Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.08.1973, Page 17

Læknablaðið - 01.08.1973, Page 17
LÆKNABLAÐIÐ 139 krufningu kom í ljós höfuðkúpubrot og blæðing undir yztu heilahimnu. Magn fenemals í blóði var 13 míkróg/ml. Magn alkóhóls í blóði var 0,66%c og í þvagi l,07%o. Annar fannst látinn á víðavangi og bendir allt til þess, að maðurinn haíi tekið stóran skammt af fenemali í formi dufts og síðan lagzt fyrir og orðið úti. Magn fenemals í blóði var 34 míkróg/ml. Alkóhól var hins vegar ekki í mælan- legu magni í blóði eða þvagi mannsins. Þriðji fannst látinn og var talið, að hann hefði verið ölvaður. í fórum hans fundust umbúðir utan um lyf, sem m. a. inniheldur íenemal, svo og glös, sem merkt voru mepróbamati og díazepami. Magn alkóhóls í blóði var 0,51%CC og í þvagi 1,46%C. Magn fenemals í blóði var 8 míkróg/ml, magn mepróbamats ca. 30 míkróg/ml og magn díazepams ca. 1 míkróg/ml. Fjórði lézt stuttu eftir komu í spítala. Hlutaðeigandi hafði fengið díemal og klórprótixen í full- um lækningalegum skömmtum. Magn díemals í blóði var 13 míkróg/ml. UMRÆÐA OG ÁLYKTANIR í hinni viðamiklu ritgerð um réttar- efnafræðilegar rannsóknir á barbítúrsýru- dauðsföllum taldist Bonnichsen et al.2 til, að magn eftirtalinna barbítúrsýrusam- banda í blóði hefði að meðaltali verið i safni þeirra sem hér segir (fjöldi tilvika í svigum): Allýprópýmal 50 míkróg/ml (9), fenemal 105 míkróg/ml (12), mebú- mal 28 míkróg/ml (10) og pentýmal 27 míkróg/ml (53). Tölugildi þessi varðandi allýprópýmal, mebúmal og pentýmal koma vel heim við hópa V, VI og VII í safni okkar (sbr. mynd 4). í hópum þess- um eru samtals 12 einstaklingar. Ekkert kom fram við krufningu, er beinlínis gæti skýrt dauða þeirra. Einkenni frá öndunar- vegi (berkjubólga, berkjulungnabólga, lungnabólga), sem er algengt, að sjáist við slíkar krufningar, ber vafalaust í flestum tilvikum frekast að skoða sem afleiðingu af eitruninni. Á grundvelli þeirra upp- lýsinga, er fyrir liggja, og með tilliti til niðurstöðutalna barbítúrsýruákvarðana, er þannig yfrið líklegt, að rekja megi dauða þessara einstaklinga til töku allýprópý- mals, mebúmals eða pentýmals, enda þótt neyzla áfengis hafi verið meðverkandi or- sök dauða í sumum tilvikum. Fisher12 benti á, að búast mætti við því, að menn væru í dái eftir töku mebú- mals eða pentýmals, ef magn þessara lyfja í blóði væri á bilinu 10-32 míkróg/ml. Brcughton et al.5 komust að þeirri niður- stöðu, að við mebúmaleitrun röknuðu menn úr dái og kæmust til meðvitundar, þegar magn mebúmals í blóði væri á bil- inu 10-20 míkróg/ml, og á bilinu 17-42 míkróg/ml við pentýmaleitrun. Lous^ birti mjög svipuð gildi varðandi allý- própýmaleitrun (18-40 míkróg/ml). GiII- ett & Warburton10 bentu síðar á, að bar- bítúrsýrueitrun leiddi yfirleitt til dauða, ef magn barbíúrsýrusambanda í blóði væri umfram tiltekið lágmark, er nægði til þess að koma mönnum í dá, og engri meðferð yrði við komið þeim til hjálpar. Væri þannig viðbúið, að magn barbítúrsýru- sambanda í blóði gæti verið ærið breyti- legt eftir atvikum við banvænar eitranir, enda þótt vafalaust væri, að dauða mætti beinlínis rekja til töku þessara lyfja. í safni þeirra sjálfra eru þannig banvænar mebúmaleitranir, þar sem magn í blóði var á bilinu 12-15 míkróg/ml. í safni okk- ar virðist mega ætla, að einstaklingar í hópum III og IV (mynd 4) falli hér undir. Allar upplýsingar varðandi þessa 13 ein- staklinga benda og eindregið til þess, að dauða þeirra megi rekja til töku barbítúr- sýrusambanda. Eitrunin hefur hins vegar vafalaust verið vægari en hjá fyrrnefnd- um einstaklingum í hópum IV-VII og horf- ur þeirra verið betri, ef þeir hefðu komizt til læknismeðferðar í tæka tíð. Ástæða er til þess að ætla, að eftir töku einstakra, stórra lækningalegra skammta (0,2 g) af allýprópýmali, mebúmali eða pentýmali fari magn þeirra í blóði ekki yfir 4 míkróg/ml21 35 og sé á bilinu 20-30 míkróg/ml eftir töku stórra lækningalegra skammta (1-5 g) af díemali.20 Við töku lækningalegra skammta þessara lyfja til lengdar má ætla, að magn þeirra í blóði geti verið allt að því helmingi meira. Um þetta atriði virðist þó skorta allar heimild- ir. Um sjúklinga með flogaveiki, sem með- höndlaðir eru með fenemali, er vitað, að magn lyfsins í blóði getur verið á bilinu

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.