Læknablaðið - 01.08.1973, Blaðsíða 33
LÆKNABLAÐIÐ
151
Ljósm.: Guðmundur Oddsson.
með aldrinum. Hún fékk lost og dó skyndi-
lega á Sjúkrahúsi Hvítabandsins 1967, 2
klst. eftir að hún var lögð inn. Hafði hún
verið lögð inn til meðferðar vegna polypus
cervicis uteri. Krufning leiddi ekki í ljós
dánarorsök. Æðar í ristli og smágirni voru
áberandi og blóðfylltar. Smásjárskoðun á
lifur sýndi væga periportal bólgu og stöku
granulomata. Endurskoðun á bessu ári
leiddi ekki í ljós æðagúla í lifur (Jónas
Hallgrímsson). Sj. var 170 cm á hæð og
grannvaxin. Lifur vó 1645 gr og milti 190
gr. Þessi líffæri voru því stækkuð.
VII, 25, f. 1892. Hefur fengið tíðar blóð-
nasir frá því hann man fyrst eftir sér.
Hann tók eftir rauðum blettum í andliti,
er hann var tæplega fertugur. Lagður inn
á Landakotsspítala árið 1945 vegna tjöru-
hægða og mikils blóðleysis. Röntgen-
myndataka af maga sýndi sár, og var þá
gerð resectio ventriculi. Blæðingar frá
meltingarvegi héldu þó áfram, og var
hann lagður inn á Landspítalann tveimur
árum síðar og var þá með tæplega 30%
blóð. Rendu-Osler-Weber sjúkdómur var
þá greindur af Óskari Þórðarsyni. Síðan
hefur sjúklingur fengið tíðar blóðgjafir á
Sjúkrahúsi Selfoss. Lá á Landspítala árið
1970 vegna blóðleysis. Hgb. var þá 9 gr%,
blóðflögur 119.000, biæðingartími og P-P
tími voru eðlilegir. Magaspeglun (Hauk-
ur Jónasson) sýndi telangiectasiur um all-
an maga. Skoðun í apríl 1972 leiddi í ljós
fölleitan mann með mergð æðagúla í and-
liti, á vörum, undir tungu, á gómbogum
og ennfremur á hálsi, bringu, baki, fingr-
um og undir nöglum. Hess próf var nei-
kvætt.
VIII, 9, f. 1937 hefur haft nefdreyra frá
12 ára aldri, þó ekki ýkja oft. Hinn 17/9
/71 var Hgb. 13,3 gr%. Nokkrar telangi-
ectasiur finnast á vörum og undir tungu.
VIII, 11, f. 1944 (sjá mynd). Árið 1963
veiktist sjúklingur snögglega og varlagður
inn á Landspítala vegna höfuðverkja,
krampa og hægri helftarlömunar. Bilateral
carotisangiographia, sem gerð var 29/1 ’63,
sýndi intracerebral blæðingu í temporc-
parietal svæði vinstra megin (Gunnar
Guðmundsson). Sjúklingur var sendur á
Ríkisspítalann í Kaupmannahöfn og blæð'-
ingin hreinsuð út. Carotisangiographia var