Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.07.1978, Side 68

Læknablaðið - 01.07.1978, Side 68
142 LÆKNABLAÐIÐ um. 1976 fékk hún sterkari húðstera, Celeston Valerat, stuttan tima. Nokkru síðar komu fram áberandi húðrákir innan á lærum, þar sem húð var áður heil og laus við útbrot. Höfðu aldrei verið bornir sterar á þessi svæði. Þetta er talið vera Cushing’s einkenni vegna frásogunar og almennrar verkunar steranna. Síðan 1976 einungis fengið meðalsterka stera og frá 1978 eingöngu PUVA-meðferð (Psoralen — UVA eða ultraviolet ljós með langbylgjum, 320 nm). Útbrotin hafa skánað mikið, rákir minnkað en ekki horfið. Mynd J/. — HúÖrýrnun í rassskoru (crena aniJ. 50 ára kona með psoriasis í crena ani. Notað Celeston valerat í a.m.k. eitt ár. Á myndinni sést áberandi húðrýrnun og útbrot með bólum á fyrrnefndu svæði. Meðferð breytt yfir í veik- ari stera. Þrem mánuðum síðar nær einkenna- laus. Mynd 5. — Dermatitis perioralis. 26 ára kona leitar til húðdeildar vegna ,,út- brota í andliti” og aukins hárvaxtar á efri vör. Notað Betnovat krem i andlit um 6 mánaða skeið. Leitaði í upphafi lækninga vegna smá roða og hreistrunar kringum nefið. Meðhöndluð með Vibramycini, pasta zinci og einnig hydro- cortison í 10 daga vegna „rebound phenomen- on“ 4 mánuðum síðar er húð alheil. Mynd 6. — Æöagúlar í andliti. 32ja ára kona leitar til húðdeildar vegna „skeggvaxtar og roða í andliti". 1966, þá þung- uð, fékk hún Celeston Valerat vegna smá út- brota í andliti. Notað það stöðugt síðan. Reynt að hætta af og til en ekki tekist vegna „re- bound phenomenon". Á myndinni sést húð- rýrnun, blárauðir netlaga æðagúlar og aukinn hárvöxtur. Meðhöndluð með tetracyciin, bórsýru og brennisteinsáburði. Sjúkl. fékk svæsið „rebound phenomenon”, með bólgu, útbrotum, miklum kláða og siðar hreistrun á andliti. 6 mán, eftir að sterameðferð var hætt var húð enn mjög þunn í andliti og verulegur, en þó minni hár- vöxtur. FLOKKUN Margar rannsóknir húðsjúkdómafræð- innar hafa á síðustu árum fjallað um sam- anburð á hinum ýmsu tegundum stera til útvortis meðferðar. Borin er saman virkni (potens) mismunandi lyfjaforma með breytilegri remmu og gerð burðarefnis. Ýmsum rannsóknaraðferðum hefur verið beitt og má þar nefna hemjandi áhrif stera á vöxt bandvefsfruma, samdráttaráhrif á æðar, útskilnað hormónanna í saur og þvagi o.fl. Árið 1962 sýndu McKenzie og fleiri12 13 fram á, að með því að bera saman áhrif stera á samdrátt smáæða undir plast- himnu (vasoconstriction test) mátti fá veigamiklar upplýsingar um, hversu mikið magn hvers hormóns fyrir sig frásogaðist í gegnum húðina. Þessi aðferð þykir yfir- leitt koma best heim og saman við kliniska reynslu af virkni lyfjanna.8 Það var á grundvelli slíkra rannsókna sem Hagerman kom fram með flokkun sína á þessum lyfja- flokki 1971.Tilgangurinn var, að auðvelda læknum notkun þessara lyfja, gera með- ferð markvissari og draga úr aukaverkun- um. Flokkun hans hefur þróast með árun- um eftir því sem ný lyf hafa komið fram.1!l Engin alþjóðleg flokkun er til á þessum lyfjum, t.d. eru Bretar með sína eigin, sem í meginatriðum líkist hinni sænsku, þótt númeraröðin sé öfug.17 Undanfarið hefur samstarfsnefnd fulltrúa frá Danmörku, Noregi, Sviþjóð og Finnlandi unnið að end- urskoðun þessarar flokkunar í ljósi nýjustu rannsókna. Birtust niðurstöður hennar ný- lega.8 Ef að líkum lætur mun flokkun nefndarinnar verða notuð á Norðurlöndum. Tafla III sýnir þessa flokkun og hvernig þeir húðsterar flokkast, sem voru í notkun hér á landi í árslok 1977 og er flokkunin hin sama og er í Lyfjafréttum 3. tbl. 1. árg. NIÐURSTÖÐUR Flokkunin og þau rök sem liggja henni til grundvallar gera kleift að velja húð- stera með mun meiri nákvæmni en áður. Sérstaklega ber að hafa í huga eftirfarandi atriði: Lyf sem tilheyra fyrsta flokki hafa sæmileg áhrif á eczema, en í flestum til- fellum engin áhrif á psoriasis, nema um börn sé að ræða. Þessi lyf eru því heppileg við langtímameðferð og á vissum svæðum líkamans.-'1 8 19 Lyf úr öðrum flokki hafa góð áhrif á eczema, en lítil á psoriasis nema í andliti og nárum. Lyf úr fyrsta og öðrum flokki eru yfirleitt nægilega virk fyrir börn og því heppilegust í slíkum tilfellum. Það er einnig talið varhugavert vegna hugsanlegra áhrifa á fóstrið að nota kröftugri stera hjá vanfærum konum, sem þarfnast meðferðar á stór húðsvæði á meðgöngutíma.111 Lyf úr þriðja flokki eru talin hafa einna best áhrif á psoriasis. Vegna virkni sinnar

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.