Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.04.1975, Side 13

Læknablaðið - 01.04.1975, Side 13
LÆKNABLAÐIÐ 5 Fyrsta dags rannsókn leiddi eftirfarandi í ljós: Serum-gildi: Natrium Kalium Bicarbonat pH (135—152) (3,6—5,0) (21—25) (7,35—7,42) 145mEq/l 2.5mEq/l 32.5mEq/l 7.45 Sólarhringsþvag: Magn Eðlisþyngd Na-magn K-magn 2500 ml 1007 105 mEq 58 mEq Sýnd veiði en ekki gefin. Sjúklingurinn hafði við fyrstu sýn dæmigerða sögu og auk þess staðfesta hypokalemiu, alkalosu, háþrýsting og skerta þéttihæfni nýrna. Eftir stóð að sýna fram á aukna aldosteron- framleiðslu. Skilmerki Conn um fullmyndaðan aldos- teronismus primarius sett fram í meistara- legum fyrirlestri þ. 29.10. 1954 hafa staðizt tímans tönn. Sú glæsilega skýrsla var byggð á margra mánaða rannsókn á 34 ára konu með 8 ára sögu um sífellda sam- drætti og slappleika í vöðvum, sem á köfl- um leiddi til algers máttleysis (periodic paralysis), háþrýsting ásamt hypokalem- iskri alkalosu. Hinn þá líttþekkti mineralo- corticoid, aldosteron, fannst í auknum mæli í þvagi. Conn spáði í fyrirlestri sín- um, að aldosteronaukinn væri sjúkdóms- valdurinn og langlíklegast til kominn vegna nýrnahettubarkarofstarfsemi (ana- logia Cushing’s syndrome), sem lækna mætti með brottnámi nýrnahettna og fram- búðar hormonameðferð.0 Við aðgerS 10,12 1954 fannst 4 cm æxli í h. nýrnahettu- berki og reyndist brottnám þess fulllækna sjúklinginn án nokkurrar frekari lyfjameð- ferðar. Síðan hefur grúi sjúklinga með kvilla þennan verið greindur og læknaður. Styr stendur um tíðni sjúkdómsins, þar sem áhangendur telja allt að 20% háþrýsti- sjúklinga haldna honum,8 en fleiri eru þó, sem setja ágizkun sína við 1—3% há- þrýstingssjúklinga.14 Um tíðni hérlendis er vænlegast að vera fáorður. Ótöldum vinnustundum og heila- brotum hefur verið eytt í leit að sjúkdómi þessum, en eftirtekja engin. Þar til nú? Aldosteronframleiðsla heilbrigðra sveiflast geysilega eftir salttekju hvers og eins og getur þannig orðið tíu- til hundraðfalt meiri á saltrýrum en saltríkum kosti.1 20 Hvers konar þvaglosandi lyf, getnaðar- varna- og oestrogenlyf geta brenglað nið- urstöðu aldosteronákvarðanna svo, að ó- gerlegt er að álykta um raunhæfa fram- leiðslu viðkomandi lyfjatakenda fyrr en eftir mánaðarhvíld á lyfinu.20 Aldosteronákvörðun er ekki tiltæk hér- lendis og til skamms tíma mátti heita ó- gerlegt að fá slíkar athuganir framkvæmd- ar erlendis. Síðan 1972 hefur Medicinsk Laboratorium í Kaupmannahöfn boðið upp á aldosteronákvörðun byggða á isotop-aðr ferð.21 Margir skekkjuvaldar eru bundn- ir prófi, sem byggist á geislavirkni prófunarefnis, sem ekki einasta þarf að flytja langan veg eins og hér er í pottinn búið, heldur einnig að dæla í þann, sem prófa skal, en síðan verður að safna sýn- um þvags og blóðs, sem aftur verður að senda til upphafsstaðarins. Vegna alls þessa hefur ekki þótt rétt að hætta á notk- un þessa prófs hér, auk þess, að það kost- ar sjálft dansltar kr. 375.00. Fyrir 42 Bandaríkjadali er hægt að fá aldosteronákvörðun í sólarhringsþvagi (100 ml af heildarþvagi sent ófryst) eða serum' (10 ml sent fryst) gerða á Mayo Medical Laboratories í Rochester, Minne- sota. Fyrirmæli rannsóknarstonunnar eru þau, að sjúklingarnir hafi verið á eðlileg- um kosti m. t. t. salts (3 gr. eða 81 mEq af NaCl á dag) í 2 vikur minnst, og helzt heil- an mánuð, auk lyfjabindindis eins og minnzt var á að ofan. Einkennasamstæðan hypertension, hypo- kalemia, alkalosis og hyperaldosteronismus getur orðið við: A —- 1) Hypertensio arterialis essentialis 2) Vegna áhrifa thiazide-lyfja 3) Hypertensio renovascularis 4) Primer aldosteronismus og hypokalemia sem slík kann að vera til- komin vegna B — 1) megns K-skorts í fæðu 2) mikils K-taps frá meltingarvegi 3) mikils kaliumtaps frá þvagýeg um, eins og t. d. við;

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.