Læknablaðið - 01.04.1975, Síða 20
hálf-syntetiska fúkkalyfið
MINOCYKLIN
Minocyclin hydrochlorid Lederle
er mjög fjölvirkt.
Styrkleiki í blóðvökva.
Styrkleikinn, sem hefur beztan
lækningamátt, er frá 1-3 mcg/ml
og næst mjög auðveldlega með þeim
skammti, sem mælt er með.
Dreifing í vefjum.
Með MINOCYKLIN meðferð næst hár
styrkleiki í vefjum og líkamsvökvum,
sérstaklega í gallblöðru og lifur, einnig
lungum, kynfærum, húð og heilavökva.
Styrkleikinn er almennt hærri í vefjum en
blóðvökva.
ísog.
MINOCYKLIN ísogast fljótt eftir að það
er tekið inn. Það nær þanning svipaðri
verkun eftir 1 klst. eins og hefði það
verið gefið í æð. Samtímis neyzlu fæðu og
vökva hefur mjög óveruleg áhrif á ísog
lyfsins, aftur á móti geta sýrueyðandi lyf,
sem innihalda aluminium og magnium
og kalcium sambönd dregið úr ísogi
MINOCYKLINS.
Útskilnaður.
MINOCYKLIN skilst hægt út með þvagi
og saur. Meðalhelmingatími í blóðvökva
er nálægt 18 klst. Jafnvel 36 klst. eftir
síðasta skammt er enn nægilegur
styrkleiki eftir til að ná lækningamætti.
96 klst. eftir að hætt er meðhöndlun, má
enn finna vott af MINOCYKLINI í
blóðvökva.
Varúð.
Ekki er rétt að gefa lyfið þegar vitað er
um ofnæmi gegn tetracyklin-lyfjum.
Aukaverkanir.
Lítil hætta er á aukaverkunum, þegar
MINOCYKLIN er tekið inn í ráðlögðum
skömmtum. Þó geta stundum komið
meltingartruflanir, líkt og við önnur
tetracyklin-lyf. í nokkmm tilfellum hefur
borið á lítils háttar svima, en ekki hefur
þurft að hætta við meðferð af þeim
sökum.
Varúðarreglur.
Varast ber að gefa vanfærum konum
tetracyklin-lyf. Ekki er hægt að útiloka
hættuna á að tennur litist svo sem á
sér stað við notkun allra tetracyklin-lyfja,
þótt áhættan við MINOCYKLIN sé
enn óstaðfest. Reynslan bendir til að
MINOCYKLIN valdi ekki ljósofnæmi
(photosensitivity). Gætni er ráðlögð, þar
sem fyrir er alvarlegur skaði á lifur eða
nýmm. Að öðru leiti vísast til greinagóðra
upplýsinga í bæklingi.
Skammtar handa fullorðnum.
Skammturinn er sá sami, hvort sem um
er að ræða alvarlegra eða mildara tilfelli.
Gefnar em 2 töflur (200 mg) í byrjun,
síðan 1 tafla (100 mg) á 12 tíma fresti.
Umbúðir.
MINOCYKLIN töflur 100 mg 9 stk.
(4 daga meðhöndlun)
MINOCYKLIN töflur 100 mg 15 stk.
(7 daga meðhöndlun)
LEDERLE LABORATORIES. CYANAMID INTERNATIONAL
Stefán Thorarensen h. /., P. O. BOX 897, Reykjavik
J0RGEN JENSENS BOGTRYKKEBI
77331 X okt. 74