Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.2007, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.2007, Blaðsíða 6
Samskiptum einstaklinga við við- skiptabanka sína var líkt við hjóna- band í umræðum á Alþingi í gær. Pétur H. Blöndal, þingmaður Sjálf- stæðisflokks, benti á að aðeins tæp tvö prósent einstaklinga skiptu um banka á lífsleiðinni. „Þessi trúnað- ur minnir dálítið á hjónaband, held- ur kannski dálítið lengur,“ sagði Pét- ur og taldi þennan trúnað skaðlegan þar sem hann kæmi í veg fyrir sam- keppni. Ósiðleg markaðssetning Þetta sagði Pétur leiða til þess að bankar beindu markaðssetn- ingu sinni æ meira að ungmennum. Þannig helltu bankarnir skuldsetn- ingu yfir ungmenni í formi yfirdrátt- ar. „Sem ég tel vera ósiðlegt,“ sagði Pétur, einn margra þingmanna til að gagnrýna bankana í gær. Jóhanna Sigurðardóttir, þing- maður Samfylkingarinnar, hóf um- ræðuna. Hún spurði Jón Sigurðsson, ráðherra bankamála, hvort hann teldi ekki ástæðu til að grípa til að- gerða vegna mikils bankakostnaðar landsmanna og samkeppnishaml- andi þátta á borð við uppgreiðslu- gjald og stimpilgjald. Þegar ráðherra svaraði því til að hann fylgdist með stöðu mála en teldi ekki ástæðu til lagasetningar gagnrýndi Jóhanna hann fyrir svör sín. „Það er átakan- legt að heyra hvernig viðskiptaráð- herra stillir sér upp með bönkunum en ekki neytendum. Það liggur fyrir að vextir hér eru glæpsamlega háir,“ sagði Jóhanna og lýsti fullri ábyrgð á hendur Jóni ef hann aðhefðist ekk- ert. „Nú erum við að verða vitni að því að okrið hefur aldrei verið meira en nú,“ sagði Ögmundur Jónasson, þingflokksformaður Vinstrihreyfing- arinnar - græns framboðs, og sagði engu skipta hvort menn horfðu til vaxta, vaxtamunar eða þjónustu- gjalda. „Þrátt fyrir góða afkomu bank- anna virðast viðskiptavinir ekki fá að njóta þess,“ sagði Ásta Möller, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, og spurði hvort bankarnir misnotuðu sér tryggð viðskiptavina sinna. Sæ- unn Stefánsdóttir, þingmaður Fram- sóknarflokksins, sagði eðlilegt að neytendur nytu í meira mæli góðs af góðri afkomu bankanna en nú er. Hún lagði áherslu á að styrkja Íbúða- lánasjóð og efla þannig samkeppni. Eftirlitið lagt niður Kristinn H. Gunnarsson, hinn nýi þingmaður Frjálslynda flokks- ins, lagði áherslu á starfsemi eftirlits- stofnana. Hann sagði að þegar Sam- keppnisstofnun lét til sín taka vegna samráðs olíufélaganna hefði stofn- unin verið lögð niður og forstjórinn rekinn. Það sagði Kristinn ekki upp- örvandi fyrir þá sem ættu að hafa eft- irlit með bönkunum og öðrum stór- fyrirtækjum. Stimpilgjöldin voru þingmönn- um líka ofarlega í huga. Löngum hefur verið rætt um að stimpilgjöld- in séu ósanngjörn og til þess fallin að koma í veg fyrir að fólk skipti um banka. Þetta rifjuðu þingmenn upp í umræðunum í gær og lögðu áherslu á að stimpilgjöldin yrðu afnumin. Í lok umræðunnar hét Jóhanna Sigurðardóttir á bankamálaráðherr- ann að grípa til aðgerða. „Komdu í lið með okkur í Samfylkingunni. Burt með þetta bankaokur,“ sagði Jóhanna við Jón Sigurðsson sem sagðist frekar fara að lögum en óstaðfestum hvatn- ingarorðum. Hann hafði áður vísað til þess að hann gæti ekki látið Sam- keppniseftirlitið eða Fjármálaeftirlit- ið kanna málin. Þetta væru sjálfstæð- ar stofnanir og þeim skipaði hann ekki fyrir verkum. Hann sagðist þó geta tekið undir það sem sagt hefði verið um óeðlilega og hættulega háa vexti. föstudagur 16. febrúar 20076 Fréttir DV sandkorn Mikil ósköp er Dagfari undrandi þessa dagana. Það er ekki nóg með að á kaffistofum og í heitum pott- um vogi fólk sér, og það jafnvel hik- laust, að kenna stjórnmálamönnum um hvernig komið er í Byrginu. Nei, það er ekki nóg, hræsnaraskapurinn og fullyrðingagleðin hefur náð inn í helsta vígi mannlegrar reisnar og mannlegrar virðingar. Hræsnin og yf- irboðin hafa komist inn á hið háa Al- þingi. Dagfara er ekki skemmt, bara alls ekki. Það er eitt að sótsvartur almúg- inn reyni að finna ójafnvægi sínu stað í fullyrðingum um ábyrgðarleysi stjórnmálamanna. Hitt er verra þeg- ar fulltrúar á Alþingi taka undir með óupplýstum lýðnum. Það er ekki hinu háa Alþingi til sóma þegar hátt- virtir þingmenn láta eins og hann Össur Skarphéðinsson gerði um daginn. Hann var svo óforskamm- aður að hann taldi næsta víst að framsóknarmenn á hinu háa Alþingi bæru ábyrgð á hvernig komið er fyr- ir Byrgisfólki. Þetta fannst Dagfara meira en nóg. Það kann að vera rétt hjá Össuri að framsóknarmennirnir á hinu háa Alþingi og einstaka sjálfstæðismenn, einnig á hinu háa Alþingi, hafi vitað að ekki var allt með felldu í Byrginu. Og hvað með það, Össur Skarphéð- insson? Máttu þeir ekki bara vita það? Vissulega er það rétt hjá hinum hátt- virta alþingismanni Össuri Skarphéð- inssyni að þeir sem vissu um óreið- una létu sem ekkert væri og héldu áfram að láta ríkið borga til Byrgis- ins. En hvað með það? Ábyrgðarleysi kannski, er það ekki næst, á að kenna háttvirtum alþingismönnum á hinu háa Alþingi um ábyrgðarleysi? Það gengur ekki að grafa undan grunni samfélagsins. Það er eitt ef ein- staka leigubílstjórar og hárgreiðslu- fólk kannski gerir það, en ómögulegt er fyrir þjóðina að þola slíkt frá hátt- virtum þingmönnum. Dagfari reynir að fylgjast með. Dagfari hefur heyrt hina mætustu þingmenn og jafnvel ráðherra svara fyrir Byrgismálið. Þarf meira? Þeir hafa sagt að þeir hefðu mátt gera bet- ur, en gerðu það bara ekki. Er það ekki nóg, Össur? Hver ætlast til meira af háttvirtum þingmönnum og hæstvirtum ráðherr- um á hinu háa Alþingi en þeir segist á einum tíma hafa mátt gera betur? Dagfari biður þess af einlægni, ekki fara fram á meira. Ekki setja alla þjóðina í angist vegna hugsanlegrar velferðar þingsins. Hins háa Alþing- is. Látum ásakanir vera, ekki kalla eft- ir meiri ábyrgð en þegar hefur komið fram. Þingmennirnir sem vissu meira en við hin, ráðherrarnir sem héldu áfram að verja peningum í Byrgið, hafa lítið sagt, annað en að svona er þetta bara. Er það ekki næg yfirbót? Verum róleg, treystum hinu háa Al- þingi, háttvirtum þingmönnum og hæstvirtum ráðherrum. Þá mun okk- ur vel farnast. Þjóðin verður að vara sig dagfari Tröllaukið lýðræði Nafn ku vera komið á fram- boðið sem Mar- grét K. Sverris- dóttir keppist nú við að koma á koppinn. Sög- ur herma að framboðið komi til með að bera nafnið Lýðræð- ishreyfingin og er búist við að það verði kynnt formlega á næstu vikum. Hvort sem Margrét horfir til fortíðar eða framtíðar og setur stefnuna hátt gefur listabókstafurinn til kynna að eitthvað mikið sé í vændum. Eða hvernig á að túlka XL? Sendi- boðinn skamm- aður Guðni Ágústsson, varafor- maður Framsóknarflokksins, fór mikinn í aðsendri grein í Moggan- um í vikunni. Þar lét hann að því liggja að Fréttablaðið falsaði nið- urstöður kannana sinna til að láta stöðu Framsóknar líta sem verst út. Fyrir síðustu kosningar gagn- rýndi Guðni Fréttablaðið af sömu ástæðum og sagðist bíða eftir Gallupkönnun sem væri mark- tækari. Þegar hún kom hafði fylgi Framsóknar minnkað. Bæjarstjóri verður kosninga- stjóri Tryggvi Harðarson, fyrrverandi bæjarstjóri á Seyðisfirði, náði ekki þeim árangri sem hann stefndi að í prófkjöri Samfylkingarinnar í Kraganum síðla á síðasta ári. Ekki hefur hann þó tapað tiltrú sam- flokksmanna sinna. Þeir hafa nú gert hann að kosningastjóra Sam- fylkingarinnar í Suðvesturkjör- dæmi og ætla honum að koma sem flestum frambjóðendum á þing þrátt fyrir misjafnt gengi í skoðanakönnunum. Pólitíska pressan Og meira af Samfylk- ingarfólki í Kraganum. Tveir vanir fjölmiðla- menn hafa tekið að sér að koma út kosningablaði Sam- fylkingarinnar og hafa þeir nokk- uð ólíkan bakgrunn. Guðmundur Steingrímsson Hermannssonar Jónassonar er annar og stýrði um skeið settlegu helgarblaði Frétta- blaðsins. Hinn er Símon Örn Birg- isson sem vægði engum þegar hann var á DV undir stjórn Mika- els Torfasonar. Spurning hvernig þeir ná saman. Vegsemd og vandi bloggsins Leitarvélar netsins eru ekki aðeins nauðsynlegar á stundum heldur geta niðurstöður þeirra komið á óvart. Þannig skrifar Nanna Rögnvaldardóttir matar- gúrú á bloggið sitt: „Ég komst að því áðan að ef maður gúglar Geira á Maxims kemur bloggið mitt upp sem fyrsti möguleiki.“ Skýring- una er að finna í þriggja ára bloggi Nönnu. Hún var þá að eigin sögn fáklædd- asta konan í út- gáfuteiti Bogb, allt þar til Geiri á Max- ims birt- ist í hópi fagurra meyja. „Okrið hefur aldrei ver- ið meira en nú.“ Jóhanna Sigurðardóttir sagði að neytendur hefðu verið blóð- mjólkaðir síðan bankarnir voru einkavæddir. Hún lýsti fullri ábyrgð á hendur Jóni Sigurðssyni viðskiptaráðherra ef hann gerði ekkert í málunum. BrynjÓlfur Þ. GuðmundSSon blaðamaður skrifar: brynjolfur@dv.is Þingmenn allra flokka sameinuðust um að gagnrýna háa vexti bankanna í utandag- skrárumræðum á Alþingi í gær. Bankaokur var sagt meira en nokkru sinni áður og kvartað var undan því að viðskiptavinir fengju ekki að njóta góðrar afkomu bankanna. Enginn tók þó jafn sterkt til orða og jóhanna Sigurðardóttir: GlæpsamleGa háir vextir Bankaokrið fordæmt á Alþingi Þingmenn fóru hörðum orðum um það hversu háan kostnað almenningur ber af viðskiptum sínum við bankana.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.