Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.08.1977, Page 57

Læknablaðið - 01.08.1977, Page 57
LÆKNABLAÐIÐ 161 ið og tengt við sog, og þandist lungað þannig út í öllum tilvikunum. GRÁÐA PNEUMOTHORAX OG STAÐSETNING Sex sjúklingar höfðu algert samanfall á viðkomandi lunga, hjá öðrum 6 var lungað samanfallið að hálfu, og hjá 4 var lungað samanfallið að einum þriðja ihluta. Pneu- mothorax var jafnoft hægra sem vinstra megin, þ.e. 8 sinnum hvorum megin. UMRÆÐA Ekki er ólíklegt, að um fleiri tilfelli hafi veiið að ræða á þessum tíma en hér koma fram, en á ihinn bóginn ætti þetta yfirlit að gefa allgott sýnishorn af iatrogen pneumothorax hérlendis. Eins og tíðniritið sýnir, hefur tilfellum fjölgað geysilega síðasta 5 ára tímabilið miðað við hin fyrri. í þessu sambandi er athyglisvert, að á síð- astnefndu tímabili verður um helmingur tilfella af völdum öndunarvéla eða eftir innöndunarsvæfingu. I tveimur tilfellanna, sem urðu eftir slíka svæfingu, voru sjúk- lingarnir með þekkta sjúkdóma í lungum eða lungnaberkjum, og líklega var einnig svo um hinn þriðja. Um tvo þeirra, sem fengu meðferð í öndunarvél, er vitað, að þeir höfðu heilbrigð lungu. Sá þriðji hafði hins vegar sjúk lungu nftir margendur- teknar lungnabólgur og langvarandi berkjubólgur. Þessi fáu tilfelli gefa samt tilefni til að vera á verði gagnvart pneumothorax sem fylgikvilla eftir meðferð í öndunarvél og eftir innöndunarsvæfingu, sérlega þegar yfirþrýstingur er notaður, hjá sjúkling- um, sem eru með sjúkdóma í lungum eða hafa sögu um þá. Hjá þeim, sem fengu meðferð í öndunarvél, hefur pneumothorax myndazt innan sólarhrings frá byrjun með- ferðar og einnig hjá flestum hinna, sem fengu pneumothorax eftir innöndunarsvæf- ingu. Hjá vakandi sjúklingum komu einkenni fram strax og venjulega meðan á viðkom- andi meðferð stóð, en nokkur töf hefur verið í sumum tilfellum á því, að lungna- mynd væri tekin, og er sennilegasta skýr- ingin sú, að viðkomandi læknir hafi ekki verið á verði gagnvart þessum fylgikvilla. Allir nema tveir ofannefndra sjúklinga lágu á sjúkrahúsi, þegar pneumothorax átti sér stað, en þeir tveir, sem fengu pneumo- thorax utan sjúkrahúss, voru fluttir þang- að af þeim orsökum. Undanfarið hefur töluvert verið skrifað um iatrogen pneumothorax og eftir því að dæma hefur þetta vandamál færzt í vöxt síðustu árin.2 0 7 M Steier o.fl.2 birtu 1973 yfirlit yfir orsakir pneumothorax í St. Vincent’s Hospital and Medical Center, New York, fyrir árin 1965—71. Þar kom í ljós, að flest tilfellin voru iatrogen og hafði þá fjölgað sjöfalt síðustu þrjú ár tímabilsins. Orsakirnar skiptust nokkuð í þrjá flokka: öndunarhjálp með öndunarvél, hjartahnoð og þræðingar á vena subclavia, en þarna var einungis um að ræða tilfelli, sem átt höfðu sér stað innan sjúkrahússins. Emphysema subcutanea kom fram hjá öll- um (61) sjúklingum þeirra Steiers, sem höfðu fengið öndunarhjálp með yfirþrýst- inigi, og telja þeir það einkenni þýðingar- mestu vísbendingu í sjúkdómsgreining- unni. Önnur þýðingarmikil vísbending var tachycardia í 95% tilfella og hypertensio hjá 77%. Einn sjúklingur hér af þeim þremur, sem fengu pneumothorax eftir svæfingu, var með emphysema subcutanea. Ytra hjartahnoð var orsök hjá tveimur sjúklingum <hér, báðum nokkuð við aldur. Eftir slika meðferð og ekki sízt ihjá eldra fólki er ástæða til að teknar séu lungna- myndir með tilliti til pneumothorax. Árið 1970 birtu J. Ludwig o.fl.3 athyglis- verðar niðurstöður um röntgenmyndir af brjóstholi 413 manna, sem voru teknar eft- ir andlát þeirra. í sex tilfellum kom í ljós pneumothorax, sem efcki hafði verið greindur áður, en tveir þessara sjúklinga höfðu fengið ytra hjartahnoð, og þrír höfðu fengið öndunarhjálp með yfirþrýstingi. Af þessum sex sjúklingum áttu fjórir að hafa haft yfirþrýstingsloftbrjóst (tensionpneu- mothorax), sem gæti hafa verið meðorsök í dauða þeirra. Hjá sjúklingum þeim, sem hér eru kynntir, var ekki hægt að ákveða eftir á, að neinn hafi haft yfirþrýsting, nema e.t.v. ein kona, sem fékk pneumothorax eftir taugadeyfingu. Lungnaástunga til sýnistöku fyrir vefja- rannsókn er mjög sjaldan gerð hérlendis
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.