Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.2007, Blaðsíða 11
DV Fréttir föstudagur 16. febrúar 2007 11
n 26. febrúar 2004 -
18 mánuðir
rúmlega sextugur maður hlaut átján mánaða
fangelsisdóm fyrir kynferðisbrot gegn stúlku
á meðan hún var á aldrinum sjö til ellefu
ára. Maðurinn hafði káfað og þukl-
að á brjóstum og kynfærum
stúlkunnar og sett fingur í
leggöng hennar. Mað-
urinn neitaði stað-
fastlega sök.
Honum
var
gert að greiða stúlkunni 500 þúsund krónur í
miskabætur.
n 20. nóveMber 2003 - 18 mánuðir
43 ára karlmaður hlaut átján mánaða fangelsisdóm
fyrir kynferðisbrot gegn þremur stúlkum á aldrin-
um ellefu til sextán ára. Maðurinn hafði margsinn-
is þuklað stúlkurnar, innan og utan klæða, reynt
að þvinga tungu upp í munn þeirra og sett fingur
í leggöng einnar stúlknanna. Stúlkurnar fengu
miskabætur.
n 8. Maí 2003 -
3 mánuðir
auk skilorðs
Hæstiréttur dæmdi 27 ára karl í átján mánaða
fangelsi, þar af fimmtán mánuði skilorðs-
bundna, fyrir kynferðisbrot gegn
þremur stúlkum. brotin áttu sér
stað á sex ára tímabili. Stúlk-
urnar voru á aldrinum fimm til
sextán ára. Sök í einum ákæru-
liðanna var fyrnd. Hann þurfti
að greiða stúlkunum alls 1.400
þúsund krónur í miska-
bætur.
n 13. febrúar 2003 - 30 mánuðir
Karlmaður hlaut tveggja og hálfs árs fangelsisdóm
fyrir kynferðisbrot gegn tveimur þrettán ára stúlk-
um. Hann lét aðra stúlkuna sjúga á sér getnaðar-
liminn og hafði skömmu síðar samræði við hina
stúlkuna. Til refsiþyngingar kom að hann hafði tælt
fjórar stúlkur inn í íbúð með sér til þess að taka af
þeim kvikmynd. Honum var gert að greiða stúlkun-
um alls hálfa milljón í miskabætur.
n 19. SepTeMber 2002 -
3 mánuðir, skilorð
72 ára karlmaður var dæmdur í þriggja mánaða
skilorðsbundið fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn
þremur stúlkum, ellefu til tólf ára gömlum. Hann
hafði káfað á stúlkunum, berað kynfæri sín í við-
urvist þeirra og reynt að fá þær til að snerta getn-
aðarliminn. Honum var gert að greiða stúlkunum
samtals átta hundruð þúsund krónur í miskabætur.
n 16. Maí 2002 - 18 mánuðir
Hæstiréttur staðfesti átján mánaða dóm héraðs-
dóms yfir karlmanni sem ákærður var fyrir kynferð-
isbrot gegn tveimur stúlkum. Stúlkurnar voru níu
ára og sautján ára. Sakir voru margar en sýknað
var í öllum utan einni sem varðaði yngri stúlkuna.
Honum var gert að greiða yngri stúlkunni 600 þús-
und krónur í miskabætur.
n 24. apríl 2002 - 12 mánuðir
Karlmaður var dæmdur í tólf mánaða fanglesi
fyrir kynferðisbrot gegn tveimur stúlkum, sjö og
þrettán ára. við ákvörðun refsingar var tekið tillit
til þess að eldri stúlkan var að verða fjórtán ára og
ekki þótti sannað að samskipti þeirra hefðu verið
gegn vilja hennar. Manninum var gert að greiða
stúlkunum hálfa milljón í miskabætur.
n 18. apríl 2002 - 2 ár
Hæstiréttur dæmir karlmann í tveggja ára fangelsi
fyrir að hafa nokkrum sinnum haft mök við níu
ára stúlku ásamt fleiri brotum gegn sömu stúlku.
Manninum var gert að greiða stúlkunni 600 þús-
und krónur í miskabætur.
n 21. febrúar 2002 -
3 mánuðir auk skilorðs
Karlmaður var dæmdur í tólf mánaða fangelsi, þar
af níu mánuði skilorðsbundna, fyrir þrjú kynferðis-
brot gegn ungum dreng. Kynferðisbrot voru sönn-
uð en þó tókst ekki að sanna að maðurinn hefði
látið drenginn hafa við sig endaþarmsmök. Miska-
bótakröfu var vísað frá.
n 31. janúar 2002 - 3 mánuðir, skilorð
Karlmaður var dæmdur í þriggja mánaða skil-
orðsbundið fangelsi fyrir að þukla innanklæða á
ellefu ára stúlku í skála í Þórsmörk. Hann þurfti að
greiða stúlkunni 250 þúsund krónur í miskabætur.
17 nauðgarar ganga lausir
Átján mánaða fangelsisdómur yfir kynferðis-
brotamanni 1. febrúar síðastliðinn er meðal
þyngstu dóma sem Hæstiréttur hefur kveðið
upp í sambærilegum málum. Brot mannsins
vörðuðu við 202. grein almennra hegning-
arlaga, sem felur í sér bann við samræði eða
öðrum kynferðismökum við barn yngra en
fjórtán ára. Í lagagreininni er einnig bann-
að að áreita kynferðislega barn undir fjór-
tán ára. Refsiramminn er allt að fjögurra ára
fangelsi fyrir kynferðislega áreitni og allt að
tólf ára fangelsi fyrir samræði við barn.
Hálft ár eða minna
DV tók saman dóma Hæstaréttar í sam-
bærilegum málum frá byrjun árs 2002 til
dagsins í dag. Dómarnir eru allir kveðnir upp
í málum þar sem brotið er gegn 202. grein
hegningarlaganna. Málin teljast því sam-
bærileg þótt brotin séu misalvarleg. Í helm-
ingnum af þeim tuttugu dómum sem skoð-
aðir voru er um að ræða hálfs árs fangelsi eða
styttra, skilorðsbundið eða sýknu. Þyngsti
dómurinn er tveggja og hálfs árs fangelsi
fyrir samræði og áreitni við tvær þrettán ára
stúlkur. Einn karlmaður hlaut tveggja ára
fangelsisdóm fyrir að hafa ítrekað mök við
níu ára stúlku. Þrír menn hlutu átján mán-
aða fangelsisdóm og aðrir þrír fengu eins árs
fangelsi.
afleiðingar fyrir lífstíð
„Afleiðingum af nauðgunum
og kynferðisofbeldi má jafna við
þau áföll sem fólk verður fyrir
í kjölfar náttúruhamfara,
stríðsátaka og stórslysa.
Fræðimenn þekkja þess-
ar afleiðingar,“ segir Atli
Gíslason hæstaréttarlög-
maður. Atli hefur gagn-
rýnt íslenskt réttarkerfi
fyrir að viðurkenna ekki
afleiðingar kynferðis-
brota á þolendur.
„Réttarvörslukerfið
íslenska virðist ekki hafa
skoðað þetta. Skýrsl-
ur eru teknar við komu á neyðarmóttöku og
það nánast látið duga,“ segir hann. Atli segist
þekkja tilvik þar sem þolandinn hefur þurft á
sérfræðiaðstoð að halda langt fram á fullorð-
insár. „Það er talað um þetta sem áfallarösk-
un. Ef þessar afleiðingar koma fram, þá hef
ég sagt að það séu löglíkur á nauðgun.“
Hæstiréttur slakar á
„Að því er varðar brot gegn börnum er
talið að Hæstiréttur hafi slakað á sönnun-
arkröfum og heldur þyngt dómana,“ segir
Atli Gíslason. Hann telur þetta þó ekki vera
greinilega þróun. „Ríkissaksóknari held-
ur þessu fram,“ segir Atli. Hann bendir á að
ýmsar úrbætur hafi átt sér stað í rannsókn á
kynferðisbrotum gegn börnum. Börnin fái
talsmann og yfirleitt sitji sérfróðir einstakl-
ingar sem meðdómendur. Einnig séu til kall-
aðir sérfræðingar til að rannsaka afleiðingar
brotanna. „Þetta er ekki gert í nauðgunar-
málum. Þar er alveg afleiðingar.“
Kynferðisbrotamenn betrast
Helgi Gunnlaugsson afbrotafræðingur
bendir á að lausnirnar liggi ekki ávallt í harð-
ari refsingum. „Menn aðhyllast það gjarnan
að lausnin sé að herða refsingarnar. Vægari
refsingar virðast ekki auka líkurnar á að ein-
staklingur brjóti aftur af sér. Það er líka at-
hyglisvert að kynferðisbrotamenn hafa sýnt
lægri endurkomutíðni í fangelsin en aðrir af-
brotamenn,“ segir Helgi. Hann segir þennan
mun ekki vera mikinn, en vel mælanlegan.
Orð gegn orði
Mildanir dóma í Hæstarétti eru ekki nýj-
ar af nálinni. Hæstaréttardómarar greiða sér-
atkvæði ef þeir eru ekki sammála meirihluta
dómsins um refsingar. Þann 20. október 2005
greiddi Jón Steinar Gunnlaugsson sératkvæði
í máli þar sem maður var ákærður fyrir alvar-
leg kynferðisbrot gegn stjúpdóttur sinni. Mað-
urinn hlaut tveggja og hálfs árs fangelsi. Í sér-
atkvæði sínu taldi Jón Steinar að sýkna bæri
manninn, þar sem sakfellingin væri eingöngu
byggð á framburði stúlkunnar.
Sama óvissa kom upp í dómi Hæstarétt-
ar frá því í janúar síðastliðnum. Maður var
dæmdur í þriggja mánaða fangelsi fyrir að
ráðast að mágkonu sinni. Ólafur Börkur Þor-
valdsson taldi varhugavert að nota framburð
konunnar til þess að sakfella. Hann lagði til
að maðurinn yrði sýknaður.
ólæknandi barnagirnd
„Það hefur verið talað um að tíu til fimmt-
án prósent barnaníðinga séu haldnir ólækn-
andi barnagirnd. Ég tel að við ættum að at-
huga úrræði eins og rafræna vöktun með
barnaníðingum sem afplána hluta sinnar
refsingar utan við fangelsi. Það er nokkuð
góð reynsla af þessu í öðrum löndum,“ segir
Jóhanna Sigurðardóttir þingmaður.
Átján mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot er þung refs-
ing miðað við fyrri dóma Hæstaréttar. atli Gíslason
segir fórnarlömb kynferðisglæpa bera afleiðingar til
lífstíðar. jóhanna Sigurðardóttir telur athugandi að
koma upp rafrænu eftirliti með barnaníðingum.
afleiðingar til lífstíðar
SiGTryGGur jóHannSSOn
blaðamaður skrifar: sigtryggur@dv.is
„Það koma að meðaltali þrjú
nauðgunarmál upp á viku.“
1999 2000 2001 2002 2003
6,82
7,27
6,69
5,75 5,71
0,99 1,10 1,18 1
,30 1,33
fj
öl
di
á
h
ve
rj
a
10
00
íb
úa
Ofbeldisbrot
Kynferðisbrot
Kærð ofbeldis- og Kynferðisbrot
TilKynnT KynferðiSbrOT
1999 85
2000 111
2001 136
2002 136
2003 166
2004 128
2005 140
2006 143
fjöldi brota á hverja 1.000 íbúa í reykjavík árin 1999 til 2003.
Tuttugu fórnarlömb
alls hafa tuttugu konur
leitað til neyðarmóttöku
vegna nauðgana á árinu.