Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.2007, Qupperneq 15

Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.2007, Qupperneq 15
Einar Agnarsson og Sturla Lam­ bert Steinsson fundust látnir í bif­ reið í Daníelsslipp árið 1985. Rann­ sóknarlögregla ríkisins rannsakaði málið og úrskurðaði að þeir hefðu framið sjálfsvíg. Ragnar Agnarsson, bróðir Einars, segir þá ekki hafa fall­ ið fyrir eigin hendi. Strax og Ragnar Agnarsson, bróð­ ir Einars, skoðaði föt þeirra látnu fylltist hann grun um að ekki væri allt með felldu. Það var að morgni 1. mars 1985 sem þeir Einar og Sturla fundust látnir í bílnum í Daníels­ slipp. Búið var að breiða gráan segldúk yfir bílinn. Ragnar segir útilokað að þeir hafi gert það sjálfir. Ragnar er sannfærður um að einhver óþekkt­ ur maður hafi gert það og átt þátt í dauða tvímenninganna. Það er fleira sem Ragnar efast um í rann­ sókn lögreglunnar. Einar átti erfiða æsku, ólst upp á Kumbaravogi og síðar Breiðuvík. Þar sætti hann hrikalegum misþyrm­ ingum. Elvar Jakobsson segir í við­ tali, hér á opnunni, frá hluta þeirra misþyrminga sem Einar sætti. Einn­ ig að hann hafi hugsanlega þurft að þola nauðgun af hálfu manns þegar hann var á Kumbaravogi. Undarlegur dánartími „Ég hitti leigubílstjóra eftir að mér var sagt að Einar og Sturla hefðu tekið líf sitt. Hann var undr­ andi yfir þeirri fullyrðingu og sagð­ ist hafa verið með fimm öðrum bíl­ stjórum við Kaffivagninn seint hina afdrifaríku nótt, það er aðfaranótt 1. mars 1985. Öllum bílstjórunum bar saman um að ekkert virtist ama að þeim Einari og Sturlu,“ segir Ragn­ ar. Leigubílstjórinn er nú látinn. Samkvæmt rannsókn málsins létust Einar og Sturla um miðnætti, sem stangast algjörlega á við framburð vitna, að sögn Ragnars. Hann segir þá ekki hafa haft sjálfsvíg í huga þegar þeir hittu bíl­ stjórana um nóttina. Dularfullt blóð Að sögn Ragnars fékk hann föt þeirra eftir rannsóknina. Hann segir að grunur hans hafi vaknað fyrir al­ vöru þegar hann skoðaði fötin. „Ég sturtaði fötunum úr pokan­ um, föt Einars lyktuðu af bensíni en voru annars tandurhrein. Aftur á móti voru föt Sturlu blóðug, rifin og moldug líkt og hann hefði lent í átökum. Af þeim var ekki bensín­ lykt,“ segir Ragnar. Hann segir það greinilegt að þeir hafi ekki látið lífið saman eða á sama hátt. Ragnar hitti almennan lögreglu­ þjón sem hafði komið á vettvang daginn sem þeir látnu fundust. Hann sagði Ragnari að aðkoman í Daníelsslipp hefði verið undar­ leg. Helst vegna þess að búið var að breiða gráan segldúk yfir bílinn. Krufningarskýrslan „Þá fór ég til rannsóknarlög­ reglunnar í Kópavogi og var harð­ ákveðinn í að fá skýr svör um dauða bróður míns,“ segir Ragnar alvar­ legur í bragði. Hann segist hafa hitt lögreglumann og eftir nokkurt þóf á hann að hafa sagt við Ragnar að málið væri ekki jafn einfalt og það liti út fyrir að vera. Ragnar sagði honum það sem hann vissi um dúk­ inn og blóðið og spurði hvernig það hafi komist í föt Sturlu. „Þá las hann upp úr krufning­ arskýrslunni fyrir mig og þar stóð að blóðið væri þannig tilkomið að lungnapípur hefðu sprungið og Sturla gubbað blóði,“ segir Ragnar og bætir við: „Sturla var myrtur.“ Róandi lyf Þegar Ragnar vildi fá að vita um dánarorsök bróður síns neitaði lögreglumaðurinn að segja meira. Hann skýrði það með þeim rökum að Ragnar væri of nátengdur Ein­ ari. Aftur á móti sýndi hann Ragn­ ari lyfjaglas með róandi lyfi. Ragnar fullyrðir að það efni hafi ekki geta orðið þeim að bana, enda báðir vanir ýmsum efnum sökum óreglu. Að sögn Ragnars lyktaði samræð­ unum þannig að málið væri til rannsóknar og yrði áfram. „Endan­ leg dánarorsök var sú að þeir hafi látist vegna koltvísýringseitrunar,“ segir Ragnar um lok rannsóknar­ innar. Hann efast enn um að nið­ urstöður lögreglurannsóknarinnar séu þær réttu. Engar upplýsingar „Þetta var áfall fyrir mig,“ seg­ ir Ragnar um örlög bróður síns og Sturlu. Hann, ásamt systur sinni, hefur reynt að komast til botns í málinu. Í tuttugu ár hefur málið leg­ ið eins og mara á þeim og Ragnar vill fá svör. valur@dv.is DV Fréttir föstudagur 16. febrúar 2007 15 lítill og hugrakkur Bróðir minn var myrturÞorir ekki að treystaElvar ætlaði um tíma að verða bakari. Hann fór í nám í bakaríinu á Selfossi og segir að þar hafi systir fóstursystur sinnar á Kumbaravogi bjargað sér. „Ég var fimmtán ára unglingur og þessi unga stúlka, sem er fjórum árum eldri en ég, tók mig í hálfgert fóstur. Heima hjá henni lærði ég og við hana gat ég rætt allt milli him­ ins og jarðar. Ég sagði henni allt. Svo var mér hegnt á kvöldin fyrir að hafa ekki komið beint heim úr skól­ anum. Þessi kona gerði mér meira gagn en hana órar fyrir...“ Ást hans á dýrum jókst ef eitt- hvað var. Hann fór í Bændaskólann á Hólum í Hjaltadal. „Þar lauk ég tveimur vetrum á einum og útskrifaðist sem búfræð­ ingur nítján ára að aldri...“ Þegar Elvar var 21 árs hafði hann leiðst út í drykkju. Einn dag tók hann ákvörðun. Hann ætlaði að loka á minningarnar með því að fara úr landi. „Mamma reyndi að stöðva mig, en ég hafði tekið ákvörðun. Hér á Íslandi gat ég ekki búið. Ég hóf nýtt líf, fyrst í Kaupmannahöfn, síðar í London og loks í Þýskalandi þar sem ég hef búið í áratugi. Fyrstu árin forðaðist ég að koma heim. Ég var í góðum störfum og mín flóttaleið var sú að vinna myrkr­ anna á milli. Með mikilli vinnu gat ég útilokað ljótu minningarnar frá Kumbaravogi. En ég hef aldrei ver­ ið sambúðarhæfur. Um leið og ein­ hver sýnir mér ást yfirgef ég við­ komandi. Ég þori ekki að treysta.“ Gleðst yfir rannsókn á barnaheimilum Elvar segist hafa átt góða ævi síðan hann yfirgaf Ísland árið 1979. Hann hefur komist í góðar stöður og í fjöldamörg ár var hann aðstoðarhótelstjóri á fimm stjörnu hóteli í Hamborg. Þar tók hann á móti mestu stórstjörnum verald- ar sem fengu aldrei að sjá bak við grímuna. Þær sáu bara einkenn- isklæddan, broshýran Íslending sem bar sig eins og lífið væri leik- ur einn. „Ég hef upplifað margt skemmtilegt og séð allan heim­ inn,“ segir hann. „Það er nefni­ lega mikilvægt og má ekki gleym­ ast að ég á fimm yndisleg systkini, föður og æðislega fóstursystur. Þetta er fólk sem ég virði mjög mikils. Þau hafa staðið mér við hlið og sýnt mér mikla ástúð og traust síðustu tuttugu árin. Án hjálpar þeirra og kærleiks hefði ég aldrei komist gegnum þessa martröð. Ég geri mér grein fyrir að ég þarf hjálp. Ég þarf hjálp til að ýta verstu minningunum upp á yfirborðið og drepa þær. Ég veit ekki hvort það sé hægt að hjálpa mér lengur. Ég er búinn að grafa þetta svo djúpt að ég held að eng­ inn nái minningunum upp úr þessu. Ég er farinn að fá martrað­ ir. Í öllum meðferðum festist ég í minningunni um nauðgunina. Ég skammast mín svo fyrir að hafa leyft að láta fara svona illa með mig. Að ég hafi þegið sælgæti fyr­ ir að láta nauðga mér. Ég á að vita að þetta var ekki mér að kenna. Ég var ókynþroska unglingur. En minningarnar hafa sótt að mér, bæði eftir að ég kom heim til Ís­ lands um síðustu jól eftir sex ára samfellda fjarveru, en sérstaklega nú síðustu daga þegar ég las um Breiðuvíkurmálið. Það gleður mig að sjá að ríkisstjórnin ætli að láta rannsaka hvað fór fram á barna­ heimilum Íslands fyrr á árum. Þar fór nefnilega ekki fram uppeldi, heldur ofbeldi og á þeim stað sem ég bjó lengst, vinnuþrælkun.“ annakristine@dv.is Einar Agnarsson og Sturla Lambert Steinsson fundust látnir í bifreið í Daníelsslipp í Reykjavík 1. mars 1985. Segldúkur hafði verið breiddur yfir bifreiðina. Niðurstaða rannsóknar- innar var sú að þeir hefðu svipt sig lífi og dánarorsökin væri koltvísýringseitrun. Bróðir Einars Ragnar Agnarsson er ósáttur með málalokin og segir þá hafa verið myrta. „Þá las hann upp úr krufningarskýrslunni fyrir mig og þar stóð að blóðið væri þannig tilkomið að lungnapíp- ur hefðu sprungið og Sturla gubbað blóði.“ Einar Agnarsson fyrir framan Kumbaravog „einar var minnstur og grennstur, en hann var sá hugrakkasti,“ segir elvar Jakobsson í viðtali við blaðið. „Ég skammast mín svo fyrir að hafa leyft að láta fara svona illa með mig. Að ég hafi þegið sælgæti fyrir að láta nauðga mér.“ Framhald á næstu síðu Unglingurinn Elli „Ég var hálfgert vandræðabarn held ég og þegar ég var í reykjavík áður en ég var sendur að Kumbaravogi, mætti ég til dæmis helst aldrei í skólann. Ég strauk inn að fáksheimili til að vera nálægt hestum.“
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.