Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.2007, Blaðsíða 48
föstudagur 16. febrúar 200748 Helgarblað DV
Kennir ári eftir
útsKrift
Rottweilerhundurinn fyrrverandi og kvikmyndagerðarmaður-
inn Elvar Gunnarsson kennir við Kvikmyndaskóla Íslands,
litlu meira en ári eftir útskrift. Elvar vinnur einnig að undir-
búningi kvikmyndar sem byggð er á óperuverki en myndin er
tekin upp í aðeins einni töku.
„Ég útskrifaðist úr Kvikmynda-
skóla Íslands vorið 2005 og byrj-
aði að kenna haustið 2006,“ segir
tónlistarmaðurinn og kvikmynda-
gerðarmaðurinn Elvar Gunnars-
son. Elvar, sem er 24 ára, er yngsti
kennarinn við Kvikmyndaskóla Ís-
lands og hóf kennslu í skólanum
aðeins rúmu ári eftir að hafa út-
skrifast sjálfur. „Ég útskrifast með
diplóma sem kvikmyndagerðar-
maður með sérhæfingu í leik-
stjórn og handritagerð. Ég kenni
skoðun og greiningu kvikmynda,“
segir hann og bætir við að einnig
hafi hann eytt miklum tíma í sjálf-
menntun.
„Ég er tveggja barna faðir og
vegna þess hve snemma maður
eignaðist fjölskyldu lagði ég mik-
ið upp úr því að læra sjálfur og að
hafa nóg á bakvið mig þannig að ég
þyrfti ekki að fara út í nám. Mað-
ur lærir líka sjálfur mikið á því að
kenna.“
Kvikmynd í einni töku
„Ásamt því að kenna er ég líka að
fara að gera kvikmynd í fullri lengd,“
segir Elvar en myndin er byggð á
óperuverki og hefst vinnsla hennar
í ágúst næstkomandi. „Myndin er
aðlögun á óperuverki yfir á hvers-
dagslegt form. Ég get ekki greint
frá því hvaða verki að svo stöddu
þar sem við eigum ennþá eftir að
tryggja okkur réttinn.“
Myndin verður tekin upp í einni
töku og segir Elvar alla undirbún-
ingsvinnu vera ennþá mikilvægari
vegna þess. „Flestöll verkefnin sem
ég hef gert í skólanum hef ég tekið
í einni töku. Ég skrifaði líka ritgerð
um viðfangsefnið.“
Tónlist í frístundum
Elvar var í hljómsveitinni XXX
Rottweiler hundar þegar hún vann
Músíktilraunir árið 2000. Síðar meir
var hann í hljómsveitinni Afkvæmi
guðanna en hefur látið lítið fyrir sér
fara á því sviði undanfarin ár. „Ég á
gamalt efni, á sennilega tvær, þrjár
plötur,“ en Elvar hyggst þó ekki gefa
það út.
„Ég hef hins vegar verið að vinna
að disk með trúbadornum Þóri,“ en
það er Þórir Georg Jónsson, einnig
þekktur sem My Summer as a Sal-
vation Soldier. „Diskurinn er næst-
um því tilbúinn en þetta er bara frí-
stundavinna og við flýtum okkur
hægt.“
Elvar Gunnarsson
Kennir greiningu og skoðun
kvikmynda við Kvikmyndaskóla
Íslands.
Mynd byggð á óperuverki
elvar vinnur að kvikmynd í fullri lengd
sem er tekin í einni töku.
„Það halda margir að þetta sé einhver
sandkassapólitík og einhver slagur
allan ársins hring, svo er alls ekki,“
segir Alma Joensen stjórnmálafræði-
nemi.
Alma er öllum hnútum kunnug í
stúdentapólitíkinni við Háskóla Ís-
lands og gegndi starfi kosningastjóra
í kosningaherferð Röskvu í ár. Röskva
fékk hreinan meirihluta í nýafstöðn-
um kosningum en svo hefur ekki gerst
síðan árið 2001. „Þetta er bara stöðug
vinna út allt árið sem snýr beint að
hagsmunum nemenda. Það eina sem
Röskva, Vaka og Háskólalistinn deila
um er aðferðafræðin.“ Alma er á öðru
ári í háskólanum, en eftir stúdents-
próf árið 2004 fór hún út til Danmerk-
ur í eitt ár þar sem hún nam þýsku við
Kaupmannahafnarháskóla. Hún seg-
ir mestallan tíma sinn fara í stúdenta-
pólitíkina og erfitt sé að koma öðru að.
„Þetta tekur allan tíma manns. Maður
er á fullu í nefndum og ég fór meðal
annars tvisvar sinnum til útlanda á
ráðstefnur ásamt Stúdentaráði.“ Því
hefur verið fleygt að háskólastjórn-
málin séu gróðrarstía ungra íslenskra
stjórnmálamanna og að þar hefji flest-
ir feril sinn, en þessu er Alma ekki al-
veg sammála. „Ég held að fæstir hugsi
þannig, flestir gera þetta af hreinni
hugsjón þótt eflaust séu einhverjir
inni á milli sem hugsa bara um feril-
skrána.“ En eftir frækinn sigur í kosn-
ingu og 30% fylgisaukningu á milli ára
segir Alma að íslensk stjórnmál heilli
hana ekki mikið. „Eins og staðan er í
dag hef ég engan áhuga á landspólit-
ík eða pólitík í Reykjavík. Það væru þá
heldur alþjóðastjórnmálin sem heill-
uðu, maður er nú einu sinni hálfur
Færeyingur,“ segir Alma glöð í bragði
að lokum.
dori@dv.is
Alma Joensen var kosningastjóri Röskvu í nýafstöðnum kosningum til Stúdentaráðs:
Hagsmunabarátta allan ársins hring
Alma Joensen
segist ekki hafa áhuga á því að taka þátt
í íslenskum stjórnmálum þrátt fyrir
velgengni í háskólapólitíkinni.
DV ÁSGEIR