Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.2007, Blaðsíða 21
Tekjuskattgreiðslur fyrirtækja eru
í heildina mun lægri en tekjuskatt-
greiðslur einstaklinga. Á síðasta ári
greiddu einstaklingar 78 milljarða
króna í tekjuskatt samkvæmt áætlun
fjármálaráðuneytisins. Tekjuskatt-
greiðslur einstaklinga hafa aukist
undanfarin ár, farið úr 62 milljörð-
um króna 2004 í 69 milljarða árið
eftir. Á síðasta ári voru þær svo tæp-
lega þriðjungi hærri en 2004.
27 milljörðum frestað
Sjö af átta stærstu fyrirtækjun-
um í Kauphöllinni höfðu um síð-
ustu áramót frestað skattgreiðslum
upp á tæpa 27 milljarða króna. Þetta
er svipuð upphæð og sem nemur
skattgreiðslum allra lögaðila á síð-
asta ári. Þessi fyrirtæki eru Kaup-
þing, Glitnir, Landsbankinn, Exista,
FL Group, Straumur-Burðarás og
Bakkavör. Eina fyrirtækið sem met-
ið er yfir hundrað milljarða króna
og hefur ekki sent frá sér ársreikn-
ing sinn er Actavis. Því er ekki vit-
að hvernig skattastaða fyrirtækis-
ins er.
Kaupþing hagnaðist
allra fyrirtækja mest á
síðasta ári og frestaði
einnig mestum
skattgreiðsl-
um. Alls
námu
þær þrettán milljörðum króna í
árslok samkvæmt ársreikningi fyr-
irtækisins. Næst kom Exista með
tæpa sex milljarða króna í frestuð-
um skattgreiðslum.
Óskað var upplýsinga frá Baugi
um hagnað fyrirtækisins, skatt-
greiðslur og frestaða skatta síðustu
tvö árin. Þær upplýsingar fengust
ekki og liggja ekki frammi þar sem
fyrirtækið er ekki í Kauphöllinni.
Fyrirtækjakaup og íbúðakaup
Skattgreiðslum fyrirtækja vegna
hagnaðar þeirra af sölu hluta-
bréfa hefur verið líkt við hús-
næðisviðskipti almennings.
Tökum dæmi: Einstakling-
ur kaupir íbúð á
10 milljón-
ir króna
og selur hana á tólf milljónir innan
tveggja ára. Hann ætti lögum sam-
kvæmt að greiða tíu prósenta fjár-
magnstekjuskatt af tveggja milljóna
króna söluhagnaði. Til þess kemur
ekki ef viðkomandi kaupir sér ann-
að húsnæði annað hvort strax eða
innan tveggja ára. Hafi einstakl-
ingur átt íbúðina lengur en tvö ár
greiðir hann eng-
an skatt af sölu-
hagnaði.
DV Fréttir
græddu 60 milljarða
Nokkur stærstu fyrirtæki landsins högnuðust um 325 milljarða
króna á síðasta ári og greiddu um 27 milljarða í tekjuskatt. Þau
nýttu sér lagaheimildir til að fresta greiðslu 27 milljarða króna
tekjuskatts með því að endurfjárfesta söluhagnaði. og borga nær enga skatta
Sýnd veiði en ekki gefin
„Þetta sýnir að það er sýnd veiði en ekki gefin þótt fyrirtækin skili miklum bók-
færðum hagnaði. Það þýðir ekki að féð komi til skattlagningar,“ segir Steingrímur J.
Sigfússon, formaður vinstri grænna, um skattgreiðslur stórfyrirtækja.
Steingrímur segir þetta til marks um skattkerfi þar sem áhersla hafi verið lögð
á að hafa skatta á fyrirtæki sem lægsta. Samhliða því eiga fjármagnseigendur svo
möguleika á að færa fé sitt milli landa til að komast hjá að greiða skatta hérlendis.
„Mér finnst heldur lélegt hjá þessum stóru körlum sem eru að græða þessi reiðinnar
býsn að þeir geta ekki einu sinni tollað með þessi eignarhaldsfélög í landinu.
Ég viðurkenni að skattalegt umhverfi á að vera samkeppnishæft en það á ekki að
elta einhverjar karabískar skattaparadísir,“ segir Steingrímur og rifjar upp hugmyndir
hægrimanna um að gera Ísland að skattaparadís. Það líst honum ekki á.
Fundur í miðborginni
Á 3ju og 4ðu hæð Iðu-hússins eru tveir fallegir
salir. Stærri salurinn tekur allt að 150 manns
og minni salurinn 120 manns. Allur aðbúnaður
og tæknibúnaður er fyrsta flokks; þráðlaus kerfi,
nettengingar og aðstaða fyrir starfsfólk svo
eitthvað sé nefnt.
Lídó er glæsilegur salur á horni Ingólfsstræti og
Hallveigarstíg. Salurinn tekur allt að 400 manns í
sæti og hentar frábærlega fyrir funda- og ráðstefnu-
hald.
Veisluþjónusta okkar er rómuð fyrir fjölbreyttar
og spennandi veitingar, útbúnar af snjöllustu fag-
mönnum. Við leggjum áherslu á sveigjanleika, enda
eru kjörorð okkar: Ykkar ánægja er okkar markmið.
Kynntu þér þjónustu okkar á www.veislukompaniid.is
eða hringdu í síma 517 5020 og við lögum okkur
að þínum þörfum.
Með kveðju,
Hafsteinn Egilsson
Staðsetning ráðstefnunnar eða fundarins er
ekki síður mikilvæg en fyrsta flokks aðbúnaður
og þjónusta.Við bjóðum allt þetta; frábæra
staðsetningu í hjarta borgarinnar, þrjá glæsilega
sali með öllum nauðsynlegum tæknibúnaði og
fyrirtaks veisluþjónustu.
Lækjargötu 2a 101 Reykjavík s 517 5020 www.veislukompaniid.is
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Hannes Smárason
FL Group hefur ekki greitt skatta síðustu
tvö árin. Skattgreiðslur af 44 milljarða
hagnaði á síðasta ári nema 800 milljónum.