Læknablaðið - 01.07.1978, Blaðsíða 56
134
LÆKNABLAÐIÐ
að munur er oft á dreifingu aldursflokka
þjóðanna, sömuleiðis er dreifingin breyti-
leg frá einum tíma til annars hjá sömu
þjóð. Þá er réttast að nota ekki hráar hlut-
fallstölur, sem áður var getið um, heldur
reikna út hlutfallstölur fyrir einstaka ald-
ursflokka í hvoru kyni. Er þá reiknað út á
sama hátt og áður var getið, deilt með
fjölda einstaklinga í viðkomandi aldurs-
flokki. Þannig fást aldursbundnar hlutfalls-
tölur (age specific rates). Mannfjöldanum
er oft skipt í 5 ára aldursflokka, þó þannig
að fyrsta árið er talið sér, en í næsta flokki
aðeins 4 ár eða 1—4 ára (einnig eru stund-
um fyrstu fimm árin talin hvert fyrir sig)
síðan í þriðja flokki 5—9 ára, síðan 10—14
ára o.s.frv. upp í 80—84 ára og síðan 85 ára
og eldri í síðasta eða 19. flokknum. Á þenn-
an hátt fást þær hlutfallstölur, sem bera
má saman og eru hinar einu ,,réttu“ hlut
fallstölur. Sá böggull fylgir þó skammrifi,
að hér er um að ræða talnaröð, sem inni-
TABLE I
3TANDARD P0PULATI0NS
Age ICELANDIC STANDARD POPULATION WoRLD POPULATION
0- 2,300 2,400
1-4 9-300 9,600
5-9 11,300 10,000
10-14 10,500 9,000
15-19 9,100 9,000
20-24 7,800 8,000
25-29 6,800 8,000
30-34 6,100 6,000
35-39 5,800 6,000
40-44 5,500 6,000
45-49 5,000 6,000
50-54 4,500 5,000
55-59 4,000 4,000
60-64 3,500 4,000
65-69 3,000 3,000
70-74 2,300 2,000
75-79 1,600 1,000
80-84 1,000 500
85+ 600 500
Total 100,000 100,000
heldur 19 tölur fyrir hvort kyn. Mönnum
er óhægt að muna svo margar tölur og bera
þær saman.
ALDURSSTÖÐLUN
Eins og þegar hefur verið sagt, er rétta
aðferðin til að bera saman tíðni sjúkdóms
í tveimur þýðum (populationum), að bera
saman hvern aldursflokk fyrir sig eins og
gert er á 1. mynd, en þar eru aldursbundnar
hlutfallstölur notaðar til að bera saman
dánartölur af völdum blóðþurrðar sjúk-
dóma, sjúkdóma hjarta (ICD-8, 410—414)
og neggbilunar (ICD-8, 428) hjá íslenskum
körlum á fimm tímabilum. Tölurnar eru
teknar úr töflu II.
Til einföldunar hafa menn notað ákveðna
aldursdreifingarstaðla. Danska krabba-
meinsskráin, sem er elsta starfandi krabba-
meinsskrá, er nær til heillar þjóðar, notaði
þegar fyrsta heildaruppgjör skrárinnar var
gefið út1 aldursdreifingu bandarísku þjóð-
arinnar sem staðal. Japanskur vísindamað-
ur, Segi7 hóf 1960 útgáfu á aldursstöðluðum
dánartölum (age specific mortality rates)
og í fyrstu útgáfunni nctaði hann aldurs-
dreifingarstaðal, sem hann bjó til með því
að taka meðaltal af mannfjöldanum í ein-
stökum 5 ára aldursflokkum eins og hann
var hjá 46 þjóðum um 1950. Þessi staðall
er grundvöllurinn að þeim staðli, sem nú
er mest notaður- 3 6 8 11 og nefndur er heims-
staðall (world population). Hann er sýndur
á töflu I. Sama tafla sýnir hvernig tillaga
að íslenskum staðli lítur út. Þessi staðall
er fenginn með því að taka meðaltal meðal-
fjölda í hverjum aldursflokki beggja kynja
á íslandi 1956—1975 að báðum árum með-
töldum og jafna síðan í aldursflokkunum,
þannig að summa flokkanna verði 100.000.
Jafnað hefur verið í heil hundruð í aldurs-
flokkunum, því að aðferðin gefur ekki til-
efni til meiri nákvæmni.
í töflu III er sýnt hvernig slíkur viðmið-
unarstaðall er notaður með einstðkum
dæmum úr töflum I og II.
í töflu IV er síðan sýnt hvernig íslenski
staðallinn er notaður til að bera saman
dánartölur kransæðasjúkdóma á íslandi, en
í töflu V er heimsstaðallinn notaður til að
bera saman dánartölur úr kransæðasjúk-
dómum í nokkrum löndum.