Læknablaðið - 01.07.1978, Blaðsíða 44
126
LÆKNABLAÐIÐ
fyrir innanhreinsun. Blóðflæði var mælt i
innri hálsslagæð fyrir og eftir aðgerð með
rafsegulmæli (Nycotron 375).
Síðastliðin 15 ár hafa allar aðgerðir á
innri hálsslagæð í Uppsölum verið gerðar
með hliðarstreymi (shunt) til að tryggja
blóðstreymi til heila, meðan æðinni er lok-
að. Hliðarstreymið hefur verið tengt við
flæðismælinn til að geta stöðugt fylgst með
flæðinu. Síðan á miðju ári 1977 hefur þó
hliðarstreymi aðeins verið notað hjá þeim,
sem hafa lægri bakþrýsting en 40 mmHg.
Af þeim 43 aðgerðum, sem hér er gerð
grein fyrir, voru 30 gerðar með hliðar
streymi, en 13 án.
TABLE II
Operations.
Endarterectomy 40
Endarterectomy + Vein-patch 2
Endarterectomy + resection of ICA +
end-t.o-end anastomosis 1
Total 43
Tegundir aðgerða má sjá í töflu 2. Tví-
vegis var talin ástæða að víkka æðina með
bláæðarbót (vein-patch). Einu sinni var
numinn brott um 1,5 cm af innri hálsslag-
æð vegna lengingar á æðinni eftir innan-
hreinsun og tilhneigingar til að hlykkjast
(kinking). Heparínáhrifin voru látin vara,
prótamín var ekki gefið í aðgerðarlok.
Blóðþynningu var haldið áfram í 3—4 vik-
ur eftir aðgerð.
ÁRANGUR AÐGERÐA
Fylgikvilla aðgerða má lesa í töflu 3.
Skurðdauði var enginn. Tveir sjúklingar
fengu áföll, sem telja verður meiri háttar.
Karlmaður, 63 ára, fékk fullkomið slag við
aðgerð. Hann hafði mjög útbreiddar breyt-
ingar í innri hálsslagæð og samhálsslagæð.
Meðan á aðgerð stóð, fékk hann skyndilegt
blóðþrýstingsfall með systóliskan þrýsting
lægri en 50 mmHg. Það liðu nokkrar mín-
útur, áður en tókst að hækka blóðþrýst-
inginn. Ástæðan fyrir blóðþrýstingsfall-
inu er óljós. Þegar hann vaknaði úr svæf-
ingunni, kom í ljós, að hann hafði helftar-
lömun og afasi. Afasian lagaðist á tveimur
dögum, og máttur kom í ganglim á nokkr-
um dögum, en handleggur var máttvana.
Við skoðun tveimur mánuðum eftir að-
gerð voru hendi og handleggur enn nokkuð
máttvana, en veruleg breyting hafði orðið
til hins betra.
TABLE III
Complications of surgery.
Complete stroke 1
TIA 1
False aneurysm 1
Postoperative hematoma which required
reoperation 1
Ipsilat«ral vocal cord paralysis (transient) 2
Bronchopneumonia 1
Fimmtíu og eins árs karlmaður fékk
falskan æðagúl (false aneurysm) þrem-
ur vikum eftir aðgerð. Hann var skorinn
upp að nýju, og einu spori bætt í sauma-
röðina í æðinni. Aðra fylgikvilla má telja
minni háttar. Karlmaður, 62ja ára, hafði
minnkaðan mátt í handlegg og ganglim,
þegar hann vaknaði eftir aðgerð, en ein-
kennin hurfu á nokkrum klukkutímum.
Sá sjúklingur hafði ferska sega í æðinni
við aðgerð. Einn sjúklingur fékk blæðingu
í skurðsárið nokkrum tímum eftir aðgerð,
svo að ástæða var til að opna sárið að
nýju, og kom þá í ljós, að undirbinding
hafði losnað frá lítilli slagæð í vöðva og
valdið blæðingu. Tveir sjúklingar hlutu
raddbandslömun, sem lagaðist. Loks fékk
elsti sjúklingurinn, 78 ára karlmaður,
lungnabólgu eftir aðgerð og lá 3 vikur á
sjúkrahúsinu vegna þess.
Allir 43 sjúklingarnir komu til skoðunar
tveimur mánuðum eftir aðgerð. Einn sjúk-
lingur, sem fyrir aðgerð hafði haft ein-
kenni skyndiblindu, hafði haldið áfram
að fá augneinkenni eftir aðgerð. Að mati
taugalæknis var sennilega um að ræða s.k.
migraine accompagné, og greining því röng
fyrir aðgerð. Aðrir sjúklingar höfðu ekki
fengið nein ný einkenni eftir aðgerð, en
timinn frá aðgerð er stuttur.
UMRÆÐUR
Aðgerðir á innri hálsslagæð eiga sér nú
næstum 25 ára sögu. Val sjúklinga til að-
gerða og aðferðir við aðgerð hafa tekið
breytingum á þessum tíma, en verða nú að
teljast nokkuð fastmótaðar.1
Aðgerðin er fyrirbyggjandi (preventive),
þ.e. markmiðið er að koma i veg fyrir slag,
fyrst og fremst með því að nema brott