Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.07.1978, Side 34

Læknablaðið - 01.07.1978, Side 34
120 LÆKNABLAÐIÐ því, að lyfjameðferð sé breytt að nauð- synjalausu. Hins vegar verði að nota þau, ef lyfjameðferð mistekst til þess að hægt sé að halda viðeigandi meðferð áfram. Varðandi lengd dvalar á sjúkrahúsi, þá hafa þeir Eddison og Farmer13 sýnt fram á, að stutt sjúkrahúsvist veldur ekki aukinni smithættu frá sjúklingum að lokinni út- skrift. Bates og Stead(i hafa einnig sannað, að þessir sjúklingar hætta fljótlega að smita eftir að lyfjagjöf er hafin og Reich- man og MacDonald3'* telja að venjulega stafi engin smithætta frá sjúklingum eftir 2ja vikna meðferð. Bandarísk heilbrigðis- yfirvöld eru á sömu skoðun. (Tuberculosis Programs 1972).38 WHO expert committee on Tubereulosis40 vekur athygli á úreltri, langvarandi berklahælismeðferð hjá sum- um þróuðum þjóðum og ráðleggur heil- brigðisyfirvöldum þessara landa að athuga, hvernig á því standi að enn sé haldið í gamaldags hælismeðferð þrátt fyrir „dramatískar“ framfarir í lyfjameðferð undanfarin 20 ár. Nefndin leggur áherslu á, að það sé á ábyrgð heilbrigðisyfirvalda að finna hæfileg störf fyrir berklalækna. Gunnels et al2122 báru saman tvo hópa sjúklinga, sem útskrifaðir voru eftir mán- aðar meðferð á sjúkrahúsi. Þau fundu eng- an mun á smithættu frá þeim, sem voru með jákvæðar ræktanir, höfðu sýrufasta stafi í hráka eða voru með neikvæðar rækt- anir. Ég tel þó rétt að leggja inn þá sjúk- linga, sem hafa sýrufasta stafi í hráka og að sjálfsögðu þá sjúklinga, sem sjúkdómur- inn hefur valdið verulegum veikindum. Flesta sjúklinga er hægt að útskrifa innan mánaðar. Fullyrða má, að hægt sé að lækna alla berklaveiki, ef eftirfarandi skil- yrði eru uppfyllt: 1. Sjúklingurinn þarf að þola lyfin og taka þau samkvæmt fyrirmælum læknis. 2. Læknir þarf að skammta lyfin rétt. 3. Berklasýklar þurfa að vera næmir fyrir þeim lyfjum, sem gefin eru. 4. Sjúklingur má ekki vera dauðvona þeg- ar meðferð er hafin. Ef þessum skilyrðum er fullnægt taldi Grzybowski,20 að meðferð mistækist hjá 0,8% og Stead og Jurgen37 fengu sömu tölu. Algengustu ástæður fyrir misheppn- aðri meðferð eru ónóg lyfjagjöf af hendi læknis eða skortur á samvinnu sjúklings. Hann tekur ekki lyfin og oft er um að ræða alcoholismus chronicus. Þá getur misheppn- uð meðferð stafað af ónæmi berklasýkla eða aukaverkunum lyfja. Lyfjameðferð misheppnaðist hjá Edsal og Collins14 í 3,4% tilfella, hjá Stead og Jurgens37 í 7% og hjá Bailey4 í New Orleans í 3,9%, en sjúkling- ar þessara þriggja höfunda voru allir með lungnaberkla. Þessi sjúklingahópur er ekki sambærilegur við sjúklingahópa þessara höfunda. Sjúklingafjöldi er miklu minni, auk þess sem hér eru margir með berkla í öðrum líffærum en lungum og oft er erfitt að dæma um árangur meðferðar af þeim sökum. Þó má fullyrða, að aðeins einn sjúklingur hafi fengið ónóga meðferð frá byrjun. Hann lá á öðru sjúkrahúsi og fékk í 8 mánuði aðeins 300 mg af EMB, auk 300 mg af INH. Þessi sjúklingur hafði spondylitis tuberculosa. Þess var vandlega gætt, ef grunur var um ónæmi berklasýkla fyrir SM og INH vegna fyrri lyfjagjafa, að gefa a.m.k. 2 lyf, sem sjúklingur hafði ör- ugglega ekki fengið áður og var þeirri lyfjagjöf haldið áfram þar til næmispróf hafði borist. Þess var og gætt að hafa með- ferð ekki fastskorðaða heldur reynt að haga henni eftir ástandi sjúklings. Til dæmis var þeim sjúklingum, sem ósam- vinnuþýðir reyndust oft haldið lengur á sjúkrahúsinu, nokkrir sendir til framhalds- meðferðar að Reykjalundi og stundum var bætt við RMP. Oftast var þarna um að ræða einhvers konar félagsleg vandamál og/eða alcoholismus chronicus. Ég tel mig hafa ástæðu til að ætla, að allir sjúklingar hafi í raun og veru tekið lyfin og það sé aðal skýringin á þessum góða árangri. Að mínu mati þá eru sjúklingar hér samvinnu- þýðir og taka lyfin af meiri samviskusemi en annars staðar tíðkast. Nokkru kann hér um að ráða landlægur ótti við berklaveiki og kann að vera, að sá ótti hafi stundum verið notaður til þess að sannfæra sjúklinga um nauðsyn lyfjatöku. Það kom oft fyrir, að sjúklingar höfðu e.t.v. lítinn áhuga fyrir eigin velferð, en þeir vildu fyrir alla muni ekki smita nokkurn annan einstakling. Sjúklingar voru fáir og læknar, er stund- uðu þá, voru einnig fáir, þannig að reynt

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.