Læknablaðið - 01.08.1973, Blaðsíða 47
LÆKNABLAÐIÐ
161
3. Svo virðist sem aðeins sjöfaldur lækn-
ingaskammtur mebúmals geti einn vatd-
ið dái og dauða, ef sjúklingurinn kemst
ekki undir læknishendur.
4. Jafnvel lækningalegir skammtar barbí-
túrsýrusambanda geta valdið dauða, ef
neytt er samtímis alkóhóls eða annarra
slævandi lyfja.
Vart verða bornar brigður á, að svefn-
lyfja er oft þörf. Starfandi læknum er mikill
vandi á höndum að gæta hófs um ávísun
þeirra, því að ásókn fólks er mikil. Lækn-
um ber að varast að ávísa svefnlyfjum við-
stöðulaust til sjúklinga annarra lækna. Var-
ast ber að ávísa miklu magni þessara lyfja
í einu. Á sjúkrahúsum má það ekki þekkjast,
að svefnlyfjum sé troðið upp á sjúklinga
strax fyrsta kvöldið til þess að tryggja þeim
svefn. Fræða þarf almenning um hætturnar
af töku þessara lyfja og ekki sízt vara við
neyzlu alkóhóls samtímis töku svefnlyfja.
Hér er heilbrigðisyfirvöldum skylda á hend-
ur lögð.
Um svefnlyfin gildir sú gullvæga regla í
ríkum mæli að gæta þess, að meðferðin
geri ekki meiri skaða en gagn.
FRÁ LANDLÆKNI
LÆKNASTÚDENTAR OG HÉRAÐS-
LÆKNISSTÖRF
Miklar umræður hafa orðið á undan-
förnum árum um læknaskort í dreifbýl-
inu. í vetur urðu umræður um þetta
vandamál á L.R. fundi, bar sem rætt var
um læknaskort og læknaliðun á íslandi.
Þá kom fram tillaga um, að dvöl lækna-
nema í héraði snemma í námi þeirra væri
líkleg til að vekja áhuga ungra lækna á
héraðslæknisstörfum.
Snemma í vor komu læknastúdentar,
sem lokið höfðu miðhlutanámi, en sam-
kvæmt reglugerð hafa þeir verið 3 ár í
deildinni, á landlæknisskrifstofuna og ósk-
uðu eftir dvöl í héraði. Fjölmörgum hér-
aðslæknum voru því send bréf og spurt
um, hvort þeir vildu. taka við stúdentum,
kenna þeim og leiðbeina. Allir aðspurðir
tóku vel erindinu og árangurinn af þess-
um bréfaskriftum varð sá, að í eftirtöld-
um héruðum munu um 30 stúdentar starfa
við hlið héraðslækna frá 15/6-15/9 1973:
Álafosshéraði,
Stykkishólmshéraði,
Patreksf j arðarhéraði,
Hvammstangahéraði,
Blönduóshéraði,
Akureyrarhéraði,
Húsavíkurhéraði,
Þórshafnarhéraði,
Egilsstaðahéruðum,
Seyðisf j arðarhéraði,
Hafnarhéraði,
Selfosshéraði,
Keflavíkurhéraði,
Akraneshéraði,
Vopnafjarðarhéraði.
Áætlunin er, að hver stúdent starfi í
einn mánuð. Verkefni þeirra eru:
1) Stúdentar starfi á stofu og kynnist
starfi héraðslæknis,
2) fari í vitjanir, en geti jafnframt ráð-
fært sig við viðkomandi lækni, ef svo
ber undir,
3) kynnist algengustu rannsóknaraðferð-
um,
4) kynnist aðstöðu fólksins og ekki sízt
vinnuaðstöðu héraðslæknanna.
Launin verða aðstoðarlæknislaun hér-
aðslæknis, en sveitarstjórnir hafa tekið vel
í að greiða fæðis- og húsnæðiskostnað
þeirra.
HÉRAÐSLÆKNABÚSTAÐIR, LÆKNA-
MÓTTÖKUR, SJÚKRASKÝLI OG
SJÚKRAHÚS
Á vegum landlæknisembættisins hafa
verið farnar vísitasíur til Skagafjarðar,
Húnavatnssýslu, Borgarfjarðarsýslu, Dala-
sýslu og Suðurlands. Á árinu 1972 var
farið til Þingeyrar, Flateyrar og Siglu-