Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.08.1973, Page 48

Læknablaðið - 01.08.1973, Page 48
162 LÆKNABLAÐIÐ fjarðar. Læknabústaðir, læknamóttökur, sjúkraskýli og sjúkrahús hafa verið skoð- uð og haldnir hafa verið fundir með lækn- um og sveitarstjórnum. Þrír læknisbú- staðir hafa ýmist verið dæmdir óhæfir eða mjög illa fallnir til búsetu, auk þess sem móttökuskilyrðum er víða mjög ábóta- vant varðandi tækjaútbúnað og rými. Margar læknamóttökur eru mjög illa bún- ar nauðsynlegustu tækjum og hefur verið óskað eftir, að undinn verði bráður bugur að útvegun þessara tækja. í mörgum sjúkrahúsum og sjúkraskýlum eru bú- staðir lækna eða hjúkrunarfólks. Bent hef- ur verið á, að í framtíðinni geti slíkt fyrir- komulag alls ekki viðgengizt og nauðsyn- legt sé, að starfsmannabústaðir verði byggðir. Sveitarstjórnum hefur með bréfi verið gert kunnugt, að erfitt muni vera að fá lækna til búsetu, þar sem illa er búið að þeim. Mjög er misjafnt, hvernig sveitarstjórn- ir hafa brugðizt við þessum tillögum, en á nokkrum stöðum hafa verið gerðar rót- tækar breytingar, bæði hvað snertir við- gerðir á læknabústöðum, móttökum og út- vegun nauðsynlegustu lækningatækja. Má þar sér í lagi benda á Ólafsfjörð, Þingeyri og Bolungavík. f sambandi við tækjaút- búnað hefur verið stuðzt við staðal L.Í., sem birtist í Læknablaðinu 1972. Á Sauð- árkróki, Blönduósi og Búðardal er yfir- leitt vel búið að læknum. Ætlunin er að vísitera Suðurland, Norðausturland og Austurland í ágúst og fara síðan slíkar ferðir á 2ja til 3ja ára fresti.

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.