Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.07.1978, Síða 92

Læknablaðið - 01.07.1978, Síða 92
160 LÆKNABLAÐIÐ mikið með heimilis- og heilsugæzlulæknum. Slikar samráðskvaðningar eru grundvallaðar á voninni um útfærslu heilsuverndar í víðasta skilningi. Varðandi fyrsta stig heilsuverndaraðgerða í geðlæknisfræðum (primary prevention) er ekki um það að ræða, að skaðvaldurinn sé þekktur, líkt og í smitsjúkdómum og er því horfið að því ráði að hafa áhrif á sjúklinginn eða um- hverfið. Eitt það fyrsta sem tekið var fyrir i geðheilsuvernd, var meðferð þegar bráð vanda- mál koma upp (crisis intervention) og siðar i því formi að reyna að sjá vandann fyrir og gera viðeigandi ráðstafanir (crisis preventive intervention). Báðum þessum aðferðum hefur nú verið beitt í töluverðum mæli, en athyglis- vert er, að krisu-fyrirbyggjandi-meðferð hefur ekki verið beitt í miklum mæli til þess að búa fólk undir eölileg lífsáföll, svo sem missi ást- vina og það að setjast i helgan stein. Hér mætti ætla að starfsmenn heilsugæzlustöðva gætu unnið gagnlegt fyrirbyggjandi starf. Annað verkefni er sömu aðilar gætu spreytt sig á, er að vinna með fjölskyldum þar sem líklegt er að börn verði fyrir missi foreldris (parental deprivation). Enda þótt deilt hafi verið um gagnsemi geðverndardeilda barna víða um heim, hafa rannsóknir innan veggja þeirra vak- ið vonir um að hægt sé að finna þennan á- hættuhóp barna og hamla gegn áhrifum ást- vinarmissis. Það má einnig ætla að starfsmenn heilsugæzlustöðva gætu unnið að því að koma í veg fyrir mis'pyrmingu barna á heimilum þeirra og með því að vinna beint eða óbeint að fjölskyldumeðferð þar sem um er að ræða drykkjuskap, hjónaerjur og því um líkt, má hamla gegn hegðunarvandamálum barna og unglinga-afbrotum, þar eð vandamál foreldra af þessu tagi eru talin til orsakaþátta slíkra vandkvæða hjá börnum og unglingum. Ég tel tvimælalaust að starfsfólk heiisugæzlustöðva ætti að beina athygli sinni að bezt skilgreindu sjúkdómsfyrirbærunum, en ekki að víðum og illa skilgreindum félagslegum vandamálum. Má hér benda á að það sem fyrst og fremst sníður heilsuvernd á geðsviðinu þröngan stakk, er skortur á skörpum haldgóðum skilgreiningum og frekari grunnrannsóknum. Meðal annara aðgerða á geðsviðinu (second- ary prevention), má nefna hóprannsóknir til þess að finna sjúkdóms-fyrirbærin og með- höndla þau. Undir þetta heyrir meðferð bráðra vandamála, sem fyrr voru nefnd, svo og fræðsla almennings, þannig að hann verður sér betur meðvitandi um forboða og einkenni sjúkdóm- anna og veiti athygli úrræðum til bóta. Ætla má, að slík fræðsla hafi einhver áhrif á mark það (stigma) er jafnan fylgir geðsjúkdómum. 1 rauninni má segja að ekki sé alltof mikið vitað um gildi slíkra fyrirbyggjandi aðgerða. E.t.v. hafa þær ekki mikil áhrif á gang alvar- legri geðsjúkdóma, en skipta því meira máli varðandi „reactiva" sjúkdóma og „krisur". Starfsemi heilsugæzlulækna á þessu sviði getur vafalaust orðið meiri en hún er í dag, en hlýt- ur óhjákvæmilega að markast af þjálfun þeirra, viðhorfum, tíma og aðstæðum. Varðandi þriðja stig aðgerða (tertiary pre- vention), held ég að þær komi ekki mjög mikið til kasta heilsugæzlulækna, en mæði því meir á sérfræðingum og stofnunum, en benda má þó á það, að endurhæfing á sér ekki einungis stað innan veggja stofnana, þar eð sjúklingar með geðkvilla eru af ýmsum ástæðum útskrif- aðir af þeim út í samfélagið og þá mismunandi hæfir til vinnu og félagslegrar aðlögunar. Heilsugæzlulæknirinn myndi tæpast hafa í umdæmi sínu úr að spila frekari endurhæf- ingarmöguleikum, eins og nú er háttað og mundi hlutverk hans því miklu fremur vera það að halda utan um það sem hefur áunnizt á stofnunum og reyna að sporna við allri hnignun. Að lokum langar mig til að minnast lítillega á „mental health consultation". Slíkar sam- ráðskvaðningar geta tekið á sig ýmis form og er sameiginlegt með þeim öllum, að gera heilsu- gæzlulæknana og jafnvel annað starfslið heilsu- gæzlustöðva færara um að takast á við geðræn vandamál, er fyrir koma í umdæmi þess. Taka ber skýrt fram, að þessar tilkvaðningar geð- lækna eru ekki handleiðsla i geðlæknismeðferð. Ég tel, að loknum þessum hugleiðingum, að „mental health consultations" á heilsugæzlu- stöðvum sé lang hagnýtasta þjónustan er geð- Iæknar kynnu að veita á þeim vettvangi. Hvaða form samráðskvaðningar tækju á sig, færi mjög eftir því sem bezt hentaði heilsugæzlulæknun- um á hverjum stað. Væntanlega yrði slík vinnu- aðferð til þess að gera fleiri sjúklingum kleift að njóta meðferðar vegna geðrænna vanda- máía og ennfremur til þess að treysta frekar böndin milli stofnana og samfélagsins og treysta þannig samhengi i meðferð. Rögnvaldur Þorleifsson UM HLUTVERK SKURÐLÆKNA Skurðlækningar eru stórt sérfræðisvið, með margar undirgreinar og ætla ég mér ekki þá dul að tjá mig um hugsanlegt hlutverk þeirra allra í starfi heilsugæzlustöðva. Ég mun hins vegar minnast á nokkur atriði, sem ég tel mig helzt bera skyn á. Af praktiskum ástæðum væri rétt að skipta heilsugæzlustöðvum í tvo hópa, annars vegar þær, sem eru í dreifbýli og hins vegar þær, sem í þéttbýli eru, þ.e. fyrst og fremst á Stór- Reykjavíkursvæðinu. Til glöggvunar held ég, að rétt sé að skipta þjónustu skurðlækna á heilsugæzlustöðvum í þrennt: 1. Bráð þjónusta. 2. Farandlækningar. 3. Ráðgjöf, símleiðis eða bréfleiðis.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.