Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.04.1975, Page 51

Læknablaðið - 01.04.1975, Page 51
LÆKNABLAÐIÐ 29 UPPLÝSINGAMIÐLUN í HEILBRIGÐISKERFINU — Guðmundur Árnason yfirlæknir EINKUM TIL OG FRÁ SPÍTALA Hlutverk okkar læknanna er, eins og við allir vitum, að lækna sjúkdóma og hjúkra fólki eða sjá um að slíkt sé gert, en jafnframt er hlutverk okkar að starfa að heilsuvernd. Margar leiðir eru að marki þessu og möguleikar til þess að koma í veg fyrir ýmsa sjúkdóma og lækna þá miklum mun meiri en fyrir fáum árum. Kemur þar margt til, svo sem aukin velmegun fólks, meiri og betri menntun þess, aukin þekk- ing læknastéttar og hjúkrunarliðs, auð- veldari upplýsingamiðlun með fjölmiðlum og aukið fjármagn veitt til heilbrigðismála af hálfu hins opinbera. Á síðustu árum hefur skipulag heil- brigðismála batnað verulega. Heilbrigðis- kerfi okkar hefur þó ennþá ýmsa van- kanta og eru orsakir eflaust margar og flóknar, en eina veigamestu ástæðuna hygg ég þó lélegt skipulag. Höfum við íslendingar staðið og stönd- um þar enn mjög verulega að baki ýmsum nágrönnum okkar með einstökum undan- tekningum þó. Of litlu fé hefur verið var- ið til skipulagningar heilbrigðisþjónust- unnar a.m.k. miðað við heildarútgjöld til heilbrigðismála. Það er því ekki að undra, þótt skipulagsvandamál blasi við okkur víðast hvar í heilbrigðiskerfinu. Hér á landi hefur til skamms tíma of lítill gaum- ur verið gefinn viðleitni lækna í þá átt að skipuleggja heilbrigðisþjónustuna. Mjög fáir læknar hafa gefið sig að ráði að skipulagsmálum, og þrátt fyrir ágætt starf margra þeirra er árangur ónógur enda verður heildarskipulagning í heilbrigðis- kerfinu að stýrast af stjórnvöldum lands- ins og vera unnin af sérlærðu starfsliði eigi hún að vera heilsteypt og koma að fullu gagni. Lélegt skipulag tefur mjög Fyrirlestur í LR Oktober 1974. alla lækningu og heilsuvernd og er það því skylda okkar að reyna að ráða hér einhverja bót á og skipuleggja starf okk- ar eins vel og kostur er, þótt ekki væri nema til þess að gera okkur lífið léttara. Tilgangurinn á auðvitað ekki að vera að- eins sá, 'heldur hinn að gera okkur auð- veldara fyrir að gegna því hlutverki, sem að framan greinir. Með betri upplýsingamiðlun í heilbrigð- iskerfinu fæst því að nokkru framgengt, sem getið er hér í upphafi og sparast við það mikið fé, bæði fyrir einstaklinga og þjóðfélagið í heild. Með hraðari og fullkomnari upplýsinga- miðlun á fólk að öðru jöfnu að komast fyrr til læknis, og verða fyrr frískt. Það þyrfti þá s-íður á spítalavist að halda eða spítalavist þess yrði skemmri og það kæm- ist fyrr til starfa að nýju. Mun ég nú víkja að nokkrum þáttum, sem ég hygg að hafi þýðingu í þessu sambandi. I. UPPLÝSINGAMIÐLUN UTAN- SJÚKRAHUSSLÆKNA TIL SJÚKRAHÚSSLÆKNA Árum saman hafa biðlistar spítalanna verið mjög langir og er svo enn. Erfið- lega hefur því oft gengið fyrir utan- sjúkrahússlækna að koma sjúklingum sín- um inn á spítala, einkanlega þegar um hjúkrunarsjúklinga hefur verið að ræða. Leiðir þær, sem læknar hafa farið til þess að koma sjúklingum á spítala (eða aðrar heilbrigðisstofnanir) hafa aðallega verið eftirfarandi: 1. að hafa beint samband við spítalann, þ.e. hringja eða koma, gefa upplýsing- ar um sjúklingana og biðja um pláss fyrir þá. 2. að skrifa beiðnir, koma með þær sjálfir eða senda sjúklingana eða aðra með þær á spítalann, ellegar senda þær í pósti.

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.