Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.2007, Blaðsíða 26
Kannanir á fylgi stjórnmálaflokk-
anna birtast nú með mjög reglulegu
millibili. Capacent Gallup birti sína
könnun hinn 2. febrúar síðastliðinn,
Blaðið birti könnun 6. febrúar og um
síðastliðna helgi birti Fréttablaðið
fylgiskönnun sína. Vinstrihreyfingin
- grænt framboð er eini flokkurinn
sem bætir við sig fylgi í hverri könnun
og í könnun Blaðsins mældist flokk-
urinn í fyrsta skipti með meira fylgi
heldur en Samfylkingin. Fylgi hinna
flokkanna rokkar hins vegar um-
talsvert á milli kannana. Sjálfstæð-
isflokkurinn mælist áfram stærsti
flokkurinn, en fylgi hans mældist
38,8% í könnun Capacent Gallup, í
könnun Blaðsins mældist það aftur
á móti 45,4%, en í nýjustu könnun
Fréttablaðsins mældist það 36,8%.
Mjög stór hluti þeirra sem svöruðu
sagðist vera óákveðinn og í könnun
Fréttablaðsins kváðust 45% svarenda
ekki hafa gert upp hug sinn. Þá vekur
athygli að í tveimur af þremur fylgis-
könnunum er ríkisstjórnin fallin.
Mikil gerjun í stjórnmálum
Baldur Þórhallsson, prófessor í
stjórnmálafræði við Háskóla Íslands,
telur niðurstöður kannana sýna að
flokkarnir geti ennþá sótt mikið fylgi,
því stór hluti kjósenda virðist enn-
þá vera óákveðinn. Þá bendir hann
einnig á að flokkshollusta kjósenda
virðist víða vera á undanhaldi. „Þó
svo að fylgi flestra flokka sé nokk-
uð rokkandi eiga þessar kannanir
það sameiginlegt að sýna afar sterka
stöðu vinstri grænna og afleita stöðu
Framsóknarflokksins, sem mælist
langt undir kjörfylgi.“
Baldur telur niðurstöðurn-
ar ekki heldur sérlega góðar fyr-
ir Sjálfstæðisflokkinn, því flokk-
urinn mælist oft með meira fylgi
í könnunum en í kosningunum.
Flokkurinn þarf því að halda vel
á spöðunum til þess að ná því fylgi
sem hann mælist nú með. „Það er
einnig mjög athyglisvert að sjá í að-
draganda kosninganna að valkost-
irnir eru mun skýrari fyrir kjósend-
ur en oft áður. Ef ríkisstjórnin heldur
velli munu flokkarnir leitast við að
mynda stjórn áfram. Á hinn bóg-
inn hafa leiðtogar Kaffibandalagsins
sagst ætla að ræða stjórnarmyndun,
ef þeir ná að fella ríkisstjórnina.“
Ýmsar stjórnarmyndanir í
kortunum
Baldur telur fulla ástæðu til að
ætla að stjórnarandstöðuflokkarn-
ir muni ná að stilla saman strengi
sína og mynda ríkisstjórn, nái þeir
að fella ríkisstjórnina. „Sam-
vinna flokkanna, það sem
af er þessu þingi, gefur til
kynna að þeim ætti að
takast að mynda stjórn,
en það veltur þó á því
hversu langt Frjáls-
lyndi flokkurinn ætl-
ar að ganga
í inn-
flytjendamálum.“
Hann segir hins
vegar að ef Fram-
sóknarflokkurinn
nái sjö til átta kjörn-
um mönnum, muni
flokkurinn að öllum
líkindum sækjast
eftir því að fara
í áfram-
föstudagur 16. febrúar 200726 Helgarblað DV
Capacient Gallup
2. feb 2007
Blaðið
6. feb 2007
Fréttablaðið
11. feb 2007
8,
8%
10
,7
%
23
,8
%
37
,8
%
18
,7
%
Capacent Gallup 2. febrúar 2007
vinstriflokkarnir með meirihluta
Margt bendir til þess að ríkisstjórnin muni falla í kosningunum í
vor. Capacent Gallup, Blaðið og Fréttablaðið hafa öll birt skoðana-
kannanir nýlega sem sýna að ríkisstjórnin heldur tæplega velli.
Baldur Þórhallsson, stjórnmálafræðingur við Háskóla Íslands,
telur líklegt að stjórnarandstöðuflokkarnir nái að mynda ríkis-
stjórn. Framsóknarflokkurinn stefnir í afhroð.
haldandi ríkisstjórn með Sjálfstæð-
isflokknum.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hef-
ur lýst því yfir að ef af stjórnarmynd-
un Kaffibandalagsins verði, þá geri
Samfylkingin tilkall til forsætisráðu-
neytisins. Fylgistap Samfylkingarinn-
ar hefur þó veikt þær kröfur og segir
Baldur að flokkurinn verði í verulega
slæmri stöðu ef hann mælist aft-
ur með minna fylgi en vinstri græn-
ir. Hann telur jafnframt ólíklegt að
Frjálslyndi flokkurinn muni gera
kröfu til forsætisráðuneytisins, fari
hann í ríkisstjórn. Staða flokksins
hefur veikst eftir ringulreiðina og
klofninginn á landsþinginu, en ekki
er hægt að meta varanlega áhrif
klofningsins fyrr en Margrét Sverris-
dóttir hefur tilkynnt hvort hún bjóði
fram í vor.
„Vinstri grænir eru sennilega í
sterkustu stöðunni af stjórnarand-
stöðuflokkunum.
Öll umræðan um
umhverfismál
hefur styrkt
flokkinn
verulega og
umræður
um mögu-
legar
virkjanir
í Þjórs-
árver-
um eru
flokknum tvímælalaust í hag. Um-
hverfismálin hafa verið mikið í um-
ræðunni síðustu tvö ár og það sér
ekki fyrir endann á þeirri umræðu,
þannig er mjög líklegt að vinstri
grænir muni styrkja stöðu sína enn
meira.“
Guðjón Arnar Kristjánsson, Frjálslynda flokknum:
Ríkisstjórnin fallin
„Ég sé að við erum að komast út úr þeirri neikvæðu umræðu sem var
haldið uppi í hálfan mánuð. Það er líka mjög athyglisvert að þessi könnun
sýnir að stjórnarandstaðan fellir ríkisstjórnina. Það eru mjög merkilegar
fréttir. Við sættum okkur hins vegar auðvitað ekki við þetta fylgi, því við
viljum fara yfir 10%. Allt upp fyrir það er í þá átt sem við viljum sjá.“
VAlGeir Örn rAGnArsson
blaðamaður skrifar: valgeir@dv.is
Baldur Þórhallsson, prófessor
í stjórnmálafræði við Háskóla
Íslands baldur bendir á að flokks-
hollusta hafi farið dvínandi og því
geti flokkarnir sótt mikið fylgi frá
óákveðnum kjósendum.