Læknablaðið - 01.08.1973, Blaðsíða 59
LÆKNABLAÐIÐ
167
Mesta hættan við aðgerðina hefur ein-
mitt verið sú að rugla þessu tvennu sam-
an. Oftast hafa þá vena azygos og vena
cava superior orðið fyrir skemmdum og
afleiðingin oft mikil og alvarleg blæðing.
Þegar speglun er lokið, þarf ekki að
sauma saman annað en platysma og húð.
Ef ekkert óhapp verður, tekur speglun
skamman tíma, 15-30 mínútu.r. Óþægindi
eftir aðgerð eru yfirleitt ekki meiri en
við Daniels biopsiu, en helzt kvarta sjúkl-
ingar yfir smávegis særindum í hálsi og
retrosternalt. Hitahækkun verður ekki
teljandi og ekki er venja að gefa anti-
biotica að staðaldri eftir aðgerð.
Rétt er að taka röntgenmynd af thorax
daginn eftir, til þess að fylgjast með, hvort
aukning verður á breidd mediastinum,
sem gæti bent til blæðingar eða sýkingar.
MEDIASTINOSCOPI Á LAND-
SPÍTALANUM
Fyrsta mediastinoscopia var gerð á
Landspítalanum þann 22. febrúar 1971, og
hafa síðan verið gerðar 40 speglanir. Ald-
ur og kyn sjúklinga sézt af töflu nr. 1.
Flestir sjúklinganna voru á aldrinum
40 til 70 ára og kemur þetta vel heim
við greinar frá öðrum sjúkrahúsum um
þetta efni, enda er algengasta ástæða til
mediastinoscopiu cancer í lungum eða
grunur um slíkt. Verður þess nánar getið
síðar.
Eins og sézt á töflu nr. 2, hafa ekki
allir sjúklingarnir legið á Landspítalanum,
en 4 þeirra voru á Vífilsstaðaspítala og 2
á St. Jóseps spítala í Reykjavík.
Vegna þess, hve aðgerðin er tiltölulega
hættulítil og fylgikvillalaus, er ekkert,
sem mælir á móti því, að gera hana á
sjúklingum frá öðrum sjúkrahúsum, en
þeir eru þó hafðir undir eftirliti hér á
Landspítalanum í 2-3 klukkustundir, með-
an þeir vakna og jafna sig.
Ástæður til mediastinoscopiu sjást á
töflu nr. 3 og sézt þar, að algengasta
ástæðan er lungnacancer eða grunur um
slíkt. Við höfum ekki gert mediastino-
scopiur að staðaldri á sjúklingum, sem
við erum búnir að staðfesta hjá lungna-
cancer, en í þeim fjórum tilfellum, sem
hér er um að ræða, vorum við ekki vissir
um hvort tumorinn væri skurðtækur, þar
sem lungnamynd gaf grun um stækkaða
eitla í mediastinum. Af þeim reyndist
einn hafa meinvörp, en hjá hinum þremur
var speglunin neikvæð.
Hjá þeim 18, sem voru grunaðir um
lungnacancer, var mediastinoscopia í flest-
um tilfellum gerð samtímis broncho-
scopiu. Af þessum sjúklingum reyndust
8 hafa meinvörp í eitlum, en 10 eitla-
sectionstöng. C: Biopsitöng. D: Sog. E:
Aspirations-nál.