Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.08.1973, Side 80

Læknablaðið - 01.08.1973, Side 80
180 LÆKNABLAÐIÐ Prófessor Rovsing tók eitt sinn þátt I kirurgaþingi í Berlín, þar sem margir stór- kirurgar voru samankomnir. Þeir stigu í pontuna, hver af öðrum, og kepptust við að segja frá stórum heróiskum aðgerðum sínum. Rovsing fékk einnig orðið ag sagði eftirfarandi smásögu: Dag nokkurn ákváðu sankti Pétur og sankti Páll að heimsækja jörðina. Þeir komu þar að veitingahúsi, gengu inn og fengu sér ölkrús og tóku síðan að leika teningaspil. Sankti Pétur byrjaði og fékk strax þrjár sexur. Þá tók Páll við og fékk líka þrjár sexur. Þeir horfðust stundarkorn þegjandi í augu. Þá rauf sankti Pétur þögn- ina og sagði: „Æ, ekki fleiri kraftaverk meðal kollega. Nú skulum við spila eins og dauðlegir menn.“ Þingheimur skildi strax sneiðina og lófa- takið dundi. — ® — Á slysavarðstofuna kom drengur, sem hafði dottið og meitt sig. Læknirinn spurði: „Hvar meiddirðu þig, drengur minn?“ Hið kjökrandi svar var: „Niðri í Banka- stræti.“ Á héraðssjúkrahúsinu lá eldri maður, innlagður vegna enteritis. Þegar hann út- skrifaðist bað yfirlæknirinn hann að koma aftur eftir tvær vikur með saur til rann- sóknar. Tveim vikum síðar birtist maðurinn másandi og blásandi með stóra vatnsfötu í hvorri hendi. Þegar hann kom upp orði fyrir mæði, sagði hann: „Já, hér er ég með tvær fötur. Hinar sendi ég með rútunni." — 9 — Meðal hinna gömlu frægu kirurga voru Frakkinn Chassaignac og nemandi hans Maisonneire. Chassaignac átti það til að skammast eins og kirurgum var títt í þá daga. Dag nokkurn sagði hann í reiði- kasti við Maisonneire: „Þekkið þér ekki muninn á apa og manneskju?“ Maisonneire svaraði rólega: „Oui, la politesse, Monsieur!“ Læknirinn var kvöld eitt við fæðingu ásamt ljósmóður, sem þekkt var að blíðu og jafnaðargeði. Konan lá og bar sig illa. Skyndilega stundi hún: ,,Ó, Jón, Jón, Jón!“ Þá hvæsti ljósmóðirin: „Haltu kjafti, stelpa!“ Á eftir spurði læknirinn, hví hún hefði rokið upp, það væri ólíkt henni. „Jú, sjáðu til,“ sagði hún. „Maðurinn hennar heitir Björn.“ Maður fór til læknis og sagðist þjást af minnisleysi. „Hve lengi hafið þér þjáðst af því?“ „Þjáðst af hverju?“ — • — Ljósmóðirin spurði ungan læknastúdent, hvers vegna hann virtist svo ánægður á fæðingardeildinni. Hann svaraði: „Þegar ég var á lyflæknisdeild fékk ég astma og hjartsláttartruflanir. Á hand- lækningadeild var ég viss um, að ég hefði magasár. Á geðdeild var ég alveg að klikk- ast. Hér þykist ég loksins öruggur.“ — • —

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.