóginn verulega
frábrugðnir ljósfallsferlum barbítúrsýru-
sambanda (sbr. mynd 2) og dyljast þau
því ekki. Glútarímíð eru óstöðug í basískri
lausn og sundrast þannig fljótt við pH 13.
Salicýlsýru og að nokkru leyti súlíónamíð
má fjarlægja með fosfatdempi (fosfat-
búffer).4
Við höfum einungis ákvarðað barbítúr-
sýrusambönd í blóði. í vissum tilvikum
getur þó verið kostur að ákvarða barbítúr-
sýrusambönd í lifur, þar eð magn þeirra
er þar oftast helmingi meira en í blóði.
Magn barbítúrsýrusambanda í heila og
blóði er hins vegar nokkuð svipað.1
Blettagreining á þynnu
(thin layer chromatography)
Með blettagreiningu á þynnu má greina
á milli margra barbítúrsýrusambanda með
allmikilli vissu. Við höfum notað bletta-
greiningaráhöld frá Camac. Sjálf þynnan
er 0,3 mm þykkt lag af Slicagel G, Merck,
sem smurt er annars vegar á glerplötu
(20x20 cm). Greiningarkerið er að veru-
legu leyti klætt með síupappír og mettað
með 100 ml af skriðvökva (klóróform og
acetón í hlutfallinu 9 á móti 1) í ca. 1 klst.
Lausnir, sem gerðar hafa verið á ljósfalls-
mælingar (sbr. að framan) og innihalda
barbítúrsýrusambönd, eru gerðar vínsúrar
og síðan er úthlutað með etra. Að því
búnu er etrafasinn látinn gufa upp, og er
þá barbítúrsýrusambönd að finna í leif-
inni. Leiíin er leyst í 300 míkról af meta-
nóli eða minna. 5-50 míkról af metanól-
lausninni er komið íyrir með venjulegum
hætti á þynnunni í tölusettum ósum hreyf-
anlegrar hjálparstiku, svo og 5-10 míkról
af þekktum barbítúrsýrusamböndum í
0,1% metanóllausn. Að svo búnu er plat-
an (plöturnar) sett í kerið og efnin greind
sundur með uppsækinni blettagreiningu,
unz skriðvökvinn hefur farið 100 mm upp
þynnuna að markalínu. Plöturnar eru nú
teknar úr kerinu og þurrkaðar. Blettirnir
eru framkallaðir með því að úða á þynn-
una 1% merkúrónítratlausn. í þessu kerfi
hafa eítirtalin barbítúrsýrusambönd rás-
gildi, sem hér segir: Allýprópýmal (0,33),
díemal (0,29), fenemal (0,31), meballýmal
(0,51), mebúmal (0,44) og pentýmal
(0,45). Verða því pentýmal og mebúmal
ekki greind í sundur í þessu kerfi.
Á síðustu árum hefur gasgreining á súlu
(gaskrómatógrafía) verið að ryðja sér til
rúms við ákvörðun og greiningu á barbítúr-
sýrusamböndum.1 Hefur þessi aðferð aug-
ljósa kosti umfram eldri aðferðir, en er í
stofnkostnaði mjög dýr.
Alkóhólákvarðanir. Leitað var að alkó-
hóli í blóði og þvagi í öllum tilfellum og
var notuð til þess aðferð Brinks, Bonnich-
sens og Theorells:l nokkuð breytt. Aðferð
þessi byggist á því, að alkóhóldehýdró-
genasi oxar alkóhól í acetaldehýð, ef til
staðar er kóenzýmið NAD (nikótínadenín-
dínúkleótíð), er afoxast (redúcerast) í
NADH. Magn NADH, er myndast, er hlut-
fallslegt við það magn alkóhóls, er var til
staðar. NADH gefur greinilegt Ijósfall í
sýnilegu ljósi við ca. 340-365 nm. Aðferð
þessi er mjög sérhæf og hefur ýmsa aðra
góða kosti. Enzýmið getur hins vegar ver-
ið breytilegt og er því nauðsynlegt að nota
margar standlausnir og oftlega. Með til-
komu gasgreiningar alkóhóls á súlu hér
á landi á síðasta hausti hefur þessi aðferð
að verulegu leyti misst gildi sitt.
Mepróbamat,37 38 klórdíazepoxíð23 og
díazepam0 voru ákvörðuð (semíkvantíta-
tíft) með blettagreiningu á þynnu. Leitað
var að mepróbamati í 18 tilfellum, klór-
díazepoxíði í 11 og díazepami í 25 tilvik-
um.