Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.2007, Blaðsíða 54
Nú geta PC-leikjamenn hætt að örvænta, því leikurinn Supreme Commander kom-inn út, en hans hefur verið beðið með mikilli eftir-
væntingu. Leikurinn ger-
ist í fjarlægri framtíð og
hefur mannkynið skipst
í þrjár fylkingar, sem all-
ar hafa ólík sjónarmið,
trúarbrögð og framtíðar-
sýn. Stríð hefur staðið yfir
milli fylkinganna í meira en
þúsund ár og nú er komið að
suðupunkti. Stríðið hefur ver-
ið kallað stríðið óendanlega og er
það í höndum leikmanna að velja sér
eina fylkingu til þess að klára dæmið.
Það muna eflaust margir eftir leikjunum
Command & Conquer, en þeir leikir nutu mikilla
vinsælda á árum áður og þóttu byltingarkenndir á
sínum tíma. Supreme Commander svipar mikið
til þeirra leikja og sammælast tölvuleikjasjúkling-
ar um að Command & Conquer 3: Tiberium Wars
muni ekki standast þessum leik snúning. Supreme
Commander er án nokkurs vafa einn þróaðasti og
flottasti stríðsleikur sem komið hefur út. Barist er
á risavöxnum vígvöllum og geta leikmenn fylgst
með öllu frá minnstu hreyfingu skriðdreka að því
að geta horft á heilu fylkingarnar berjast gegn of-
urefli og bíða slátrunar. Barist er í háloftunum, á
sjó og á landi. Þegar er búið að gefa út sýnishorn af
leiknum sem lofar mjög góðu og spá margir tölvu-
leikjamiðlar því að Supreme Commander eigi eft-
ir að marka nýtt viðmið í gerð stríðsleikja. Grafík-
in er öll til fyrirmyndar og eiga stýringar leiksins
að vera þær þægilegustu sem sést
hafa í lengri tíma. Leikurinn kem-
ur út í Bandaríkjunum
þann 20. febrúar og
er von á honum
til Íslands
skömmu
eftir það.
dóri dna segir:
&
U m s j ó n : D ó r i D N A N e t f a n g : d o r i @ d v . i s
föstudagur 16. febrúar 200754 Helgarblað DV
leikirtölvu
Metal Gear
Solid verður
að kvikMynd
Metal gear solid-leikirnir hafa
löngum glatt marga og stendur nú
til að gera kvikmynd eftir þeim.
Þetta staðfesti talsmaður sony í
síðustu viku og segir að leikirnir
séu það vel gerðir og úthugsaðir
að auðvelt verði að útfæra þá á
hvíta tjaldinu. sony segir fleiri
tölvuleiki henta vel til
kvikmyndunar en að svo stöddu
vilja menn ekki opinbera neitt.
fleiri leikir verða þó að kvikmynd
innan skamms, en Warner bros
stefnir á að gera kvikmynd eftir
World of Warcraft og lengi vel stóð
til að gera kvikmynd eftir Halo-
leikjunum, en framleiðslu hennar
hefur verið frestað.
godhand (ps2)
Chili Con Carnage (psp)
test drive unlimited (pC, ps2, psp)
grand theft auto: Vide City
stories (psp)
World snooker
Championship
2007 (xbox 360)
Kíkið á þessa
supreme commaNder er KomiNN í verslaNir TölvuleiKur
leiddu her þinn
til SiGurS
Leikurinn supreme Commander er nýkominn í verslanir. Leikn-
um svipar til leikjanna vinsælu Command & Conquer og er sagður
munu valda byltingu í heimi stríðsleikja. Leikmenn verða að velja á
milli þriggja fylkinga sem átt hafa í stríði í yfir 1.000 ár. Það er tími
til kominn að enda stríðið og verða leikmenn því að sýna afburðar-
herkænsku til að skjóta hinum herjunum ref fyrir rass.
guitar Hero
á Wii
tölvuleikjaframleiðandinn activision
sem gerði meðal annars hinn ótrúlega
vinsæla leik guitar Hero mun hefja
framleiðslu á leikjum fyrir Nintendo Wii
á næstunni. Mun guitar Hero verða á
meðal þeirra. ekki hefur verið gefið upp
hvort Wii-fjarstýringin og hið
svokallaða „nunchuk“ verði nóg til að
spila leikinn eða hvort aukabúnaður er
nauðsynlegur. Þá mun activision einnig
framleiða leiki á ds.
Metroid Prime: Hunters er fyrstu
persónu skotleikur þar sem Nin-
tendo-goðsögnin og þokkagyðjan
Samus Aran er í aðalhlutverki. Leik-
urinn skiptist í tvo hluta. Annars veg-
ar þar sem maður spilar einn, eða
„one player“. Í þeim hluta ferðast
maður milli pláneta og leitar uppi yf-
irburðaraflið, eða „ultimate power“.
Samus er ekki ein á ferð því aðrir
veiðimenn eru á ferli og þarf maður
að kljást við þá. Samus ferðast um og
safnar að sér mismunandi vopnum
sem gera henni kleift að komast inn
á ný svæði í leit að yfirburðaraflinu.
Hinn hluti leiksins er fjölspilun, eða
„multi player“ þar sem maður getur
barist við aðra spilendur hvaðanæva
að úr heiminum. Þessi hluti er klár-
lega aðalskemmtun leiksins og þar
nýtur hann sín best.
Helsti kostur leiksins eru stjórn-
tæki hans þar sem snertiskjár DS-
vélarinnar nýtur sín vel. Maður not-
ar sem sagt hinar klassísku örvar til
að færa Samus aftur á bak, áfram og
til hliðar en bendilinn á snertiskján-
um til að stýra og miða á óvininn. Í
fyrstu reynist þetta erfitt en með smá
æfingu er hægt að ná upp flottri skot-
fimi og leikni. Grafíkin í leiknum er
mjög flott og kom reyndar á óvart.
Helsti galli leiksins er að í „one play-
er“ verður hann frekar einhæfur
vegna þess að aftur og aftur er barist
við sama höfuðpaurinn, bara á mis-
munandi erfiðleikastigum. Þá er bara
hægt að vista leikinn þegar maður er
um borð í skipinu og það getur orð-
ið nokkuð þreytt til lengdar. En nið-
urstaðan er flottur leikur sem sýnir
flestar bestu hliðar Nintendo DS.
asgeir@dv.is
alheimsgeimbardagi
H H H H H
Metroid
nintendo dS
TölvuleiKur
nóG af
leikjuM í PS3
sony Computer Entertainment
Europe lofar því að 30 nýir
leikir verði klárir og í sölu
þegar playstation 3 tölvan fer í
sölu í Evrópu þann 23. mars.
Áhyggjur hafa verið í gangi um
að fáir leikir verði klárir þegar
tölvan komi loks í búðir í
Evrópu, en sony-menn
harðneita þessu. „Leikirnir
verða allir fáanlegir þegar
tölvan kemur í búðir,“ ítrekar
David Wilson hjá sony. Meðal
þeirra leikja sem um ræðir eru
Resistance: Fall of Man,
Motorstrom, oblivion og Call
of Duty 3.
búið er að
verðleggja
tölvuna,
hún mun
kosta 599
evrur, eða
um 60
þúsund
krónur.
vice city
StorieS á PS2
fyrirtækið rockstar hefur
tilkynnt að leikurinn grand theft
auto: Vice City stories muni
koma út á Playstation 2. Áður
hefur leikurinn aðeins komið út á
hinni smáu Playstation Portable
en eftir að hafa slegið ærlega í
gegn kemur það fáum á óvart að
rockstar gefi hann út á Ps2. gta:
VCs er framhald leiksins Vice City
og gerist í sama umhverfi.
Leikurinn þykir langtum betri en
fyrri leikurinn, en söguþráðurinn
hefur verið bættur til muna og
svo er í fyrsta skipti hægt að slást
almennilega, en það hefur ekki
verið hægt í fyrri gta-leikjum.
Risastórir vígvellir barist er
á afar raunverulegum og
stórum vígvöllum.
Vígtól framtíðarinnar
Leikurinn gerist í fjarlægri framtíð.
Þrjár fylkingar Heimurinn
hefur skipst í þrjár fylkingar
sem berjast um völdin.