Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 01.07.1978, Qupperneq 25

Læknablaðið - 01.07.1978, Qupperneq 25
LÆKNABLAÐIÐ 121 var að hafa meðferð einstaklingsbundna og fylgjast oftar með þeim sjúklingum, sem vafasamir þóttu um samvinnu. Til skamms tíma hefur það verið siður að fylgjast með berklasjúklingum árum saman að meðferð lokinni. Það er skoðun mín, að ef sjúklingar hafa fengið fullnægj- andi meðferð, sé það svo sjaldgæft að berklaveiki taki sig upp aftur, að engin ástæða sé til að fylgjast áfram með þessu fólki. Af sjúklingum þeirra Stead og Jurgens:l7 fengu 0,8% berkla aftur eftir að fylgst hafði verið með þeim í 10 ár. Edsall og Collins14 fundu, að af 200—250 sjúk- lingum í New York árið 1970, sem fengu berkla aftur að lokinni meðferð, þá fund- ust aðeins 70—80 vegna reglubundinnar skoðunar. Hinir fundust vegna þess, að þeir leituðu læknis vegna einkenna. Groth- Petersen111 fann enga endursýkingu hjá sjúklingum í Kaupmannahöfn, sem hlotið höfðu fullnægjandi meðferð og þeir höfðu verið til eftirlits í allt að 15 ár. Hún legg- ur því til, að eftirliti þessara sjúklinga sé hætt að meðferð lokinni og sömu skoðun hefur Reichman.-'1132 Center for Disease Control8 telur að líta beri á berklasjúk- linga, sem hlotið hafa fullnægjandi með- ferð sem heilbrigða. Meðferð berkla utan lungna er á engan hátt frábrugðin meðferð lungnaberkla, en að sjálfsögðu er erfiðara að fylgjast með árangri meðferðar, þar sem oft eru ekki til staðar jákvæðar ræktanir. Barlow3 bendir á, að þessi meðferð skilji sig á engan hátt frá meðferð við lungna- berklum, nema hvað stundum þurfi að nota handlæknisaðgerðir, eins og vegna empy- ema og ígerða í beinum. Við höfum haft þann sið, að hætta eftirliti með öllum þess- um sjúklingum, þegar þeir hafa lokið berklameðferð. Þeim er sagt að leita lækn- is, ef þeir fái einhver einkenni, sem bent gætu til þess að sjúkdómurinn væri að taka sig upp aftur. Á síðari árum hefur víða verið notuð „intermittent“ meðferð. Oftast nær hafa þó sjúklingar verið á daglegri lyfjameðferð í 1—3 mánuði, en síðan eru berklalyfin gefin undir eftirliti tvisvar i viku. Á þennan hátt er tryggt, að sjúkling- ar taki lyfin. Margir höfundar, svo sem Westley et al3n og Doyel et al11 hafa sýnt ágætan árangur af slíkri meðferð. Vel kæmi til greina að beita þessari meðferð hér hjá einstaka sjúklingi, t.d. hjá drykkju- mönnum sem byggju nálægt lækni eða heilusugæslustöð. Þessi meðferð yrði þó naumast almenn hérlendis, þar sem sjúk- lingar eru dreifðir um allt land og oft bú- settir langt frá læknum eða heilsugæslu- stöðvum. Víðsvegar um heiminn eru nú gerðar tilraunir með stutta meðferd gegn berklaveiki og niðurstöður frá East African British Medical Research Council12 benda til þess, að e.t.v. sé 6 mánaðar meðferð með Rifampicin og Isoniazidi það sem koma skal. Þar til betri reynsla hefur fengist mun þó rétt að halda sig við lengri með- ferð, enda vandamál okkar önnur en hjá þróunarlöndunum. NIÐURSTAÐA Þróun nútímalyfjameðferðar hefur gjör- breytt berklameðferð. Smithætta af sjúk- lingum er engin eftir 2—3ja vikna meðferð og sérstakir berklaspítalar því óþarfir. Á- hrif meðferðar eru svo góð, að flesta berkla- sjúklinga er hægt að lækna að fullu og gamaldags meðferð, eins og langvarandi hvíld eða skurðaðgerðir eru óþarfar. Lang algengasta orsök misheppnaðrar meðferðar er vanræksla sjúklings á lyfjatöku. Með því að beita einstaklingsbundinni meðferð og áróðri fyrir lyfjatöku má bæta árangur. Berklameðferð í dag er það einföld, að hvaða læknir sem er á að geta tekið hana að sér. Að lokinni fullnægjandi meðferð er eftirlit með fyrrverandi berklasjúklingum óþarft, aðeins sóun á tíma og peningum. SUMMARY The treatment of all patients with tuber- culosis at Vifilsstadir Hospital during the years 1972—1976 is described. There were 103 patients, of which 68 had pulmonary tubercu- losis. The others had tuberculosis in various other organs. The standard therapy was strep- tomycin, isoniazid and ethambutol, but for various reasons rifampicin was used in 34 patients. There were no serious complications, except 2 patients developed visual impairment, but both had complete return of vision after ethambutol was discontinued. Average hospital stay in 1972 was 93 days but had decreased to 41 days in 1976. Duration of therapy was 14—24 months. No relapses occurred during or after therapy up to this date. It is concluded, that tuberculosis can be cured permanently in most cases, if the patients receive proper therapy and have susceptible organisms. Follow-up after completion of therapy is considered un- necessary.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.