Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.12.1977, Page 70

Læknablaðið - 01.12.1977, Page 70
280 LÆKNABLAÐIÐ mikla andnauð eða enga öndun. Sum höfðu verið meðhöndluð í súrefni í (hitakassa. Þau börn sem höfðu IRDS-sjúkdóm voru greind eftir einkennum: óeðlilegum inn- drætti á brjóstveggjum, öndunarhraða meiri en 60 á mínútu, bláma, nema barnið fengi súrefni og stunum við útöndun, svo og dæmigerðum, smákornóttum breyting- um á lungum á röntgenmynd. Öndunarvél sú, sem notuð var er sýnd á mynd 1. Öndunarvél þessi er rafeindastýrð og má nota á fullorðna sem börn, bæði í svæfingu og á gjörgæzludeild. Rúmmáli, þrýstingi og tíðni er stýrt óháð hverju öðru. Unnt er að stilla á mínúturúmmál V2—30 lítra á mínútu, þrýsting 0—100 cm H20, og tíðni 6—60 andartök á mínútu. Hægt er að koma fyrir rakaútbúnaði og útbúnaði, sem blandar loft við súrefni eða aðrar loftteg- undir. Einnig má koma fyrir samfelldum, jákvæðum þrýstingi til 20 cm H20. Hægt er að stilla öndunarvélina þannig, að hún gefi frá sér hljóð- og ljósmerki, ef hin ein- stöku gildi fara út fyrir það, sem ákveðið var. Áður en barkaslawga var lögð, var andað fyrir sjúklinginn með hreinu súr- efni í 1—2 mínútur. Barkaslöngur voru af mjúkri Portexgerð 2%—4 mm. í þver- mál. Barkaslanga var lögð í gegnum nef eða munn. Leitast var við að festa ihana rækilega og legan staðfest með röntgen- mynd. Öndunarvél var stillt eftir sýru- basajafnvægi og súrefnisþrýstingi blóð- sýna, sem tekin voru úr naflastrengsslag- æð eða háræðum. Raki var í öndunarkerf- inu, og leitast var við að halda loftvegum og barkaslöngu hreinum með saltvatni og sogi. Súrefnishlutfalli innöndunarlofts (F-| 02 ) var haldið eins lágu og kostur var. Leitast var við að halda p02 í slagæðablóði 50—80 mm Hg. Ef um hækkað sýrustig af völdum efnaskipta (metaboliska acidosis) var að ræða, fengu börnin natrium bikarbonat eða THAM eftir þörfum. Barnið var vanið úr öndunarvél smám saman og farið eftir súrefniSþrýstingi og sýrubasa — jafnvægi blóðs. Áður en barkaslanga var dregin hafði barnið andað sjálfkrafa í nokkra klukkutíma. Börnin lágu í hitakassa. Slöngur fra öndunarvél lágu inn í kassann um til þess gerð göt. Umhverfishiti var 32°—34° á Celcius. Leitast var við að hreyfa barnið sem minnst og vegna smithættu ganga eins hreinlega um og kostur var. Börnin voru nærð gegnum naflastrengsæð eða útlima- bláæð og fengu lausnir af sykri, fitu, eggja- hvítuefnum og söltum. NIÐURSTÖÐUR Eins og áður getur, fékk 21 barn með- ferð í öndunarvél. Þyngd minnsta barnsins var 890 g. Meðalþyngd barnanna var 2226 g. Meðaltimi í öndunarvél var 185,6 klst. Af börnunum sem eingöngu höfðu IRDS- sjúkdóm lifðu 6 eða 66,6%. Af hinum börnunum 12, sem höfðu alvarlega með- fædda galla eða aðra alvarlega sjúkdóma lifðu aðeins 3. Af þeim 6 börnum, sem höfðu eingöngu IRDS-sjúkdóm, hefur eitt eftirstöðvar eftir sjúkdóminn, tvenndar- lömun (diplegia) og slettigang (ataxia), en er talið andlega heilbrigt. Af þeim þremur IRDS-börnum, sem dóu, lifði eitt í 5 mánuði. Barnið hafði verið talið eðli- lega þroskað er það dó úr lungnabólgu og hjartabilun. Auk þeirra IRDS-barna, sem hér er get- ið, fæddust á sjúkrahúsinu börn, sem voru meðhöndluð í hitakassa, en þörfnuðust ekki meðferðar í öndunarvél. Þegar barn var lagt í öndunarvél var um að ræða upp- hafna eða ófullnægjandi öndun með Pa02 < 40 mmHg þrátt fyrir að barnið fengi > 95% 02. Haldið var áfram að fylgjast með sýrubasajafnvægi, P02 og súrefnishlutfalli í innöndunarlofti. Myndir II og III sýna innbyrðis afstöðu þessara gilda, ásamt PEEP í tveimur tilfellanna. NOKKKVR SJÚKRATILFELLI Nr. 3: Stúlkubarn, fæðingariþyngd 2390 g. Móðir 25 ára, hafði áður fætt eitt heilbrigt lifandi barn og misst fóstur einu sinni. Móðir- in hafði verið hraust á meðgöngutima. Blóð- flokkur ORh + . Eðlileg fæðing í 35. viku. Apgartala eftir 1 mínútu var 10, en eftir 5 mínútur fór barnið að verða bláleitt, þrátt fyrir súrefni og hætti alveg að anda. Hjart- sláttartíðni var þá 80—90 á mínútu. Lögð var niður barkaslanga með hraði. Sogið var upp úr barka og berkjum og virtist barninu hafa svelgst á. Einnig var settur inn æðaleggur í naflaæð og fékk barnið 5 mEq af natrium bikarbónati í hann. Sýrubasajafnvægi sýndi pH 7.17 og PCO■> 54 mmHg og staðlað bikarbonat 16 mEq/

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.