Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 01.07.1978, Qupperneq 90

Læknablaðið - 01.07.1978, Qupperneq 90
158 LÆKNABLAÐIÐ né ónæmisaðgerðir, en tel að hann eigi að hafa yfirsýn yfir öll þau vandamál sem upp koma við framkvæmd þessara heilsugæsluþátta. Barnalæknirinn nýtist best ef mestum tima hans er varið til skoðunar og meðferðar á akut veikum jafnt sem króniskt veikum börnum. Nú kann að líta svo út að ég sé einungis að fjalla um heilsugæslustöðvar á Reykjavíkursvæðinu, en svo er ekki, því ég tel að þessi sjónarmið eigi einnig að gilda um heilsugæslustöðvar í dreifbýli. Mér er kunnugt um það að barna- læknar hafa hug á að bjóða fram þjónustu sína í dreifbýli í ríkara mæli en nú er. Þetta mætti framkvæma með reglubundnum heimsóknum barnalækna á heilsugæslustöðvar dreifbýlisins. Ég álít að sérhver heilsugæslustöð eigi að ann- ast lækningar þess hóps sem til hennar leitar svo fremi að ekki sé þörf vistar á sjúkrahúsi eða stofnun, eða þá að um sé að ræða mjög sér- hæfða sjúkdómaflokka. Það hlýtur að vera til mikils hægðarauka fyrir sjúklinginn að geta leitað á einn og sama staðinn með öll sin vandamál. Slíkt fyrirkomulag ætti að minnka hættuna á því að sjúklingurinn dragi of lengi að leita læknis. Hins vegar má ekki í okkar lýðfrjálsa landi klafabinda sjúklinginn svo að hann eigi þess ekki kost að leita til annarra lækna en þeirra er starfa við heilsugæslustöð- ina sem honum ber að leita til. Þess vegna lít ég svo á að frjáls „praksis11 á stofu eigi að viðhaldast, svo að sjúklingurinn eigi þess kost að neyta réttar síns og leita annarra lækna, komi upp missætti rnilli hans og lækna heilsu- gæslustöðvarinnar. Það verður þvi að sjá til þess að hinn frjálsi sérfræði-,,praksis“ verði opnari sjúklingunum en nú er og ekki bundinn duttlungum tilvísanakerfisins. Það yrði síður en svo til þess að rýra gildi þjónustunnar við sjúklinginn, miklu frekar yrði frjáls „praksis" til þess að hvetja hvern og einn lækni til þess að vinna vel. Sigurður S. Magnússon HLUTVEIÍK KVENSJÚKDÖMA- OG FÆÐINGALÆKNA MÆÐRAVERND Sú skoðun hefur lengi verið viðloðandi, að mæðraskoðun nyti ekki mikillar virðingar sem þýðingarmikill þáttur í heilsuvernd og að það krefjist ekki mikillar þekkingar að annast slík- ar skoðanir. Eigi að síður er það staðreynd, að bætt mæðravernd og það sem mætti kalla fóst- urvernd hefur átt hvað mestan þátt í þeirri minnkun á nýburadaúða, sem orðið hefur í flestum löndum á undanförnum árum. Hin mjög svo öra framþróun í fæðingafræði, ásamt tæknilegum nýjungum, krefst þess, að beitt sé við mæðravernd mun meiri sérþekkingu en áð- ur. Til þess að ná sem bestum árangri teljum við, að mæðraskoðun sé best borgið í höndum sér- hæfs starfsfólks í sem nánustum tengslum við vel búnar fæðingastofnanir. Eftirfarandi atriði eru skilyrði fyrir fullkominni mæðravernd: 1. Vel þjálfað starfslið. 2. Aðgangur að fullkominni rannsóknastofu, sem er m.a. búin til þess að taka við sýnum til 'hormonmælinga. 3. Aðgangur að sonartæki og sonarsérfræð- ingi. 4. Aðgangur að röntgendeild, þar sem eru læknar sérhæfðir í obstetriskri sjúkdóms- greiningu. 5. Aðgangur að annarri sérfræðingsþjónustu í læknisfræði, svo sem í blóðmeinafræði, augnlækningum og sykursýki. 6. Möguleiki á að gera legvatnsástungur og litningarannsóknir. 7. Sérþjálfað starfslið á félagslegum vett- vangi, sem getur sinnt slíkum málum þungaðra kvenna. 1 Reykjavik er sú einstaka aðstaða, að völ er á allri þessari þjónustu á einum stað. Þess má einnig geta, að nútíma fæðingadeildir hafa tekið mjög miklum stakkaskiptum á síðustu 10 árum. Núorðið er um að ræða háþróaða gjörgæslu við fæðingar, sem á ekkert skylt við þá fæðingarhjálp, sem við áður höfðum. Sé þetta allt athugað, og haft i huga hvað það hefur kostað að koma upp þessari full- komnu aðstöðu, og hver hugsun lá að baki, þá sýnast forsendur fyrir því að miðstýra mæðra- vernd og tengja hana fullkominni fæðingar- stofnun nákvæmlega þær sömu og þær, að tengja heilsuverndarstöðvar sjúkrahúsum um land allt, svo að sem best nýtist sú rannsóknar- aðstaða, sem er á sjúkrahúsum, til hagsbóta fyrir sjúklingana. Af þessu má sjá að mæðra- vernd verður best fyrir komið, þar sem hún er í sem nánustum tengslum við vel búnar fæð- ingarstofnanir. Því verður svo best fyrir komið, að þeir læknar, sem annast mæðravernd, séu jafnframt starfsmenn umræddrar fæðingar- stofnunar. Slík skilyrði eru eins og best verður kosið (optimal) á Reykjavíkursvæðinu, þar sem þegar eru mæðraskoðun Heilsuverndarstöðvar- innar, mæðraskoðun Kvennadeildar Landspítal- ans og tvær fæðingarstofnanir. Nú vaknar spurningin um það, hvort ástæða sé til að dreifa mæðravernd á Stór-Reykjavíkursvæðinu á heilsugæslustöðvarnar með tilkomu þeirra víðsvegar um borgina. Mæðraverndin myndi þá dreifast á sjö til átta staði i borginni og vera í höndum heilsugæslulækna, sem elcki hafa hlot- ið sérmenntun á þessu sviði og eru ekki í beinu sambandi við fæðingarstofnanir. Þá yrði hverf- andi möguleiki á að veita þá mæðravernd, sem nútíma þekking getur látið í té, enda er það
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.