Læknablaðið - 01.12.1977, Side 31
LÆKNABLAÐIÐ
253
Gunnar H. Gunnlaugsson
BRJÓSTHOLS- OG ÆÐASKURÐLÆKNINGAR
130 uppskurðir
INNGANGUR
Á um það bil 5 ára skeiði (1971—1975)
hefur höfundur framkvæmt 130 uppskurði,
sem flokkast undir brjósth&Is- og æða-
skurðlækningar (thoracic and cardiovas-
cular surgery). Þeim má skipta í þrennt,
þ.e. almer.ina brjóstholsuppskurði (thora-
cic), æðauppskurði inni í brjóstholi
(thoracic and vascular) og að lokum æða-
uppskurði (vascular). í fyrsta flokknum
eru 43, í öðrum flokknum 5 og í þeim
þriðja 82 uppskurðir.
Hér verður gerð grein fyrir öllum þess-
um sjúklingum með tilliti til sjúkdóma,
skurðaðgerða, dánartölu (surgical morta-
lity) og áfalla eftir uppskurð (postopera-
tive complications). Hins vegar er ekki
unnt að fjalla um langtímaárangur nema í
nokkrum tilfellum, þar sem efniviðurinn
er of margvíslegur (heterogenous) til þess
og oft of skammur tími liðinn frá aðgerð.
Nokkrum áhugaverðum sjúkrasögum eru
gerð sérstök skil. Allir þessir uppskurðir
nema einn fóru fram á Borgarspítalanum.
1. ALMENNIR BRJÓSTHOLSUPP-
SKURÐIR
Af 43 almennum brjóstholsuppskurðum
voru 19 uppskurðir á lungum og barka, 21
á vélinda og 3 á líffærum í miðmæti
(mediastinum).
Lungu og barki
Gerð er grein fyrir uppskurðum á lungum
og barka í töflu 1. Fjórtán sjúklingar voru
skornir upp vegna krabbameins í lunga eða
gruns um slíkt. Hjá 7 sjúklingum á aldrinum
51 til 67 ára var lunga eða lungnablað (lobus)
tekið vegna krabbameins. Einn sjúklinganna
hafði flöguþekjumein (squamous cell), 2 kirtil-
mein (adenoca), 2 stórfrumumein (large cell), 1
smáfrumumein (small cell) og 1 óflokkað ill-
kynja mein (anaplastic).
Af þessum 7 sjúklingum eru 4 á lífi 5 árum,
4 árum, 1 ári og nokkrum mánuðum eftir upp-
skurð. Af hinum 3, sem dánir eru, höfðu 2
meinvarp í heila er þeir komu á spitalann, og
hafði það verið fjarlægt hjá báðum áður en til
lungnauppskurðarins kom. Báðir sjúklingarnir
fengu dágóða bót (palliation) og annar þeirra
lifði í 14 mánuði. Þriðji sjúklingurinn dó 7
mánuðum eftir uppskurð, enda hafði ekki tek-
ist að komast fyrir meinið hjá honum (pallia-
tive lobectomy).
Fjórir sjúklingar á aldrinum 25 til 67 ára
með blett i lunga (coin lesion) reyndust hafa
gíðkynja hnút. Lungnablað var tekið hjá ein-
um þeirra (lobectomy), en hjá hinum var hnút-
urinn fjarlægður með minni háttar aðgerð. Við
vefjarannsókn fannst að 2 höfðu berkla (tuber-
culoma), 1 hafði gigtarhnút (rheumatoid
nodule) og 1 sveppahnút (histoplasmoma), en
sá sjúklingur var bandarikjamaður.
Á 3 sjúklingum á aldrinum 46 til 66 ára var
gerð könnunaraðgerð eingöngu (explorative
thoracotomy). Hjá einum fannst ekkert sjúk-
legt, 1 hafði smáfrumukrabbamein í lunga, sem
var ekki skurðtækt, og sá Þriðji hafði illkynja
æxli við lungnarót og i aftanverðu miðmæti
(mediastinum), sem talið var vera meinvarp.
Þrir piltar á aldrinum 16 til 25 ára voru
skornir upp vegna sjálfgers (spontaneous)
loftbrjósts. Einn þeirra hafði áður fengið loft-
brjóst hinum megin. Hjá þeim öllum fundust
blöðrur í lungnatoppinum (subpleural blebs),
sem var bundið undir eða saumað yfir. Fleiðr-
rn var siðan ert með þurri grisju eins og
Clagett- hefur lýst, kerar lagðir inn og settir
á sog uns hægl var að fjarlægja þá að nokkr-
um dögum liðnum. Á 2 til 4% ári, sem liðin
eru frá þessum uppskurðum, hefur cnginn
sjúklinganna fengið loftbrjóst aftur þeim
megin, sem hann var skorinn. Tæpum 2 árum
eftir aðgerð fékk 1 þeirra sjálfgert loftbrjóst
hinum megin, sem lagaðist án uppskurðar.
Fjórði sjúklingurinn með loftbrjóst var 5 ára
drengur, sem hafði dottið á rúðu og hlotið 15
sm. skurð milli rifja inn i brjósthol og einnig
10 sm. skurð í gegnum þind. Þessir skurðir
voru saumaðir saman.
Einn uppskurður var gerður á barka. Sextár.
ára piltur vann við uppskipun á fiski : Þor-
lákshöfn er löndunarkassi skall efst á framan-
verðan brjóstkassann. Honum var ekið til
Reykjavíkur, en blásið í hann lofti á leiðinni.
Við komu á sjúkráhúsið var hann svarblár og i
dái (coma). Öndunarröri (endotracheal tube)
var komið fyrir, en fljótt var ljóst, að gat
hlaut að vera á barkanum og blés sjúklingur-
inn mjög upp (subcutaneous emphysema).