Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.2007, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.2007, Blaðsíða 10
föstudagur 16. febrúar 200710 Fréttir DV Dómar Hæstaréttar í kynferðisbrotamálum n 26. janúar 2006 - 4 mánuðir Hæstiréttur dæmdi mann í fjögurra mánaða skil- orðsbundið fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn tíu ára stúlku. Hann strauk brjóst hennar og kynfæri inn- anklæða. Maðurinn var dæmdur til að greiða stúlk- unni 300 þúsund krónur í miskabætur. n 26. Maí 2005 - 12 mánuðir Tvítugur karlmaður var dæmdur í tólf mánaða fang- elsi. Hann hafði haft samræði við þrettán ára stúlku á heimili sínu. refsingin var ákveðin með tilliti til húsbrots og líkamsárásar sem maðurinn hafði einn- ig gerst sekur um. Honum var gert að greiða stúlk- unni 500 þúsund krónur í miskabætur. n 10. Mars 2005 - frávísun Hæstiréttur vísaði frá máli þar sem fimmtán ára sakhæfur piltur hafði fjórum sinnum samræði við þrettán ára stúlku. Málatilbúnaður ákæruvaldsins þótti það slakur að óhjákvæmilegt væri að vísa mál- inu frá dómi. n 10. febrúar 2005 - sýkna Karlmaður á fimmtugsaldri var sýknaður eftir að hafa verið ákærður fyrir kynferðisbrot gegn stúlku þegar hún var á aldrinum frá níu til þrettán ára. sannað þótti að maðurinn hefði áreitt stúlkuna kynferðislega árið 1994. brotið var talið fyrnt þegar rannsókn hófst og leiddi það til sýknu. Manninum var gert að greiða stúlkunni 800 þúsund krónur í miskabætur. n 16. deseMber 2004 - 3 mánuðir, skilorð Þrítugur karlmaður fékk þriggja mánaða skilorðs- bundinn fangelsisdóm fyrir að þukla innanklæða á ellefu ára gamalli stúlku. Manninum var gert að greiða stúlkunni 150 þúsund krónur í miskabætur. n 7. oKTóber 2004 - 6 mánuðir, skilorð sautján ára piltur hlaut sex mánaða skilorðsbund- inn fangelsisdóm fyrir kynferðisbrot gegn þrettán ára stúlku. Hann hafði farið með fingur í leggöng stúlkunnar og fengið hana til að eiga við sig munn- mök þar til hann fékk sáðfall. bótakröfu stúlkunnar var vísað frá dómi þar sem henni hafði ekki verið beint að lögráðamanni gerandans. n 18. júní 2004 - 10 mánuðir Hæstiréttur dæmdi 58 ára karlmann í tíu mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn tveimur stúlkum, sex og átta ára gömlum. Maðurinn hafði brotið margvíslega gegn stúlkunum, meðal annars lagt getnaðarlim við kynfæri þeirra, haft við þær munn- mök og tekið myndir af kynfærum þeirra. Maðurinn þurfti að greiða stúlkunum samtals 300 þúsund krónur í miskabætur. n 6. Maí 2004 - 12 mánuðir Hæstiréttur dæmdi 39 ára karlmann í tólf mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn fjórum stúlkum, stjúpdóttur sinni og vinkonum hennar. brot hans gegn einni stúlkunni þóttu sérlega gróf. Hann var hins vegar sýknaður af ákæru um að hafa brotið gegn stjúpdóttur sinni. Honum var gert að greiða stúlkunum miskabætur. n 29. apríl 2004 - sýkna Tæplega fimmtugur maður var sýkn- aður fyrir gróft kynferðisbrot gegn stúlku þegar hún var sex ára og aftur þegar hún var níu ára. Maðurinn var jafnframt ákærður fyrir að hafa margsinnis fengið stúlk- una til kynferðisathafna með sér. sakirnar töldust fyrndar. n 26. febrúar 2004 - 2 ár sextugur karlmað- ur hlaut tveggja ára fangelsisdóm fyrir brot gegn þremur stúlkum á aldrinum sex til þrettán ára. Hann hafði sett fingur í kynfæri stúlknanna, káfað á þeim og kysst þær. Hann þurfti að greiða stúlkunum samtals 950 þúsund krónur í miskabætur. „Ég hef miklar áhyggjur af þessari þró- un,“ segir Helga Leifsdóttir, lögfræðing- ur og réttargæslumaður fórnarlamba kynferðisbrota. Tuttugu nauðganir hafa verið framdar það sem af er ári. Aðeins þrjár þeirra hafa verið kærðar til lögreglunnar á höfuðborgarsvæð- inu. Alls bárust lögreglunni nítján kærur vegna kynferðisbrota í janúar. Þar af eru brot sem varða barnaklám fyrirferðarmikil en einnig er nokkuð um kærur eftir tilkynningar frá barna- verndaryfirvöldum. „Samfélagið er orðið mjög klám- vætt og í kjölfarið verður viðhorf margra hreinlega sjúkt,“ segir Helga Leifsdóttir, réttargæslumaður fórn- arlamba kynferðisbrota. Hún hefur fengist við slík mál í mörg ár og hefur mikla reynslu sem lögmaður í þess- um brotaflokki. Hún segir töluna yfir fjölda brota verulega háa og telur of- beldi gagnvart konum fara harðn- andi. Hún segir að sífellt færist í auk- ana að nokkrir menn taki sig saman og nauðgi konu, en því miður rati slík mál allt of sjaldan til dómstóla. Í flest- um tilvikum eru nauðgararnir vinir eða kunningjar fórnarlambsins en sí- fellt færist í aukana að um ókunnuga sé að ræða. Grófara ofbeldi „Nauðganir eru að verða gróf- ari,“ segir Helga en stutt er síðan er- lend stúlka var numin á brott í bif- reið á Laugaveginum. Hún hafði verið að skemmta sér þegar maður ginnti hana upp í bíl og bauðst til að aka henni heim. Hún taldi að bifreið- in væri leigubíll. Maðurinn ók með hana út fyrir bæjarmörkin þar sem hann nauðgaði henni hrottalega. Síð- an keyrði hann stúlkuna niður í Laug- ardal þar sem hann hleypti henni út úr bílnum. Stúlkan kærði atvikið en vegna þess hversu langan tíma það tók að hafa upp á manninum var ekki hægt að sýna fram á að maðurinn væri sekur um nauðgunina. Þetta mál er ekki einsdæmi en fæstar nauðgunarkærur virðast enda með sakfellingu. Þrjár nauðganir á viku „Það koma að meðaltali þrjú nauðgunarmál upp á viku,“ segir Eyr- ún Jónsdóttir, yfirlæknir á neyðar- móttöku nauðgana. Hún segir að tólf konur hafi leit- að til neyðarmóttökunnar í janúar en aðeins þrjár kærðu nauðgun. Þar að auki hafi átta stúlkur leitað til neyð- armóttökunnar á fyrstu tveimur vik- um febrúarmánaðar. Því hafa minnst tuttugu stúlkur lent í kynferðisofbeldi það sem af er ári. Aðspurð segir Eyrún að ekki sé hægt að leggja mat á það strax hvort um óvenjulega háa tölu sé að ræða. Hún játar þó að talan sé í hærra lagi enda nauðganir framdar annan hvern dag frá áramótum. Hún segir nauðganirnar þó að mestu bundnar við helgar og áfengisneyslu. nítján kynferðisbrot „Þetta er í hærra lagi,“ segir Björg- vin Björgvinsson, yfirmaður kynferð- isbrotadeildar lögreglunnar á höfuð- borgarsvæðinu. Hann segir brotin af öllum toga en þar af eru þrjár nauð- ganir til rannsóknar. Í öllum tilvik- um hafi meintir gerendur náðst og þeir verið yfirheyrðir. Þau mál eru til rannsóknar hjá lögreglunni og verða að því loknu send til ríkissaksóknara sem tekur ákvörðun um hvort menn- irnir verði ákærðir. Björgvin segir eng- in mál hafa komið upp þar sem stúlk- um er nauðgað meðvitundarlausum eða undir áhrifum lyfja. barnaklám og blygðunarsemi „Minnst fimm kærur hafa bor- ist vegna barnakláms í tölvum,“ seg- ir Björgvin en í síðustu viku stað- festi Hæstiréttur gæsluvarðhald yfir manni sem hafði barnaklám undir höndum. Þá kom í ljós að eitt mynd- skeiðið sem fannst í tölvu hans var af íslenskri stúlku að eiga munnmök við eldri mann. Einnig kom upp umdeilt mál Ágústs Magnússonar sem Komp- ás vakti athygli á í janúar. Fleiri mál komu í kjölfar þess og hefur lögreglan nú málin til rannsóknar. „Þá var einnig nokkuð um blygð- unarbrot og tilkynningar frá barna- yfirvöldum,“ segir Björgvin. Þau mál eru til rannsóknar hjá lögreglunni. Kynferðisbrotum fjölgar en kærum fækkar Árið 2006 leituðu alls 143 einstakl- ingar til neyðarmóttöku nauðgana vegna kynferðisofbeldis. Þó voru að- eins sextíu kynferðisabrot tilkynnt til lögreglu og enn færri málum lauk með dómsuppkvaðningu. Samkvæmt ársskýrslum lögreglustjórans í Reykja- vík hefur nauðgunum fjölgað ár frá ári síðan 1999. Það vekur þó athygli að kærum fækkar um leið og má sjá mikla dýfu árin 2002 og 2003. Einn- ig fækkar kærum nokkuð árið 2004. Kynferðisbrot voru flest árið 2003 en þá rannsakaði lögreglan 166 mál. 17 nauðgarar ganga lausir Alls hafa tuttugu konur leitað til Neyðarmóttöku nauðgana það sem af er ári, að sögn eyrúnar jónsdóttur yfirlæknis. Aðeins þrjár þeirra leituðu til lögreglu og lögðu fram kæru vegna nauðgunar. Að sögn björgvins björgvinssonar, yfirmanns kyn- ferðisbrotadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, bárust nítján kærur vegna kynferðisbrota í janúar einum. Helga leifs- dóttir réttargæslumaður segir klámvæðinguna sjúka. Helga leifsdóttir segir klámvæðinguna sýkja hugarfar gerenda. aðeins þrjár kærur Lögreglu rannsakar þrjár nauðganir og hefur tekið skýrslu af meintum nauðgurum. valur GreTTisson blaðamaður skrifar: valur@dv.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.