Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.2007, Blaðsíða 2
föstudagur 16 febrúar 20072 Fréttir DV
Velferðarsvið Reykjavíkurborgar út-
hlutar íbúðum hálfsmánaðarlega á
vegum Félagsbústaða og þurfa um-
sækjendur að fylla út sérstakt mats-
viðmiðunarskjal, þar sem þeim eru
gefin ákveðin stig eftir félagslegum
aðstæðum, fjölda barna og stöðu
maka. Ef litið er á matsviðmiðið
kemur í ljós að einstæð tveggja barna
móðir á minni möguleika á því að fá
íbúð heldur en fólk í sambúð.
Á götunni um jólin
Þórdís Bjarnleifsdóttir er einstæð
tveggja barna móðir og 75% öryrki.
Í ágúst á síðasta ári var leigusamn-
ingi hennar sagt upp og henni gert
að rýma íbúðina fyrir 1. desember.
Þórdís sagði í samtali við DV að Fé-
lagsbústaðir hefðu verið látnir vita af
málinu strax í ágúst. Hinn 1. desem-
ber hafði fjölskyldan ekki enn feng-
ið úthlutað íbúð þrátt fyrir að hafa
ítrekað haft samband við félags-
málayfirvöld. „Ég ákvað að sækja um
í allri Reykjavík til þess að greiða fyr-
ir því að fá íbúð, en ég fór í gegnum
11 íbúðaúthlutanir frá því að ég vissi
að ég myndi missa íbúðina, án þess
að nokkuð gerðist,“ segir hún. Í byrj-
un desember neyddist Þórdís til þess
að leigja sér lít-
ið herbergi og
bjuggu börn-
in hjá vinkonu
hennar á með-
an. Aðskilnað-
urinn var fjöl-
skyldunni afar
erfiður því eldri
sonur hennar
er sjálfur veik-
ur og þarf að
vera í öruggu
umhverfi, að
hennar sögn.
„Mér var sagt að
ég hefði verið sett
í forgang, en listinn er svo óhemju-
langur og alltaf kom einhver inn
sem var í ennþá verri stöðu en ég.
Ég hafði samband við Þjónustumið-
stöðina í Laugardal og Háaleiti nær
daglega, en mér var alltaf sagt að
bíða róleg, sem er mjög erfitt þegar
maður á hvergi heima. Loksins fékk
ég íbúð þann 29. janúar eftir að hafa
verið heimilislaus í tvo mánuði. For-
gangurinn sem mér var lofað var
ekki meiri en svo að ég þurfti að bíða
í fimm mánuði eftir húsnæði. Í þrjár
vikur var ég aðskilin frá börnunum
mínum.“
Þórdís segir þau úrræði sem sér
hafi verið boðin á meðan hún var á
götunni, hafa verið fáránleg. „Okkur
var boðið að leigja pínulítið herbergi
hjá Félagi ein-
stæðra foreldra,
sem kom aldrei
til greina vegna
aðstæðna sonar
míns. Almenn-
ingur trúir því að
hann búi í vel-
ferðarríki, en því
fer fjarri, ég þekki
allavega fleiri
dæmi af fólki sem
hefur lent í svip-
uðum aðstæðum
og ég.“
Bjó í bíl í
Öskjuhlíðinni
Hjá Velferðar-
sviði Reykjavíkur-
borgar fengust þær
upplýsingar að þeir
sem fái flest stig á mat-
sviðmiðinu fari í forgang í íbúðarút-
hlutunum, en undantekningar séu
þó gerðar í neyð. Ellý Þorsteinsdóttir,
skrifstofustjóri Velferðarsviðs sagðist
þó ekki geta metið það hversu lengi
þeir verst settu þurfi að bíða eftir
íbúð. Varðandi sértæk úrræði fyrir þá
umsækjendur sem lenda á götunni,
segir hún:
„Reykjavíkurborg er með sérstak-
ar húsaleigubætur sem bætast ofan á
venjulegar húsaleigubætur, þær fara
eftir fjárhagsaðstæðum og eiga að
hjálpa fólki að leigja íbúð á frjálsum
markaði.“ Hún viðurkennir jafnframt
að mikill skortur sé á íbúðum og við-
urkennir að hún þekki dæmi þess að
fólk hafi lent á götunni á meðan það
bíður eftir húsnæði.
Jón Kristinn Snæhólm, aðstoðar-
maður borgarstjóra skellir skuldinni
á fyrrverandi meirihluta í borgar-
stjórn. „Það var mjög lítið byggt og
keypt af félagslegum íbúðum á tím-
um R-listans og í dag finnum við fyr-
ir alveg gríðarlegri þörf og eftirspurn.
Í sumar var ég persónulega í því að
taka inn fólk í félagslega húsnæðis-
kerfið, sem bjó í bíl í Öskjuhlíð-
inni, fólk sem hafði lent utan gátta
og hafði ekki efni á öðrum búsetu-
möguleikum.
Sjö hundruð umsækjendur eru á biðlista eftir félagslegum íbúðum í Reykjavík. Dæmi
eru um að fólk hafi þurft að bíða í fimm mánuði eftir húsnæði og lent á götunni í milli-
tíðinni. Þórdís Bjarnleifsdóttir, 75% öryrki, var á götunni í tvo mánuði. Hún segir svör-
in sem hún fékk hjá félagsmálayfirvöldum hafa verið fáránleg. Aðstoðarmaður borgar-
stjóra þekkir sjálfur dæmi um fólk sem bjó í bíl í Öskjuhlíðinni.
Heimilislausir
öryrkjar sofa í
bílum í öskjuHlíð
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is
Gunnlaugur heitinn Þórðar-
son hæstaréttarlögmaður kom
mikið við sögu í þeim málum
sem undanfarnar vikur hafa
verið tekin til umfjöllunar í DV
og öðrum fjölmiðlum. Gunn-
laugur var í raun maðurinn sem
„skrúfaði fyrir kranann“ á vist-
heimilunum Bjargi og Breiðu-
vík. Gunnlaugur átti þá sæti í
Barnaverndarráði Íslands, fyrst
sem lögmaður og síðar formaður
ráðsins.
„Gunnlaugur var einstakur
maður, duglegur, góður og örlát-
ur. Hann bar hag barna fyrst og
fremst fyrir brjósti og átti stór-
an þátt í því að stúlknaheimil-
inu Bjargi og drengjaheimilinu í
Breiðuvík var lokað. Ég hafði nóg
á minni könnu en var honum
algjörlega sammála í þessari bar-
áttu,“ segir Herdís Þorvaldsdóttir
leikkona.
Í opnuviðtali Önnu Kristine
í DV í dag ræðir Herdís með-
al annars um eiginmann sinn
til áratuga, segir frá viðhorfum
sínum til umhverfismála og rifjar
upp æskuár sín.
Sjá síður 38–39.
Gunnlaugur skrúf-
aði fyrir kranann
Tekinn með hass
Lögreglan á
Akureyri handtók í
vikunni karlmann,
eftir að fíkniefni
fundust við leit á
honum. Að sögn
lögreglu var um
lítilræði af hassi að
ræða og játaði karl-
maðurinn að efnið
hefði verið ætlað til einkaneyslu.
Það var fíkniefnalögreglumaður
á flugvellinum á Akureyri sem
kom auga á manninn sem hef-
ur ekki komið við sögu lögreglu
áður. Málið telst nú upplýst.
Biðlisti eftir félagslegum íbúðum í Reykjavík hef-
ur aldrei verið lengri. 1. nóvember síðastliðinn
biðu 700 umsóknir afgreiðslu félagsmálayfirvalda
og stærsti hluti þeirra er margra mánaða gamall.
Valgeir Örn ragnarsson
blaðamaður skrifar: brynjolfur@dv.is
Matsviðmiðunarskjal
Velferðarsviðs umsækjend-
ur fá stig eftir búsetuskilyrð-
um, félagslegum aðstæðum
og hjúskaparstöðu.
ekið á eldri
borgara
Ekið var á 78 ára mann við
gatnamót Mávahlíðar og Löngu-
hlíðar rétt fyrir klukkan þrjú í
gærdag. Maðurinn var fluttur á
slysadeild með sjúkrabíl. Bílstjór-
inn, sem einnig er roskinn, fór á
slysadeild og þáði þar áfallahjálp.
Að sögn lögreglunnar var honum
verulega brugðið.
skoða gögn
um einokun
Samkeppniseftir-
litið hefur ekki tekið
afstöðu til kaupa
Frumherja hf. á Að-
alskoðun hf. Með
kaupunum verð-
ur Frumherji eina
bifreiðaskoðunar-
fyrirtækið. Hlynur
Hallsson þingmaður gagnrýndi
Samkeppniseftirlitið fyrir linkind
í málinu.
„Við höfum fengið tilkynningu
um kaupin og tökum afstöðu
innan þrjátíu daga. Við getum þó
beðið um frest til þess að skoða
málið nánar,“ segir Páll Gunnar
Pálsson, forstjóri Samkeppniseft-
irlitsins.
Handrukkarar í SPRON í Skeifunni
Börðu fórnarlamb
sitt í bankanum
Handrukkarar voru á ferð við úti-
bú Sparisjóðs Reykjavíkur og ná-
grennis í Skeifunni á ellefta tímanum í
gærmorgun. Að sögn lögreglu lítur út
fyrir að árásarmennirnir hafi ætlað að
pína ungan mann til að taka út pen-
inga og nota þá til að greiða skuld.
Fórnarlambið er karlmaður á þrí-
tugsaldri. Hann var numinn á brott úr
bankanum eftir að árásarfólkið gekk
í skrokk á honum á staðnum. Þá var
honum hótað frekara ofbeldi ef hann
yrði sér ekki úti um peninga til að
greiða skuldina sem fólkið ætlaði að
innheimta.
Lögregla hefur karlmann og konu
í haldi. Þau eru bæði á þrítugsaldri.
Fólkið er grunað um barsmíðarnar og
að hafa numið manninn á brott.
Maðurinn sem varð fyrir árásinni
leitaði sér aðstoðar eftir árásina.
Hann er með áverka á öxl og í andliti
eftir aðfarir fólksins.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
vinnur að rannsókn málsins. Þar á bæ
vörðust menn allra frétta af málinu.
Ekki er ljóst hvort atvikið í SPRON
í gær tengist öðrum handrukkunar-
málum sem komið hafa upp að und-
anförnu.
lögreglan við sPron
Maður á þrítugsaldri var handrukkaður
við útibú sPrON í skeifunni.
Ísland minnki
útblástur
Árið 2050 ættu Íslendingar að
losa helmingi til 75 prósent minni
koltvísýring en árið 1990, sam-
kvæmt stefnu sem umhverfisráð-
herra kynnti í gær.
Þessu markmiði verður með-
al annars náð með því að auka
hlut endurnýjanlegra orkugjafa og
með því að binda meiri koltvísýr-
ing með skógrækt og endurheimt
votlendis.
Þá verður stutt við íslenskt hug-
vit og rannsóknir á leiðum til þess
að draga úr útblæstri gróðurhúsa-
lofttegunda.
Þórdís Bjarnleifsdóttir
Varð heimilislaus með börnin sín tvö.
Þórdís er 75 prósent öryrki.
Fellahverfi
Margar félagslegar íbúðir eru
í því hverfi. Það vantar fleiri
íbúðir til að anna þörfinni.