Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.2007, Blaðsíða 40
Menning
föstudagur 16. febrúar 200740 Menning DV
,,Við eigum fjörutíu ára starfsaf-
mæli á þessu ári og starfsemi okk-
ar hefur alltaf verið með ágætum,“
segir Erna Björg Guðmundsdóttir
hjá Leikfélaginu Grímni í Stykkis-
hólmi.
„Við setjum upp eitt verk á ári og
tökum auk þess virkan þátt í ýmsum
uppákomum hér og má þar nefna
Danska daga og 17. júní. Þær hátíðir
eru orðnar mjög fyrirferðarmiklar.
Gestir á Dönskum dögum koma af
landinu öllu. Við sýnum þá gjarnan
valda kafla úr þeim verkum sem við
höfum sett upp. Við þroskum líka í
okkur trúðinn. Göngum um bæinn
íklædd trúðafötum og skemmtum
bæjarbúum.“
Húsnæði félagsins er gamalt
tónlistarhús sem bærinn á. „Húsið
er lítið en þar er svið og því nýtist
það vel fyrir minni uppfærslur. Þar
sýnum við einþáttunga og höldum
ljóðakvöld. Æfingar á nýju verki
hefjast í þessu húsi en lýkur á Hótel
Stykkishólmi þar sem allar viðameiri
sýningar fara fram.“
Erna Björg segir að bæjarbúar
séu jákvæðir í garð leikfélagsins.
„Grímnir er metnaðarfullt leikfélag
og nýtur aukins áhuga ungs fólks,
en sorglegt hve bæjarbúar hafa
einhæfan smekk. En söngleikir
eru vinsælastir og ganga
undantekningalítið mjög vel. Í
samvinnu við kirkjukórinn settum
við upp Fiðlarann á þakinu. Það
stykki naut mikilla vinsælda.“
Erna Björg segir nærsveitamenn
og fólk úr nágrannabæjunum vera
stóran hluta sýningargesta hjá
Grímni.
Leikstjórar með stjörnustæla
Erna Björg segir að ekki sé alltaf
á vísan að róa þegar kemur að
efnisvali. „Besta dæmið er söng- og
gamanleikritið Brúðkaup sem við
settum upp á síðasta ári. Verkið sem
er spuni féll ekki í kramið og var illa
sótt.“
Að sögn Ernu Bjargar ganga
sýningar tólf til þrettán kvöld að
jafnaði. „En þetta gekk sex kvöld og
það er bagalegt því kostnaður vegna
einnar uppfærslu er mikill. Þótt allir
sem að sýningunni standa gefi vinnu
sína þarf ávallt að greiða leikstjóranum
laun og sjá um uppihald.“
Aldrei hafa verið vandræði með
leikstjóra hjá leikfélaginu. ,,Leikstjórar
hafa oft samband að fyrra bragði, en
ferill leikstjóra hefur mikið vægi þegar
kemur að ráðningu. Yfirleitt gengur sú
samvinna vel, þó gera þeir stundum
óraunhæfar kröfur hvað varðar
búninga og fleira. Þeir eru með örlitla
stjörnustæla og við þurfum jafnvel að
mála símtól sex sinnum svo leikstjóri
sé ánægður með litinn.“
Langt er síðan Grímnir bauð upp
á barnaleikrit en nú verður breyting
þar á. ,,Æfingar standa nú yfir á
Dýrunum í Hálsaskógi og er stefnt
að frumsýningu um páska. Það
er mikill hugur í okkur og í tilefni
fjörutíu ára afmælis leikfélagsins
stefnum við að frumsýningu á tveim
verkum á þessu ári.“ kolbeinn@dv.is
Leikfélag Húsavíkur stendur í
ströngu þessa dagana. Ekki er þó
um leiksýningar eða aðra listvið-
burði að ræða.
„Við höfum undanfarið lagt
áherslu á innra starf leikfélagsins
og staðið
í flutning-
um,” segir
Guðrún Kristín Jóhannsdóttir for-
maður leikfélagsins.
„Húsnæðið sem leikfélagið átti
var barn síns tíma og orðið lúið. Því
varð úr að bærinn skipti við okkur
og við fengum til afnota og eignar
hús sem áður hýsti vélaverkstæði,
en er í raun gömul rækjuvinnsla.“
Í þessu húsi verður aðstaða fyr-
ir félagsstarf og stjórn Leikfélags
Húsavíkur og geymslur fyrir bún-
inga og leikmuni. Leiksýningar fara
fram í samkomuhúsi bæjarbúa eftir
sem áður. „Við höfum verið önnum
kafin við flutningana og mikill hug-
ur í okkur.“ Á síðasta ári sýndi leikfé-
lagið Tvo tvöfalda í leikstjórn Maríu
Sigurðardóttur. „Sú uppfærsla var
mjög vel sótt og gengu sýningar í tvo
mánuði,“ segir Sólveig Jóna Skúla-
dóttir, ritari leikfélagsins. Leikfélag
Húsavíkur stefnir að frumsýningu
með hækkandi sól. Ákvörðun um
hvaða verk verður fyrir valinu liggur
ekki fyrir enn sem komið er.
„Okkur langar að hafa það
heimatilbúið og stefnum að því, en
hvað sem öðru líður verður boðið
upp á eitthvað flott verk,“ segir Guð-
rún Kristín að lokum. kolbeinn@dv.is
Leikfélag Húsavíkur:
Heimatilbúið verk með hækkandi sól
Hraunland
Listsýningin Hraunland var
opnuð í Gallery Gammel Strand
í Kaupmannahöfn föstudaginn
9. febrúar. Forseti Íslands, hr.
Ólafur Ragnar Grímsson, flutti
opnunarræðu. Á sýningunni
er stefnt saman málaranum
Jóhannesi S. Kjarval og
listamanninum Ólafi Elíassyni.
Þeir eru þekktir fyrir túlkun
sína á náttúrunni en hvor á
sinn hátt. Í fréttatilkynningu frá
Baugi Group segir Jón Ásgeir
Jóhannesson forstjóri meðal
annars: „Sýningin býr yfir fágætri
orku og gæðum og við vonum
að hún verði bara hin fyrsta af
mörgum slíkum verkefnum sem
styrkja munu sambandið milli
Íslands og Danmerkur.“
Áhugaleikfélög hafa löngum átt undir högg að sækja. Þau eru flest
starfrækt í fámennum bæjarfélögum af fólki með áhugann einan að vopni. Takmörk-
uð fjárráð og jafnvel aðstöðuleysi standa leikfélögunum fyrir þrifum. Engin trygging
er fyrir því að sú vinna sem að baki liggur við uppsetningu leikrits borgi sig.
LeikListí Stykkishólmi
Leikfélag Húsavíkur
flytur í gamla rækjuvinnslu.
Hof skal
það heita
Menningarhús Akureyringa
mun heita Hof. Alls bárust 338
tillögur um 241 nafn á húsið.
Tveir skiluðu inn tillögu með
nafninu Hof, þau Aðalbjörg Sig-
marsdóttir og Heimir Kristins-
son. Nafnið Hof var einróma
samþykkt af stjórn Akureyrar-
stofu. Við sama tækifæri var
undirritaður nýr samningur
milli Leikfélags Akureyrar og
Akureyrarbæjar. Samkomulag-
ið er reist á samningi Akur-
eyrarbæjar og menntamála-
ráðuneytisins um samstarf í
menningarmálum næstu þrjú
árin og felur í sér framlag til
LA upp á samtals 322 milljónir
króna.
Óperudagar
Evrópu
Til að fagna fjögurra
alda óperuhefð eru haldnir
Óperudagar Evrópu helgina
16. til 18. febrúar. Víðsvegar um
Evrópu bjóða óperuhús upp á
fjölbreytta dagskrá og samtök
evrópskra óperuhúsa halda
ráðstefnu í París. Íslenska óperan
býður upp á beina útsendingu
á Rás 1 á Flagara í framsókn eftir
Stravinsky. Meðal annars sem
boðið er upp á er opin æfing
á Gianni Schicci eftir Puccini á
sviði Íslensku óperunnar.
leiklist
Anima opnar nýtt gallerí
Laugardaginn 17. febrúar opnar Anima formlega nýtt gallerí á annarri
hæð í húsi Iðu í Lækjargötu. Meðal listamanna sem sýna við opnunina
eru Erla Þórarinsdóttir, Jón Óskar, Iain Sharpe og Spessi. Boðið er upp
á veitingar og verður galleríið opnað klukkan 17.
DV0049130207
Leikfélagið Grímnir í Stykkishólmi 40 ára
„grímnir er metnaðarfullt leikfélag og nýtur
aukins áhuga ungs fólks, en sorglegt hve
bæjarbúar hafa einhæfan smekk.“
leiklist