Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.2007, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.2007, Síða 4
föstudagur 16. febrúar 20074 Fréttir DV 23 ára sögu loforða um Suðurstrandarveg lýkur árið 2018 ef áform í samgönguáætlun- um um fjárframlög til framkvæmdanna ganga eftir. Vegurinn verður þá tilbúinn þrettán árum seinna en ráðherrar ríkisstjórnarinnar lofuðu fyrir síðustu þingkosningar. Lagning Suðurstrandarvegar sem tengja á Reykjanes og Suðurland var meðal fyrirheita stjórnmála- manna þegar ákveðið var að fækka kjördæmum og stækka þau rétt fyrir þingkosningar 1999. Fjögur ár voru þá liðin síðan lagning vegarins var fyrst sett á vegáætlun. Margir stjórn- málamenn töldu hann nauðsynlegan til að tengja þá landshluta sem sam- einuðust í nýju Suðurkjördæmi. Lítið hefur þó orðið úr framkvæmdum og útlit fyrir að enn sé rúmur áratugur hið minnsta áður en hægt verður að keyra um Suðurstrandarveg. Jón Gunnar Margeirsson, hjá Jóni og Margeiri, keyrir mikið milli Reykjaness og Suðurlands með fisk frá útgerðum til fiskvinnsla. „Það tekur okkur í dag klukkutíma og tíu mínútur að fara úr Grindavík í Þor- lákshöfn. Ef það styttist um 50 kíló- metra gæti það stytt leiðina um 40 mínútur,“ segir hann. Bílar þurfa nú að taka langan krók í gegnum höfuð- borgarsvæðið á leið sinni milli Suð- urlands og Reykjaness. „Auðvitað er ég orðinn langeyg- ur. Það er búið að svíkja þetta lengi,“ segir Jón Gunnar. Hans fyrstu við- brögð við að gert væri ráð fyrir fram- kvæmdinni á samgönguáætlun voru að þetta væru góð tíðindi. „Hrika- legt,“ var orðið sem hann notaði þeg- ar hann frétti að vegurinn yrði ekki til fyrr en 2018. „Vegurinn kemur ekkert til með að nýtast til flutninga fyrr en hann verður klár og fullklæddur.“ Suðurstrandarvegur er dæmi um vegagerð sem er lofað ítrekað en fjár- veitingar dragast eða eru afturkallað- ar. Fyrstu fjárveitingar til frumhönn- unar vegarins voru veittar árið 1995 og við kjördæmabreytingarnar sem voru samþykktar 1999 töldu þing- menn kjördæmisins sig hafa vilyrði fyrir að vegurinn yrði lagður á næsta kjörtímabili. Ekkert varð þó af því. Skriður virtist komast á lagn- ingu Suðurstrandarvegar þegar rík- isstjórnin ákvað á fundi sínum í febrúar 2003, skömmu fyrir síðustu þingkosningar, að veita rúma sex milljarða króna í vegagerð. Suður- strandarvegur var þá eitt verkefn- anna sem átti að vinna á næsta eina og hálfa árinu. Sú framkvæmd var þó slegin af á fundi ríkisstjórnarinnar í júlí sama ár, tveimur mánuðum eftir kosningar. Staðan er því sú í dag að aðeins er búið að leggja átta kílómetra af Suð- urstrandarvegi. Sex kílómetrar hafa verið lagðir út frá Grindavík og tveir kílómetrar frá Þorlákshöfn, sá veg- kafli er jafnframt ný aðkoma að bæn- um. Nú er gert ráð fyrir því í nýrri sam- gönguáætlun að leggja 1.430 milljón- ir króna í lagningu vegarins á næstu tólf árum. Á það er þó að líta að í veg- áætlun 2000 til 2004 var gert ráð fyrir 400 milljónum króna til verkefnisins og 500 milljónum í vegáætlun 2003 til 2006. Ekki skilaði það fé sér þó allt en það hefði dugað langleiðina til að leggja veginn. Gangi þessi áform eftir verð- ur vegurinn að veruleika á síðasta tímabili samgönguáætlunarinnar, einhvern tímann á árunum 2015 til 2018. Verði það síðasta árið hafa lið- ið 23 ár frá því lagning vegarins var fyrst sett inn á vegáætlun. Þá verða líka liðin þrettán ár, eða einn ferm- ingaraldur, frá því vegurinn átti að verða tilbúinn samkvæmt loforðum stjórnvalda fyrir kosningar 2003. Tólf ár eru liðin síðan lagning Suðurstrandarvegar var fyrst sett inn á vegáætlun. Á þeim tíma hafa aðeins verið lagðir átta kíló- metrar af þeim 58 sem vegurinn verður fullgerður. Aldarfjórðung að leggja 58 kílómetra veg Bandarísk stjórnvöld hafa ekki óskað eftir sambærileg- um stuðningi við hugsanlega innrás í Íran og veitt var vegna innrásarinnar í Írak. Þess vegna hefur ekki verið tekin afstaða til hennar, sagði Geir H. Haarde forsætisráðherra þegar hann svaraði fyrirspurn Steingríms J. Sigfússonar, formanns Vinstri- hreyfingarinnar - græns fram- boðs, á þingi. Steingrímur lýsti vonbrigð- um með svör forsætisráðherra. Björgvin G. Sigurðsson, þing- maður Samfylkingarinnar, gagn- rýndi að ekki lægi ljóst fyrir að enginn stuðningur yrði veittur við innrás í Íran. Stuðningurinn við innrásina í Írak væri svartur blettur í sögu Íslands. Engin ákvörðun um stuðning Nokkr- um þeim sem heitið höfðu Geð- verndarfélagi Íslands styrk fyrir jól en hafa ekki enn greitt brá á dögunum. Þá fengu þeir bréf þar sem þeim var bent á að inna greiðslu af hendi svo komast mætti hjá inn- heimtukostnaði. Þær upplýsingar fengust hjá Geðverndarfélagi Íslands að bréfið hefði farið út fyrir mistök og aldrei hefði staðið til að setja styrkina í innheimtu ef greiðslu- seðlar sem sendir voru út yrðu ekki greiddir. Unnið hefur verið að því að hringja í alla þá sem fengu bréfið til að biðja þá af- sökunar. Ætluðu ekki að rukka Happdrætti Háskóla Íslands og Íslandsspil hagnast um einn og hálfan milljarð króna á rekstri spilakassa á ári. Íslandsspil er í eigu Rauða krossins, Lands- bjargar og SÁÁ. Kassar Íslandsspils skiluðu eigendum sínum um 900 millj- ónum króna hvort ár um sig árin 2004 og 2005, samkvæmt svari dómsmálaráðherra við fyrir- spurn þingmannanna Rann- veigar Guðmundsdóttur og Ögmundar Jónassonar. Happ- drætti Háskóla Íslands fékk um 600 milljónir árlega úr kössum sínum. Einn og hálfur milljarður á ári „Auðvitað er ég orðinn langeygur. Það er búið að svíkja þetta lengi.“ Bolvískir og ísfirskir sveitar- stjórnarmenn fagna því að jarð- göng til að tryggja samgöngur milli sveitarfélaganna séu inni á nýrri samgönguáætlun. Þar er gert ráð fyrir göngum úr Bolungar- vík í Hnífsdal og að framkvæmd- um verði lokið 2010. Kostnaður er áætlaður rúmir þrír milljarðar króna. Fram kom í DV fyrir þremur vikum að síðustu 20 árin hefur hátt í milljarði króna verið varið í margvíslegar aðgerðir til að auka umferðaröryggi á veginum um Óshlíð. Þær framkvæmdir hafa ekki dugað til að tryggja viðun- andi öryggi. Fagna göngum „Þarna eru umboðslausir menn að lofa fjármagninu,“ segir Lúð- vík Bergvinsson, þingmaður Samfylkingar. Hann furðar sig á að ráðherrar lofi greiðslum mörg ár fram í tímann, svo sem í vega- málum og til sauðfjár- bænda. Hann hefur lagt fram fyrirspurn til for- sætisráðherra um laga- legt og siðferðis- legt gildi slíkra fjárskuldbind- inga. Lúðvík segir loforð ráðherr- anna í og með fyndin, umboði þeirra ljúki eftir kosningar og alls óvíst að ný stjórn telji sig bundna af þeim. „Eitt er þó vont við þetta. Mannréttindadómstól- ar hafa verið að dæma bætur á grundvelli rétt- mætra væntinga. Þess- ar æfingar ráðherra skapa réttmætar væntingar hjá fólki.“ Spyr um gildi loforðanna Brynjólfur þór guðmundSSon blaðamaður skrifar: brynjolfur@dv.is Sturla Böðvarsson boðar 380 milljarða króna útgjöld í samgönguáætlun til næstu tólf ára. InnlendArFréttIr ritstjorn@dv.is þungaflutningar á þjóðveginum Leiðin úr Þorlákshöfn í grindavík liggur um þjóðveg 1, höfuðborgarsvæðið og reykjanesbraut í 50 kílómetra krók. suðurstrandarvegur gæti stytt för flutningabíla um 40 mínútur á hvorri leið. föstudagur 26. janúar 2007 24 Fréttir DV „Það hafa verið settar í þetta meira en 800 milljónir króna sem hafa alls ekki fært okkur neitt öryggi,“ seg-ir Guðjón Arnar Kristjánsson, for-maður Frjálslynda flokksins, um vegagerð í Óshlíð síðustu 20 árin. Á þeim tíma hefur rúmum 800 milljón-um króna verið varið í margvíslegar framkvæmdir á veginum og tæpum 70 milljónum til viðbótar í þjónustu og viðhald. Samanlagt nemur kostn-aður við veginn því tæpum 900 millj-ónum króna en eftir sem áður eru vegfarendur oft uggandi þegar þeir aka um veginn. „Það hefur sýnt sig að jarðgöng eru einhverjir öruggustu vegir sem gerð-ir hafa verið á Íslandi,“ segir Guðjón Arnar sem telur að betur hefði verið ráðist í jarðgangagerð fyrir 20 árum en að reyna alltaf að lagfæra veginn og minnka hættu þannig. „Menn hafa sett í þetta meira en 800 milljón-ir króna sem hafa alls ekki fært okkur neitt öryggi.“Hann segir að mönnum hafi ef til vill tekist að fækka bana-slysum og tryggja að vegurinn væri oftast fær en að það sé af og frá að umferðaröryggi sé viðunandi. „Ef við getum ekki lagt vegi þar sem þeir eru öruggir eigum við að leggja jarðgöng, svo sem undir hættulega fjallvegi.“ Fimm vegskálarTalsverð umræða var meðal sveit-arstjórnarmanna snemma á níunda áratug síðustu aldar að réttast væri að ráðast í jarðgangagerð frekar en ráðast í lagfæringar á Óshlíðarveg-inum, einum óveganna eins og hann var kallaður. Þá töldu menn fram-kvæmdina þó of viðamikla og í stað þess að gera jarðgöng var farið í að bæta veginn næstu áratugina.„Stærstu einstöku framkvæmd-irnar sem ráðist hefur verið í eru vegskálar í Ófæru 1986, Seljadalsó-færu 1994 og víðar. Samtals eru vegs-kálarnir 240 metrar á lengd. Þrátt fyrir þetta eru snjóflóð og grjóthrun á veginn svo tíð að Bolvíkingar eru hættir að kippa sér upp við fréttir af þeim,“ segir Soffía Vagnsdóttir, for-seti bæjarstjórnar. Hjónin fengu grjótið yfir sigEinn þeirra sem hafa fengið að kynnast grjóthruni á veginn er Hall-dór Benediktsson í Bolungarvík. Hann var í langri bílalest sem fór um Óshlíðina til að minnast þess að 50 ár voru frá opnun vegarins þegar grjót hrundi á bíl hans. „Það kom niður á toppinn á bílnum og framrúðan ma-skaðist. Grjótið keyrði toppinn nið-ur í höfuðið á mér og það kom gat á það.“ Bæði Halldór og kona hans fengu grjót og gler framan í sig en ökumenn og farþegar annarra bíla sluppu. Halldór er ekki í nokkrum vafa um nauðsyn þess að gera jarð-göng til að tryggja öryggi vegfarenda. „Það hafa verið gerðar töluverð-ar samgöngubætur á Óshlíðinni en þetta verður aldrei heft nema með jarðgöngum.“ Fram að þeim tíma verður fólk að bíta á jaxlinn. „Menn hafa enga aðra leið.“Tveir létust í snjóflóði í nóvember 1991 þegar þrír ungl-ingar voru þar á ferð. Flóðið hreif bíl þeirra með sér. Einn pilt- anna bjarg- aðist en tveir félagar hans létust. Ann- ar var nítján ára en hinn sextán. Skila ekki árangri„Það hefur sýnt sig að allar þessar framkvæmdir hafa ekki skilað tilætl-uðum árangri,“ segir Soffía Vagns-dóttir, forseti bæjarstjórnar í Bol-ungarvík, og segir upphæðina koma nokkuð á óvart. Hún segir upphæð-ina þó sennilega talsvert hærri þegar allt tjón er tekið með í dæmið. Soffía segir þó að engum sé um að kenna, þeir sem hafi unnið að þessum mál-um síðustu 20 árin hafi verið að gera sitt besta. Mönnum hafi á sínum tíma þótt jarðgöng svo fjarlægur kostur að lítið stoðaði að ræða þau, jarðgöng hafi verið álíka raunhæf og mönnum þóttu ferðir til tunglsins fyrir hundr-að árum. Hún segir að nú sé öldin önnur og tími til kominn að hætta öllum lagfæringum, nú bíði menn aðeins jarðganga.„Við höldum ennþá í þá von að ráðherra standi við þau orð sín að ákvörðun verði tekin á þessu þingi,“ segir Soffía sem vill að göng verði lögð svokall-aða Tungudalsleið. Það er dýr-asta leiðin en sú besta að mati Soffíu. Ákveðið í vor Samkvæmt skýrslu sem unnin var fyrir Vegagerðina eru fimm jarð-gangakostir í boði og er kostnaður við þá metinn á bilinu frá rúmlega þrem- ur og upp í rúma fimm milljarða króna. Sturla Böðvarsson samgönguráð-herra segir að hann ákveði áður en þingið fer heim í mars hvaða kostur verði lagður til. Það sé ekki spurning hvort heldur hvenær göngin koma.Hann segir öll útgjöld í Ós-hlíðinni síðustu 20 árin rétt-lætanlegt því þetta hafi verið gert til að auka umferðarör-yggi. Hann segir göng miklu aðgengilegri kost nú en upp úr 1980. „Mér finnst ekki sanngjarnt að gagnrýna menn fyrir að fara ekki þeg-ar í jarðgöng. Á þeim tíma var ekki búið að grafa Vestfjarða-göngin, ekki einu sinni Ólafsfjarðar- göng- in. Framkvæmdir til að bæta umferðaröryggi í Óshlíð hafa kostað hátt í milljarð án þess að nægilegt umferðaröryggi hafi verið tryggt. Ljóst þykir að umferðaröryggi batnar ekki til muna nema með jarðgöngum. Settu milljarð í reddingar BrynjólFur Þór GuðmundSSon blaðamaður skrifar: brynjolfur@dv.is Á ferð um óshlíðsnjóflóð og grjóthrun hafa valdið margvíslegum skaða þrátt fyrir miklar framkvæmdir. Snjóflóðagirðingar girðingar gegn snjóflóoðum og vegskálar eru meðal þeirra framkvæmda sem ráðist hefur verið í. „Ef við getum ekki lagt vegi þar sem þeir eru öruggir eigum við að leggja jarðgöng, svo sem undir hættu-lega fjallvegi.“ Guðjón Arnar Kristjánsson féð sem sett hefur verið í veginn um Óshlíð hefur ekki tryggt umferðaröryggi. Soffía Vagnsdóttir framkvæmdir í Óshlíð hafa ekki skilað tilætluðum árangri. Sturla Böðvarsson Ekki spurning hvort heldur hvenær göngin koma. Kosningin hafin Atkvæðagreiðsla utan kjör- fundar um stækkun álversins í Straumsvík er hafin í Hafnar- firði. Laugardaginn 31. mars munu Hafnfirðingar svo ganga til kosninga um fyrirliggjandi tillögu. Kosið verður á Strand- götu 6, alla virka daga fram að kosningum. Samkvæmt nýlegri skoðanakönnun sem Alcan lét gera, mun naumur meirihluti bæjarbúa fella til- löguna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.