Læknablaðið - 01.12.1977, Síða 16
246
LÆKNABLAÐIÐ
TAFLA I.
Magn
No. Aldur Kyn Lyf (mg.) Mg/Kg. Einkenni
1. 2 2/12 st. Nortriptylin ? Dá, krampar, ventriculer tachycardia. (slegils- hrina).
2. 4 4/12 st. Imipramin 500 25 Dá, krampar, A-V biokk.
3. 1 11/12 st. Imipramin 175 12 Hraður hjartsláttur.
4. 4 dr. Amitriptýlin ? Sljóleiki.
5. 4 5/12 dr. Amitriptýlin 400 23 Sljóleiki, roði.
6. 1 8/12 st. Imipramin ? Dá, krampar, hjarsláttar- óregla, lost, dauði.
7. 4 8/12 dr. Imipramin ? Engin.
8. 3 6/12 st. Imipramin ? Engin.
9. 211/12 dr. Nortriptylin ? Engin.
10. 2 8/12 st. Amitriptylin 350 25 Engin.
11. 2 8/12 st. Amitriptylin 350 25 Sljóleiki, við sjáöldur, roði.
12. 1 5/12 st. Imipramin 300 25 Sljóleiki, hraður hjart- sláttur.
13. 1 8/12 dr. Imipramin ? Engin.
14. 2 st. Amitriptylin 75 6 Roði.
15. 210/12 dr. Nortriptylin ? Hraður hjartsláttur.
16. 5 9/12 st. Imipramin 100 5 Sljóleiki, uppköst.
17. 5 4/12 dr. Amitriptylin 250 13 Hálfdá, hraður hjart- sláttur, víð sjáöldur, ataxia.
18. 3 10/12 st. Imipramin 60 4 Sljóleiki, hraður hjart-
sláttur, hjartsláttar-
óregla, víð sjáöldur.
Sjúklingur svaf síðan næstu 9 klukkustund-
irnar, en vaknaði þá og virtist alveg eðlilegur.
Ferill var siðan viðburðarsnauður og drengur-
inn útskrifaðist heirn til sín í ágætu ástandi
á 3ja degi.
UMRÆÐA
Allmörg trícyclísk geðdeyfðarlyf eru fá-
anleg hérlendis. Þau helztu eru imípramín
(deprinol, imiprex, tofranil), antitriptýlín
(laroxyl, sarotin, tryptizol) og nortriptýlín
(sensival). Lyf þessi eru einkum notuð
sem geðlyf, en eru einnig í nokkrum mæli
gefin börnum við undirmigu. Lyfin frásog-
ast fljótt og bindast von bráðar eggjahvítu-
efnum, einkum í hjarta og heila. Búast má
við alvarlegum eitrunareinkennum, ef
lyfjaskammturinn, sem barnið hefur tekið
inn er stærri en 20 mg./kg.17 Vitað er um
barn, sem dó eftir að hafa tekið inn 32
mg./kg.
Rétt er að benda á, eins og raunar kem-
ur berlega í ljós í töflu I., að oft er mjög
erfitt og stundum ógjörlegt, að fá fram
upplýsingar um, hversu mikið lyfjamagn
barnið tók inn. í þeim sjúklingahópi, sem
hér er til umræðu, fengust engar áreiðan-
legar upplýsingar um magn í 8 tilfellum
eða 44% af heildinni. Oftast var komið að
barninu, þar sem það var með lyfjaglas í
höndum og enginn gat sagt, hversu margar
töflur vantaði í glasið. Ekki er ólíklegt að
í þessum hópi séu börn, sem ekki náðu að
gleypa neinar töflur, en einnig er þar að
finna eina barnið, sem dó af völdum þess-
arar eitrunar.
Einkenni eitrunar með trícyclískum geð-
deyfðarlyfjum eru margvisleg. Börn, sem
tekið hafa inn litia skammta af þessum
lyfjum eru gjarnan óróleg, slagandi, með
skerta meðvitund, hraðan hjartslátt, víð