Læknablaðið - 01.08.1973, Side 36
154
LÆKNABLADIÐ
98% sjúklinga með gúlagrúa.K0 Hafa skal
sjúkdóm þennan í huga, þegar fullorðið
fólk fær sífelldar blóðnasir. Endurteknar
nefblæðingar eru tíður kvilli hjá börnum,
en sjaldnast hægt að rekja þær til gúla-
grúa. Blóðnasir geta valdið alvarleg-
um blóðmissi. Margvíslegri meðferð hefur
hefur verið beitt með misjöfnum árangri,
en í aðalatriðum má segja, að meðíerð sé
hin sama og við blcðnösum af öðrum or-
sökum. Ýmiss konar þrýstingsumbúðir eru
notaðar, brennt er fyrir blæðingarstað
með rafmagni, silfurnitrati og jafnvel
radíum, og tilraunir hafa verið gerðar með
úðun adrenalíns og thrombins. Stundum
verður að grípa til þess að undirbinda
slagæðar, gera skurðaðgerðir á neískipt
cg neföðum og framkvæma húðflutning
á þær.38 04 Langvarandi notkun mýkjandi
smyrsla hindrar mikla hrúðurmyndun, svo
að sjaldnar blæðir. Af kerfisbundinni með-
ferð má nefna K, C og P fjörvagjaíir, sem
venjulega bera þó ekki verulegan árangur.
Einhver athyglisverðasta meðferðin er
kerfisbundin notkun östrogenvaka í stór-
um skömmtum. Koch veitti því athygli,
að nefblæðingar voru mestar hjá konum
um tíðir, eftir töku eggjastokka og eítir
tíðalok. í öllum þessum tilvikum er
östrogenmagn í blóði lágt. Hann gaf bæði
körlum og konum östrogenvaka í stórurn
skömmtum, og dró þá mjög úr neíblæð-
ingum. Ennfremur virtist honum æðagúl-
ar í nefslímhúð minnka við þessa með-
ferð.30 Síðar gaf Harrison naggrísum stóra
östrogen skammta, og við smásjárskoðun
kom í ljós, að bifháraþekja nefsins hafði
breytzt í marglaga flöguþekju. Sýndi hann
fram á sams konar breytingar hjá sjúkl-
ingum með gúlagrúa, sem fengu daglega
0,25-1 mg af ethinyl östradioli, og sam-
fara þessu stórminnkuðu nefblæfðingar.
Harrison taldi, að östrogen í þessum
skömmtum hefði ekki áhrif á stærð æða-
gúla og bessi meðferð væri árangurslaus,
þegar blæðingarstaður er annars staðar en í
nefi. Hann taldi, að flöguþekja gæfi smáum
æðum meiri hlífð en stuðlaþekja.30 Aðrar
verkanir cg aukaverkanir östrogenvaka
takmarka notagildi meðferðarinnar, ssr-
lega þegar karlmenn eiga í hlut, en Koch
taldi sig komast hjá þessum vandkvæð-
um að nokkru leyti með því að gefa
methyltestosterone með ethinylestrodioli.
Rétt er að ítreka, að gefa verður östrogen
í stórum skömmtum, til þess að árangur
náist, og mun meira en getnaðarvarnarly f
innihalda. Því hefur jafnvel verið haldið
fram, að taka getnaðarvarnalyfja geti vald-
ið aukningu æðagúla og nefblæðinga.57
Hitt hefur og verið lengi vitað, að þessi
einkenni vaxa gjarnan um meðgöngutím-
ann, og VIII, 12 veitti því einmitt athygli,
að æðagúlar urðu meira áberandi, er hún
var þunguð.31
Meiriháttar blæðing frá meltingarvegi
er eitt af alvarlegustu einkennum gúla-
grúa. Blæðingarstaður getur verið hvar
sem er, en þó er blæðinga frá vélinda
sjaldan getið. Smith greindi frá miklum
blæðingum frá meltingarvegi í 21 sjúkl-
ingi með gúlagrúa. Hann leggur áherzlu á,
hve erfitt getur verið að finna æðaút-
víkkanir, bæði við maga- og ristilspeglun
og við skurðaðgerðir á kviðarhcli, einkum
eftir nýafstaðnar blæðingar, þar sem æða-
gúlar hverfa auðveldlega á milli slímhúð-
arfellinga.01 Blæðingar geta komið frá
meltingargangi, án bess að sjúklingar hafi
nefblæðingar, en þeir hafa þá urmul af
æðagúlum útvortis og/eða ættarsögu.12 60
00 72
Gúlagrúi skal ávallt hafður í huga, þeg-
ar um er að ræða blæðingar frá meltingar-
vegi af óskýrðum uppruna, en greining
verður mjög erfið, þegar einstaka æða-
útvíkkanir sjást við speglun á vélinda,
maga, endaþarmi eða ristli hiá sjúklingi,
sem hvorki hefur neíblæðingar né ættar-
sögu. Rétt sjúkdómsgreining er mjög
mikilvæg, þar sem skurðaðgerðir á
maga, smáþörmum og ristli eru taldar
gagnslitlar hjá þessum sjúklingum. Smith
greinir frá 10 sjúklingum með umræddan
sjúkdóm, sem kviðarholsaðgerðir voru
framkvæmdar á 16 sinnum vegna blæð-
inga, og hættu blæðingar aðeins hjá ein-
um. Fjórir af þessum tíu höfðu skeifu-
garnarsár, og blæðingar frá meltingarvegi
héldu áfram hjá þeim öllum.61 Róttækum
skurðaðgerðum vegna blæðinga frá melt-
ingarvegi hjá sjúklingum með gúlagrúa
hefur þó verið lýst og viðunandi árangur
náðst, en slíkt heyrir til undantekn-