Læknablaðið - 01.07.1978, Qupperneq 37
LÆKNABLAÐIÐ
123
36. Shaw, J.B., and Wynn-Williams, N.: Infecti-
vity of pulmonary tuberculosis in relation
to sputum status. Amer. Rev. Resp. Dis.,
1954, 69, 724.
37. Stead, W.W., and Jurgens, G.H.: Producti-
vity of prolonged follow-up after chemo-
therapy for tuberculosis. Amer. Rev. Resp.
Dist, 1973, 108, 314.
38. Tuberculosis Programs 1972, U.S. Depart-
ment of Health, Education and Wellfare,
Public Health Service, DHEW Publication
Nr (CDC) 74-8189, November 1973, P. 1.
39. Westly, T.D., and Baugh, D.O.: Twice week-
ly chemotherapy for tuberculosis, J.A.M.A.,
1973, 224, 247.
40. WHO expert committee on tuberculosis,
ninth report, World Health Organization
Geneva 1974.
41. Wiant, J.R.: Reliabiiity of outpatients tak-
ing ethambutol for tuberculosis. Amer.
Rev. Resp. Dis., 1973, 108, 1235.
Aðalfundur Læknafélags Reykjavíkur 1978
Aðalfundur Læknafélags Reykjavíkur var
haldinn i Domus Medica miðvikudaginn 8. mars
1978. Fundarefni voru venjuleg aðalfundar-
störf, stjórnarkosning og afgreiðsla tillagna
til breytinga á lögum félagsins.
Formaður setti fundinn, skipaði fundar-
stjóra Guðmund Oddsson, en flutti að því loknu
skýrslu stjórnar.
Tveir félagsmenn létust á árinu: Árni Vil-
hjálmsson, fyrrverandi héraðslæknir, sem lést
9. apríl 1977, og Kjartan R. Guðmundsson, fyrr-
verandi vfiriæknir, sem lést 5. október 1977.
Fullt árgjald greiddu á árinu 307 félagar,
hálft árgiald greiddu 48, en gjaldfríir voru 26
félagar yfir 70 ára. Félagatalan er því alls 378.
Á vegum félagsins voru haldnir 7 almennir
fræðslufundir, einn umræðufundur um tilvís-
anaskyldu auk mánaðarlegra fræðslufunda fyr-
ir heimilislækna að vetrinum. Aðalstjórn hélt
40 fundi, aðalstjórn og meðstjórn 10 fundi og
14 fundir sameiginlegir með stjórn L.R. og L.í.
Af Læknablaðinu komu út sex tölublöð.
Skipti urðu á miðju ári á ritstjóra fræðilegs
efnis; Páll Ásmundsson lét af störfum sam-
kvæmt eigin ósk, en við tók Bjarni Þjóðleifs-
son. Eitt fylgirit kom út með Læknablaðinu,
Um siðamái lækna, sem gefið var út i sam-
bandi við Læknaþing.
Samningar sérfræðinga við S.R. og T.R.
stóðu yfir allt árið, og náðist ekki samkomu-
iag fyrr en um miðjan janúar 1978, en þá
höfðu samningar verið lausir frá 1. júlí 1976
"ð'1 18 1/2 mánuð.
Samnmgar heimilis'æknp runnu einnig út 1.
júlí 1976. Siðla árs 1977 voru undirritaðir
samningar milli S.R. og L.R. fyrir heimilislækna
í Reykjavík, og fylgdu þar með að venju Kópa-
vogur og Selt.iarnarnes. Við umræðu um þenn-
an lið skvrslunnar kom hinsvegar í liós. að ekki
höfðu enn verið undirritaðir samningar fyrir
Hafnarfjörð eða Keflavík, enda þótt iæknar á
þessum stöðum séu meðlimir í L.R. Kom fram
sá vilji félagsmanna, bæði sérfræðinga og heim-
ilis’.ækna, að leitað yrði einhverra ráða til að
knýja viðræðuaðila lækna til að vinna á við-
unandi hátt að samningum. Samninganefndum
S.R. og T.R. hefði of lengi haldist uppi að draga
samninga á langinn að eigin geðþótta, án þess
að læknafélögin gætu rönd við reist. 1 öðru lagi
var hreyft þeirri hugmynd, að launabarátta
félaganna yrði samræmd, læknar væru orðnir
um of sundraðir í kjarabaráttu sinni.
Seint á árinu gerðist það, að kiropraktor
iióf starfsemi sína í Reykjavík. Stjórn L.R.
og L.l. skrifuðu landlækni bréf af þessu tilefni
og bentu á, að hér væri um að ræða brot á
lögum nr. 60/1969 og var það til þess að kiro-
praktikorinn lokaði stofu sinni. Næst gerðist
það, að fram kom á Alþingi frumvarp til laga
um breytingu á læknalögum, þar sem ráð-
herra var gefin heimild til að veita mönnum
takmarkað lækningaleyfi. Læknafélögin fengu
frumvarp þetta til umsagnar. Þau töldu, að
tengsl væru milli þessarar frumvarpsgerðar og
tilkomu kiropraktikorsins og lögðust alfarið
gegn frumvarpinu, en til vara lögðu þau til.
að öll slík takmörkuð lækningaleyfi skyldu háð
samþykki læknadeiidar Háskóla Islands. Mun
frumvarpið hafa hlot'ð samþykki með því skil-
yrði.
Á árinu var Guðmundur Jóhannesson skipað-
ur í undirbúnings- og byggingarnefnd lækna-
félaganna, sem fjalla á um byggingu yfir starf-
semi læknafélaganna. Er helst hugsað til að
byggja ofan á háhýsi Domus Medica eða út frá
núverandi húsnæði læknafélaganna.
Reikningar félagsins voru lagðir fram af
gjaldkera. Eyjólfi Haraldssyni, ræddir og sam-
þykktir. Samþykkt var tillaga gjaldkera um að
árgiald skyldi hækka úr 40.000 kr. i 60.000 kr.
Við stjórnarkjör kom fram einn listi frá
stjórn L.R., og hlaut hann kosningu: